Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Page 2
Fréttir
MÍt)VlKlÆ)AÍÍUR Í986?':
Ungfrú heimur í stóðugum sjónvarpsviðtölum:
Fréttamaður bandarisku sjónvarpsstöðvarinnar NBC ræðir við Hófí í Laugardalnum i gær.
DV-mynd GVA.
„Þeir fá
ekki allt“
-sagði Hófí og neitaði aðfara úrfótunum
Hólmfríður Karlsdóttir er komin
heim frá Austurlöndum fjær í tilefrú
leiðtogafimdarins og hefiir vart haft
undan að veita sjónvarpsviðtöl.
Heimspressan er stödd í Reykjavík og
fatt fréttnæmt.
„Ég er búin að vera í viðtölum hjá
öllum stóru, bandarísku sjónvarps-
stöðvunum, japönskum sjónvarps-
stöðvum, tímaritinu Time, Washing-
ton Post og í kvöld fer ég í viðtal hjá
sovésku fréttastofunni Tass,“ sagði
Hófí er DV ræddi við hana á sundlaug-
arbarminum í Laugardal þar sem
sjónvarpsstöðin NBC var að undirbúa
viðtal fyrir Today Show sem er einn
vinsælasti sjónvarpsþátturinn í
Bandaríkjunum. Hófi var auðsýnilega
kalt enda nýkomin frá Singapore og
þegar DV benti henni á að hún mætti
þakka fyrir að þurfa ekki að vera á
sundbol, svaraði fegurðardrottningin:
„Þeir fá ekki allt, þessir menn. Ég fer
ekki úr fótunum."
Hólmfríður heldur utan til London
í dag til frekari starfa en kemur svo
aftur heim á leiðtogafundinn á föstu-
dag og verður fram yfir helgi.
Upptakan í sundlaugunum í gær er
hluti af lengri sjónvarpsþætti sem
NBC er að gera um íslenskar konur
og sýndur verður í Today Show. Rætt
verður við fiskvinnslukonur, pijóna-
konur, hæstaréttarlögmann, Hófí og
jafhvel forsetann.
Þá þykir mönnum með ólíkindum
að sovéska fréttastofan Tass hafi beðið
um viðtal og hallast sérfróðir menn
að því að það sé jafnvel í fyrsta skipti
sem viðtal við fegurðardrottningu
birtist í sovéska sjónvarpinu. í Sovét-
ríkjunum eru fegurðardrottningar
ekki kjömar.
-EIR
Bílstjörar Rússanna hanga á Mímisbar:
Steingrímur afstýrði
stríði leigubílstjóra
Rússnesku sendinefndimar, sem
staddar em hér á landi vegna leið-
togafúndarins, hafa leigt hálfan bíla-
flota BSR og hafa bílstjóramir fengið
inni á Mímisbar á Hótel Sögu. Er hér
bæði um að ræða leigubílstjóra af
stöðinni svo og menn sem ráðnir vom
utan stöðvarinnar til að anna eftir-
spuminni. Vegna þeirra ráðninga
munaði minnstu að upp úr syði á milli
Bílstjórafélagsins Frama og BSR-
manna og þurfti forsætisráðherra að
grípa í taumana.
„Við vorum kallaðir til Steingríms
vegna þessa máls og hann kvað deil-
una niður. Þetta fyrirkomulag, sem
við höfúm komið okkur upp, verður
áfram við lýði,“ sagði einn bílstjórinn
í samtali við DV.
Það væsir ekki um bílstjórana á
Mímisbar þó svo ekkert áfengi sé inn-
an barsins. Rússamir sjá bflstjórum
sínum fyrir mat tvisvar á dag, kafifi
og meðlæti eins og hver vill hafa og
svo er kaupið 15 þúsund krónur fyrir
12 tíma vaktir.
-EIR
BSR-bílstjóramir á Mímisbar i gær. Ekkert áfengi en matur tvisvar á dag.
DV-mynd GVA.
„Þetta er tómt rugl“
„Maður gerir ekkert annað en bíða, þetta er tómt rugl,“ sagði HróHur
Smári Jónasson leigubílsstjóri er ekur nú Oldsmobile-bifreiö sem er kirfi-
lega merkt bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS. „En það er svo sem allt i
lagi að biöa svona. Kaninn borgar fyrir ruglið, ég fæ 1000 krónur á tírnann."
í tilefni lelðtogafundarins hefur HróHur Smári klæðst sérstökum einkennis-
búningi leigubilstjóra sem nú er mjög að ryðja sér til rúms hér á landi;
blár, stuttur jakki meö merkjum á brjósti og hllö og buxur í stil.
-EIR/DV-mynd GVA.
Frumleg viðbót við afvopnunaiviðræður:
Vodkaflöskur
í fallhlífum
í tilefni leiðtogafúndarins í
Reykjavík hafa samtökin Friður
með alkóhóli(Peace Through Alco-
hol) látið til sín taka. Aðalstöðvar
samtakanna eru í Liverpool á Eng-
landi og hafa liðsmenn kynnt
málstað sinn rækilega í breska þing-
inu og víðar. Kjaminn í málflutningi
þessara sérstæðu friðarsinna er sá
að alkóhól sé ódýrara en kjamorka
og í vissum skilningi mun áhrifarí-
kara ef rétt er með farið.
Samtökin Friður með alkóhóli
leggja til að vodkaflöskur verði látn-
ar svífa til jarðar í litlum fallhlífúm
hvar sem sovéskt herlið er að finna.
Er Afganistan nefht sérstaklega í því
sambandi og bent á að Rússar séu
friðsamari fidlir en ófúllir. Markmið
samtakanna er ekki það að eyða
sovéskum herdeildum þegar þær eru
ekki lengur bardagafærar sökum
drykkju heldur að gera hermennina
ófera til hemaðar með aðstoð áfeng-
is.
I kynningarbæklingum samtak-
anna Friður með alkóhóli er á það
bent að þegar búið verði að breyta
sverðum herja heims í plóga megi
nota vopn samtakanna(vodka) sem
eldsneyti á dráttarvélar. Helsta slag-
orð þessarar friðarhreyfingar er:
„Drekka, ekki drepa“.
DV tókst ekki að fá staðfestingu á
því í aðalstöðvum samtakanna hvort
ráðgert væri að láta vodkaflöskur í
fallhlífúm rigna yfir Reykjavík á
meðan á leiðtogafúndinum stendur.
-EIR
Vopnaleit á Reykjavíkurflugvelli
„Við herðum allt eftirlit, bæði með sagði Hermann Guðmundsson hjá á föstudögum. Þá er alltaf töluvert um
farangri íslendinga svo og komu út- Tollgæslunni. ferjuflug. „Öll umferð um Reykjavík-
lendinga. Á Reykjavíkurflugvelh Á Reykjavíkurflugvelli lenda flug- urflugvöll er undir ströngu eftirliti
lendir enginn án þess að verða var við vélar frá Færeyjum á þriðjudögum og vegna leiðtogafundarins,“ sagði Her-
okkur og við verðum með vopnaleit," laugardögum og vélar frá Grænlandi mann Guðmundsson. -EIR