Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Blaðsíða 32
32
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Leiðtogafundurinn:
Þrír neyðarbílar á
sólarhringsvöktum
I tengslum við komu leiðtoga
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
verða þrír neyðarbílar á vakt allan
sólarhringinn á Borgarsjúkrahús-
inu. Til landsins er nýkominn nýr
neyðarbíll sem ætlað er að þjónusta
Gorbatsjov, af Keflavíkurílugvelli
kemur annar bíll fyrir Reagan og
almenningur í borginni hefúr svo
gamla neyðarbílinn.
Sá neyðarbíll, sem ætlaður er al-
menningi, er nú orðinn þriggja ára
gamall og var hann í „klössurí* er
leiðtogafundurinn var ákveðinn en
var kippt úr henni í framhaldi af
fundinum. í framtíðinni er honum
síðan ætlað að vera varabíll. Slíkt
hefur skort hingað til og með til-
komu hans eykst til muna öryggið
í þessari þjónustu spítalans. -FRI
»
Læknir ekki á neyðarbílnum um nætur og helgar:
í um þriðjungi
tilfella skiptir
læknir miklu máli
Eins og fram hefur komið í fréttum
..tmunu verða til taks þrír neyðarbílar
á Borgarsjúkrahúsinu í tengslum við
leiðtogafundinn, einn fyrir hvom leið-
togann og einn fyrir almenning.
Sú þjónusta sem neyðarbíllinn veitir
dags daglega hefúr verið gagnrýnd
vegna þess að í honum er ekki læknir
um nætur, helgar og á helgidögum.
Lengi hefúr verið barist fyrir því að
fá þessu breytt en málið er stopp ein-
hvers staðar í kerfinu sökum þess að
ekki hefur fúndist leið til fjármögnun-
ar á þeim aukna kostnaði sem þetta
^hefði í för með sér.
„Viðvera læknis skiptir miklu máli
í þjónustu neyðarbílsins. I um þriðj-
ungi tilfella er nauðsynlegt að læknir
sé til staðar og í 10% tilfella er slíkt
lífsbjargandi," sagði Öskar Einarsson,
læknir á lyflækningadeild Borgarspít-
alans, í samtali við DV er hann var
spurður um þetta mál en hann hefúr
haft umsjón með daglegum rekstri
neyðarbílsins.
„Við höfúm lengi bent á nauðsyn
þess að læknir sé til staðar allan sólar-
hringinn og um helgar því alvarleg
slys eiga sér ekki síður stað þá en á
öðrum tímum og hin hefðbundna bæj-
arvakt nær ekki alltaf að anna álag-
inu,“ sagði Óskar.
Nýjasti neyðarbill Reykjavikurdeildar Rauða krossins.
„í þau þrjú ár sem við höfúm veitt
þessa þjónustu höfum við orðið varir
við að almenningur tekur þessu vel
og vill ekki að þetta leggist af. Hvað
fjármögnun á sólarhringsvakt læknis
á neyðarbíl varðar erum við að tala
um smápeninga miðað við þá fjármuni
sem eytt er í þjónustu innan spítal-
ans.“
f máli Óskars kom ennfremur fram
að þegar læknir er ekki á vakt í bíln-
um eru á honum tveir menn frá
slökkviliðinu sem sótt hafa sérstök
námskeið.
„Við höfum þjálfað upp hóp manna
hjá slökkviliðinu en þeir geta aldrei
komið í stað læknis, til dæmis í þeim
tilfellum þegar taka þarf afstöðu til
lyfjameðferðar," sagði Óskar.
-FRI
Hinir fimmtán ára gömlu krakkar, Ljósbrá, Margrét og Arnaldur, aðstoða jap-
anska fréttamenn. DV-mynd KAE.
Gott kaup í fréttamiðstöðinni í Hagaskola:
15árakrakkarfá
400 krónur á klst
„Okkur var sagt að við ættum að fa
400 krónur á tímann," sögðu krakk-
amir sem DV hitti í fréttamiðstöðinni
í Hagaskóla í gær.
Sex fimmtán ára skólakrökkum, sem
flest eru í fríi frá Hagaskóla, hefur
verið heitið 400 krónum í kaup á tím-
ann fyrir starf sitt í fréttamiðstöðinni.
„Við erum kallaðir sendlar en við
erum í alls konar stússi," sögðu þau
Ljósbrá, Margrét og Amaldur sem DV
spjallaði við.
„Mamma vinkonu okkar er f ein-
hverri nefnd. Hún bað vinkonu okkar
að finna einhverja krakka og hún
valdi okkur.“ -KMU
Kvikmynduðu íslendinga
að skemmta sér
Erlendu fréttamennimir, sem stadd-
ur em hérlendis þessa dagana, hafa
reynt að kynna sér hin ólíkustu mál,
meðal annars drykkjusiði íslendinga
og hvemig þeir láta þegar þeir
skemmta sér.
Kvikmyndatökumenn frá fjórum
stærstu sjónvarpsstöðvum Bandaríkj-
anna heimsóttu veitingahúsið Broad-
way á laugardagskvöld. Gáfu þeir sér
góðan tíma til að mynda gestina og
Sumargleðina sem þar skemmti.
Má búast við að umheimurinn fái
nú líka að kynnast þessari hlið mann-
lífsins hérlendis.
-KMU
Slökkviliðið með sama
viðbúnað og um áramót
- ekkert rætt við liðið af yfírstjóm
„Það hefur ekkert verið rætt við
okkur um leiðtogafundinn af hálfu
yfirstjómar enda vita allir að þetta er
gott slökkvilið," sagði Rúnar Bjama-
son slökkviliðsstjóri í samtali við DV
en allir sjúkrabílar borgarinnar og
neyðarbíll eru í umsjá slökkviliðsins.
Rúnar sagði að þeir hefðu fundað
sjálfir um þetta mál og ákveðið á þeim
fundi að hafa sama viðbúnað hjá sér
og er um hver áramót en þá þarf á
öllu liðinu að halda.
„Þó við gerum þetta að eigin frum-
kvæði búumst við í sjálfu sér ekki við
að þurfa á neinum sérstökum við-
búnaði að halda,“ sagði Rúnar.
-FRI
» -t
Gæti þurft að flytja bóm
milli félagsmiðstöðva
„Foreldrar hafa hringt mikið
hingað og spurst fyrir um hvað við
bjóðum upp á hér og hvenær sé
opið. Þeir virðast ekki vita um
þessa aðstöðu enn sem komið er,“
sagði Markús H. Guðmundsson,
umsjónarmaður starfceminnar í
félagsmiðstöðinni Frostaskjóli fyr-
ir bömin úr Melaskóla.
í Frostaskjóli er hægt að taka á
móti 50 bömum og ef fleiri koma
verður að flytja þau í aðrar félags-
miðstöðvar í bænum. I gær komu
níu böm fyrir hádegi og þegar DV
var þar eftir hádegi í gær voru
aðeins 24 böm mætt. „Hér fer ekki
fram kennsla heldur má segja að
við séum méð sumarstarf hér að
vetrarlagi, við förum í leiki og ger-
um ýmislegt skemmtilegt," sagði
Markús.
SJ
Verið var að lesa ævintýri fyrir krakkana í Frostaskjóli þegar DV leit þar inn
i gær. Krökkunum fannst fint að vera í frii frá skólanum og sögðu flest að
bæði mamma þeirra og pabbi væru úti að vinna. „Pabbi er alltaf að
vinna,“ sagði einn strákurinn. DV-mynd KAE