Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986. Fréttir „Það er allt í fullum gangi og búið er að setja nefhdir sem sjá um hinar ýmsu hliðar þótt enn sé ekki að fullu ljóst hvemig þetta verður allt sam- an,“ sagði Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra í samtali við DV. Steingrímur sagði að Birgir Þorg- ilsson ferðamálastjóri hefði umsjón með hótelmálunum og Ferðaskrif- stofa ríkisins hefði verið gerð að eins konar upplýsingamiðstöð fyrir út- lendingana sem hingað koma. Þar væri hægt að fá allar upplýsingar um land og þjóð. Yfir öryggismálin hefðu verið settir Þorsteinn Geirs- son, ráðuneytisstjóri í dómsmála- ráðuneyti, Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustjóri í Kefla- vík, og Ami Sigurjónsson, deildar- stjóri í útlendingaeftirlitinu. Þá hefði Magnús Torfi Ólafsson, blaða- fúlltrúi ríkisstjómarinnar, verið settur blaða- og fréttamönnum til aðstoðar. „Hótel Saga, Hótel Ijoftleiðir og Hótel Esja hafa verið rýmd vegna sendinefndanna sem koma með leið- togunum og vonandi komast þær allar fyrir á þessum stöðum. Annars höfum við ekki fengið nákvæmar upplýsingar um það hversu fjöl- mennar sendinefridimar verða. Þá sýnist okkur hótelvandinn vera að vaxa og langt út fyrir borgina. Öll hótelin í Reykjavík em þegar orðin full og nú er verið að athuga með hótel í nágrenni Reykjavíkur, svo sem í Hveragerði, á Selfossi, Hvolsvelli, Hellu, í Keflavík, Bor- gamesi og Valhöll á Þingvöllum. íslendingar vinveittir gyðingum - segir forsætjsráðherra „Ég hef ekki heyrt það að gyð- ingar ætli að fjölmenna hingað til lands vegna fimdarins í mót- mælaskyni. Hérlendis er engin andstæða gegn gyðingum svo ég skil ekki hvað þetta fólk ætti að gera hér,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í samtali við DV. Á öðrum stað hér í blaðinu er sagt frá því að gyðingar hafi fyr- ir alllöngu ákveðið að efna til mótmæla við næsta fund þeirra Reagans og Gorbatsjovs. Velti þeir nú fyrír sér þeim möguleika að koma til íslands í þessu skyni. Þá segir í Reutersskeyti, og er það haft eftir Shcharansky, að ástæðan fyrir því, að ísland var valið sem fundarstaður, sé sú að hér séu engir gyðingar. Þess vegna sé engin hætta á því að gyðingar verði með uppþot til að sýna samstöðu með sovéskum gyðingum. „Ég sé litla ástæðu til að óttast þetta. ísland hefúr alltaf verið mjög vinveitt ísrael á alþjóðleg- um vettvangi. Hér em nokkrir gyðingar búsettir og ég veit ekki betur en mjög gagnkvæmur skilningur ríki milli þeirra og annarra." -KÞ Steingrímur Hermannsson í bandarísku sjónvarpi: Þurfd sjálfur að sjá um undirbúninginn Óskar Magnússan, DV, Washington; Tvær stærstu sjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna fluttu í gærkvöldi við- töl við Steingrím Hermannson forsæt- isráðherra um leiðtogafundinn. Önnur stöðin hafði eftir Steingrími að íslendingar væm svo fáliðaðir að hann hefði sjálfur orðið að taka þátt í undirbúningi leiðtogafúndarins. Stöðvamar sýndu báðar myndir af snjókomunni í Reykjavík í gær, en líka fallegar og mjög jákvæðar sumar- myndir úr borginni. Sjónvarpsstöðvamar gerðu þó nokkuð mikið mál úr því að forsætis- ráðherra væri menntaður í Bandaríkj- unum. Auk þess ræddi önnur stöðin við Böðvar Bragason, lögreglustjóra í Reykjavík, og hin við Bjarka Elíasson yfirlögregluþjón um öryggisþátt leið- togafúndarins. alK í fullum gangi, segir forsætisráðheira Einnig er verið að athuga með skól- ana á Laugarvatni, gistiheimili og einkaheimili. Ég hef heyrt að alls staðar séu allar símalínur rauðgló- andi vegna þessa. Nú, svo þarf einnig að sjá þeim fyrir ferðum sem gista utan Reykjavíkur. Það á eftir að athuga." - Hvað með öryggismálin? „Nú, það er allt í fullum undirbún- ingi. Öiyggisverðir leiðtoganna em að koma til að kanna aðstæður á þeim stöðum þar sem leiðtogamir munu fara um. íslendingamir, sem settir hafa verið í það mál, munu starfa með þeim. Þá hefur verið talað um að á gamla Melavellinum verði útbúin aðstaða fyrir þyrlu til að vera til taks. Einnig mun Vamcirhðið taka þátt í öryggisgæslunni." - Hvemig verður búið að þessum mikla fjölda blaða- og fréttamanna? „Því er ekki að neita að við höfúm áhyggjur af pressunni. En við mun- um reyna að búa vel að þeim. Þessa stundina er einkum talað um að gera Hagaskóla að blaðamannamið- stöð og þá þyrfti að gefa krökkunum frí í viku. Þá hefur mönnum dottið í hug að í Háskólabíói verði haldinn blaðamannafundur leiðtoganna í lok fundarins en þetta á allt eftir að koma í ljós mjög fljótlega. Okkur er mjög í mun að þetta fari allt sem best fram og við munum gera okkar ýtrasta til að svo verði,“ sagði Steingrímur Hermannsson. -KÞ Melavöllurinn í morgun: þar verður þyrluflugvöllur á meðan leiðtogafundurinn stendur yfir. DV-mynd: Brynjar. Helgí Agústsson: Kallaður heim til að stjóma samskiptum við fjölmiðla. Fjölmiðlar: Helgi heim til skipulagn- ingar þjónustu við fréttamenn Helgi Ágústsson, sendiráðs- fúlltrúi í .Washington, hefúr verið kallaður heim til íslands til að undirbúa og skipuleggja þjónustu við fjölmiðla vegna leiðtogafundarins. Helgi kom til landsins í morgun. Hann mun fá marga sér til aðstoðar, þar á meðal Jón Hákon Magnússon og Sigríði Snævarr deildarstjóra. Á þessu sviði er mikil undir- búningsvinna framundan þar sem talað hefúr verið um að 2-3 þúsund fréttamenn komi sem er einsdæmi í sögu landsins. -KB Fréttamenn famir að streyma til landsins Fréttamenn eru þegar famir að streyma til landsins vegna leiðtogafundarins um aðra helgi. í gær komu hópar frá bandarísku sjónvaipsstöðvunum ABC og NBC. Voru þeir að kanna að- stæður og strax í gær voru fyrstu fréttapistlamir sendir. í kvöld er svo von á japönskum sjónvarps- fréttamönnum. Japanamir verða með um 50 manna lið hér á landi og hafa þeir tekið á leigu allt Farfúgla- heimilið við Sundlaugaveg. Þá hefúr NBC sjónvarpsstöðin bandaríska tekið á leigu Hótcl Örk í Hveragerði eins og hún leggur sig. Verða þeir með milli 80 og 100 manna lið hér á landi. Annars em öll hótel í Reykja- vík og nágrenni að verða sneisa- fúll. Hótel Saga, Esja og Loftleiðir hafa verið tekin undir sendinefridir leiðtoganna, en ekki er enn vitað nákvæmlega hversu stórar þær verða. -KÞ öryggismálin rædd: Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustjóri á Keflavikurflug- velli, Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, og Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, bíða eftir þvi að fá að ræða viö forsætisráðherra um undirbúning leiðtogafundarins.. 2000 manns hafa bókað Þegar hafa hátt í 2000 manns bókað flug til íslands síðan í fyrradag vegna leiðtogafúndarins og bæði Flugleiðir og Amarflug hafa sett á fjölda auka- ferða. Hjá Flugleiðum hafa tæplega 1500 manns bókað flug og hjá Amarflugi hátt í 400. Flugleiðir hafa sett á 7 aukaferðir. 8. og 9. október verða aukaferðir til London og til Bandaríkjanna þann 6. og 7. Þá verður aukaflug frá Kaup- mannahöfn þarrn 8. og annað frá Lúxemborg með viðkomu í London og þann 13. verður aukaflug til New York. Amarflug hefúr aukið sætarými í vélum sínum frá Amsterdam og Ham- borg 7., 9. og 11. október og verða auk þess þann 9. með aukaflug frá Amst- erdam. Samkvæmt upplýsingum DV munu bæði flugfélögin bæta enn frekar við ef þarf. Ér það stefha hjá báðum að reyna eftir megni að mæta allri eftir- spum. Flestir þessara tæpu 2000 manna em frétta- og blaðamenn frá öllum helstu löndum Evrópu og Asíu og einnig frá Bandaríkjunum. -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.