Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1986, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986.
5
Fréttir
baráttan um stóla. Svipurinn ó þessu
er því heldur átakanlegur."
Kratarnir kátir
Eftir því sem næst verður komist
ríkir fögnuður meðal alþýðuflokks-
manna með þessa ókvörðun BJ.
Kjartan Jóhannsson, Alþýðuflokki, er
mjög ánægður með þetta. Ég tel feng
að fó þessa menn til starfa innan
flokksins. Ég hef lengi talið að það
væri bara tímaspursmál hvenær þessir
aðilar sameinuðust," segir Kjartan. I
sama streng tekur Karl Steinar
Guðnason, Alþýðuflokki. „Þetta
leggst vel í mig og þetta hefur raunar
staðið til lengi,“ segir Karl Steinar og
bætir við að hann hafi ekki orðið var
við andstöðu innan Alþýðuflokksins
við þessa ákvörðun BJ. Hins vegar
hafi þeir sem áður voru í BJ verið að
rífa kjaft.
Sorglegt
„Mér finnst þetta vera sorglegt.
Bandalag jafnaðarmanna er eini
flokkurinn sem ég hef fundið sam-
kennd með og það er öruggt að ég
mun ekki ganga í Alþýðuflokkinn.
Mínar skoðanir eiga líklega mesta
samleið með Kvennalistanum," segir
Jónína Leósdóttir, varaþingmaður
Bandalags jafiiaðarmanna. Hún úti-
lokar ekki að hún muni sitja á þingi
sem varaþingmaður, ef til þess kæmi,
en mun hins vegar ekki láta sjá sig á
þingflokksfundi Alþýðuflokksins.
Jónína var ekki boðuð ó hinn sögu-
lega fund í fyrrakvöld. Það var heldur
ekki Kristófer Már Kristinsson, annar
varaþingmaður Bandalagsins. „Ég er
nú í fyrsta lagi þeirrar skoðunar að
Bandalag jafhaðarmanna hafi verið
lagt niður fyrir ári, þegar landsfundur-
inn var haldinn. Mér finnst í raun allt
í lagi að þetta fólk gangi í Alþýðu-
flokkinn. Ég fer hins vegar ekki
þangað. Ég hef aldrei verið í þeim
flokki og ætla mér ekki í hann. Það
eru margir aðrir flokkar sem koma til
greina ó undan Alþýðuflokknum. Ég
myndi fyrst íhuga alvarlega að fara í
Flokk mannsins," segir Kristófer Már.
Hann segir að BJ hefði átt að gang-
ast undir dóm kjósenda og fá ótvírætt
úr þvi skorið hvert fylgi flokksins
væri. „Ég lagði reyndar til fyrir ári
að BJ gengi í Alþýðuflokkinn. Þá var
það pólitískt sterkt en nú sé ég ekki
hver er að bjarga hverjum."
Besti brandari
Þetta er besti brandari sem ég hef
heyrt, sagði Valgerður Bjamadóttir
þegar DV spurði hana í nóvember í
fyrra hvort til greina kæmi að BJ og
Alþýðuflokkurinn byðu sameiginlega
„Upplausnarástand“ á Keflavíkuifliigvelli?
„Samskiptaörðug-
leikar sjaldan
verlð meiri“
- snögg yfirniannaskipti hjá vamariiðinu
fram í borgarstjómarkosningunum í
Reykjavík. Hún segir að núverandi
þingflokkur hafi farið út ó allt aðrar
brautir en hún hefði kosið. Og hún
bætir við: „Ef þessir menn vilja vera
í sama pólitíska leiknum og stundaður
er af kerfisflokkunum eiga þeir auðvit-
að að vera í einhverjum þeirra.“
Þú bætir ekki Frankenstein
Hér hefur aðeins verið drepið ó
stuttan og litríkan feril Bandalags
jafhaðarmanna. Af mörgu er að taka
og hreint ótrúlegt hvað félagar og
þingmenn hafa látið frá sér fara á þess-
um stutta tíma.
Það var engan bilbug að finna á
nýkjömum formanni flokksins eftir
fámennan landsfund sem haldinn var
í desember á síðasta ári. Þá sagði
Guðmundur Einarsson við DV. „Við
ætlum ekki að klastra í sprungumar
í kringum okkur. Eins og Desmond
Tutu biskup sagði: „Þú bætir ekki
Frankenstein, þú eyðileggur hann.“
„Við viljum ekki bæta kerfið, við vilj-
um brjóta það. Það verður að gera
róttækar breytingar ó þjóðfélaginu til
að uppræta siðspillinguna og ábyrgð-
arleysið. Ég held, ég er alveg viss, ég
veit að BJ á erindi.“ Svo mörg vom
þau orð. Nú er ekki lengur til BJ en
kjósendur bíða spenntir eftir því
hvemig Guðmundi muni takast að
eyðileggja Frankenstein.
„Það er voðalegt ástand héma á
Keflavíkurflugvelli. Samskiptaörð-
ugleikar Islendinga við vamarliðs-
menn hafa sjaldan verið meiri,
reyndar má tala um upplausnar-
ástand," sögðu íslenskir starfsmenn
á Keflavíkurflugvelli í samtölum við
DV. Starfsmennimir vildu ekki láta
nafns síns getið í þessu sambandi af
ótta við uppsagnir. „Bandarískir
yfirmenn héma hta á íslendinga sem
einhverja skrælingja. Virðingarstig-
inn er þannig að efst trónir herra-
þjóðin, Bandaríkjamenn, svo koma
Filippseyingar og neðstir em íslend-
ingar. Þetta er ekkert betra en ó
nýlendutíma Dana."
Snögg yfirmannaskipti hafa orðið
hjá vamarliðinu á Keflavíkurflug-
velli. Ed Anderson aðmfráll, sem
hefur starfað sem yfixmaður á Kefla-
víkurflugvelli firá því í febrúar 1985,
er á förum af landi brott 10. október
næstkomandi. Starfstími hans átti
hins vegar ekki að renna út fyrr en
í mars á næsta ári. Við tekur Eric
A. McVadon sem gegndi óbyrgðar-
stöðu hjá vamarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli 1982-84. Hann talar
íslensku og samkvæmt heimildum
DV kemur hann til starfa vegna sér-
stakra óska íslenskra yfirvalda.
-EIR
TIAMCJeep AMCJeep TIAMCJeep ri AMC Jeep ri AMC Jeep ri AMC
Cherokee
Wagoneer
bíll ársins
1984
Bíll hinna vandlátu
Nú aftur
bíll ársins
sem Comance
1986
Með nýja öfluga sparneytna
6 cyl. I vél
Ný léttbyggð, háþróuð 4,0 L
6 cyl. vél, byggð á áraraða
reynslu hinnar frábæru AMC
línu vélar.
n AMC Jeep
Aðaismerki
Söluumboð Akureyri
Þórshamar hf. s. 22700
4x4
EGILL VILHJÁLMSSON HF,
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77395
HAPPDRÆITI DVAIARHEIMILIS ALDRAÐRA SJÓMANNA