Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986.
3T'
Guðmundur Einarsson, Kolbrún
Jónsdóttir og Stefán Benediktsson
morguninn sem þeir gengu i Al-
þýöuflokklnn. Var BJ þó eftir allt
saman ekki lagt niöur?
Eins dauði,
annars brauð
Meira um BJ. Flokkur
mannsins leggur sinn skilning
í þetta mál. Segja talsmenn
hans að nú þegar BJ hafi
„lyppast niður og skriðið inn
í hinn opna faðm samtrygg-
ingarinnar" eins og það er
orðað í fréttabréfi frá þeim sé
nú Flokkur mannsins
„sameiningartákn fyrir
ábyrga Islendinga sem líti á
pólitík sem sjálfsbjargarleið".
Þeir telja sig því nú eina
flokkinn í landinu sem ekki
hafi gefist upp í baráttunni
fyrir manneskjulegu þjóðfé-
lagi og hugsa sér gott til
glóðarinnar í komandi kosn-
ingiun.
Svona getur eins dauði verið
annars brauð.
BJ ekki dautt?
Þær raddir heyrast nú að
Bandalag jafnaðarmanna sé
hreint ekki dautt úr öllum
æðum. Er sagt að allnokkrir
sitji nú á fundum og ræði
málin. Telur þessi hópur að
þeir Stefán Benediktsson og
Guðmundur Einarsson hafi
með samkomulagi sínu alls
ekki lagt niður Bandalagið
heldur einungis sagt sig úr
því. Telur því hópurinn að
Bandalagið sé enn í fullu fjöri
og ku talsverður áhugi vera
innan þessa hóps að halda
áfram baráttunni.
Það getur því allt eins verið
að Bandalag jafnaðarmanna
bjóði aftur fram næst...
Má bjarga
Þörunga-
vinnslunni
eftirallt?
I nýjasta tölublaði sjó-
mannablaðsins Víkings er
sagt frá þvf að eftir kjamorku-
slysið í Chernobyl hafi það
komið fram að þörungar séu
að öllum líkindum það besta
sem menn geti neytt til að losa
iíkamann við þungmálma og
þá ekki síst þá geislavirku
þungmálma sem myndast við
atburð eins og þann sem varð
austur í Úkraínu. Segir sagan
að þegar sé farið að auglýsa
þörunga og ýmis „preparöt"
úr þeim sem mikil hollefni.
lslendingar ættu að eiga nóg
af þessum ómenguðu þörutig-
um og meira að segja er til
heil verksmiðja hér sem kennd
er við þörunga. Sú er þó al veg
á grafarbakkanum en synd og
skömm væri að láta þá starf-
semi lognast út af einmitt nú
þegar þörungar eru að komast
í sviðsljósið.
Þörungavinnslan é Reykhólum. Er
hún kannski ekkl svo galin?
Orðlaus
Svo var það eiginmaðurinn,
sem kom heim alveg á perunni
undir morgun.
„Ég á ekki eitt einasta orð,
Þorgeir," sagði eiginkonan
heldur óblíð á manninn.
„Fínt, Aðalheiður," sagði
okkar maður og lagði sig.
Drakk eins
hrattog
hann gat
Þorgeir ákvað að vera held-
ur fyrr á ferðinni næstu helgi.
Hann kom alveg peðfullur
heim skömmu eftir miðnætti.
„Fyrirgefðu, hvað ég kem
seint,“ sagði okkar maður við
eiginkonuna. „Ég drakk eins
hrattogéggat."
Sandkom
Tjaldið
eða barinn
Nú líður senn að þinginu
sem kemst á spjöld sögunnar,
nefnilega flokksþingi krata
sem haldið verður um helgina
f Hveragerði. Þangað stefna
margir og enn bættist í þann
hóp í vikunni með bandalags-
fólkinu. Nú ku öll herbergi
þegar vera uppurin og það
voru þau svör sem fyrrum
formaður flokksins, Kjartan
Jóhannsson, fékk þegar hann
ætlaði að panta sér herbergi.
Maðurinn varð að vonum
leiður en það léttist á honum
brúnin þegar Jón Baldvin
bauðst til þess að ganga úr
rúmi fyrir honum og ljá hon-
um svítu hótelsins sem
formannshjónin höfðu fengið.
Því spyrja nú menn hvernig
Jón Baldvin leysi vanda
þeirra hjóna. Munu þau tjalda
í túnfætinum eða láta barinn
nægja?
Hvort skyldl Jón Baldvln veróa i
tjaldi eóa á barnum i Hverageról?
Umsjón:
Kristin Þorstelnsdóttir
SMÁ-AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN
Smáauglýsingadeild
- sími 27022.
AMSTRAD
PCW
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun
Amstrad PCW 8256/8512
DAGSKRÁ:
Grunndvallaratriði við notkun Amstrad PCM.
Amstrad ritvinnslukerfi iocoscript.
Töflureiknirinn Multiplan.
Gagnasafnkerfið D-base II.
Helstu atriði við notkun stýrikerfisins CP/M.
Bókhald á Amstrad PCW.
Umræður og fyrirspurnir.
Tími 6., 8., 13. og 15. október kl. 20-23.
INNRITUN í SÍMUM 687590 og 68790.
Tölvufræðslan
Ármúla 36
ri AMC Jeep
WfJTJaJTÍ
Þjónusta
er veturinn nálgast
Mótor- og
Ijósastillum
Yfirförum bílinn og bendum á
hvað þarf að lagfæra til að
fyrirbyggja tafir og óþörf
vandræði.
Hafið samband við verk-
stjóra í síma 77200.
r,AMC EGÍLL
UMB0ÐIÐ / VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, sími 77200
2iUSQ£'
tórfallegt sófasett á hagstæðu verði
Skoðið það um helgina
LaugardagkL 9-17
SunnudagkL 14-17
SÍÐUMÚLA 30 SÍMI68-68-22