Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986. 5 Fréttir Samkeppnin milli sjónvarpsstöðva hefst á íslandi: Stöð tvö ætlar að sýna beintfrá komu Reagans Stöð tvö verður með beint sjónvarp frá komu Ronalds Reagan Banda- ríkjaforseta til Keílavíkur á morgun, fyrsta útsendingardaginn. Útsending stöðvarinnar verður ekki trufluð fyrstu þrjá dagana. „Við fáum merkið annaðhvort frá erlendum stöðvum eða RÚV,“ sagði Jónas R. Jónsson, dagskrárstjóri Stöðvar tvö. Fjöldi sjónvarpsstöðva á Keflavík- urflugvelli verður takmarkaður, lík- lega við þrjár. Þessar þrjár sjónvarps- stöðvar verða hins vegar að láta aðrar stöðvar fá afnot af útsendingunni. Stöð tvö verður síðar um kvöldið með umræðuþátt á ensku um leið- togafundinn undir stjóm hins kunna sjónvarpsmanns BBC, Magnúsar Magnússonar. Þátttakendur verða Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson prófessor og þrír erlendir fréttamenn, John Cocliran, NBC í Bandaríkjunum, Lariy Thorson, AP í London og Hanspeter Bom, Die Weltwoche í Sviss. „Það er viðbúið að dagskráin fari öll meirá og minna úr skorðum vegna leiðtogafundarins og kannski sérstak- lega á laugardag,“ sagði Jónas R. Jónsson. Athygli vekur að fréttatími Stöðvar 2 byrjar klukkan 19.25, fimm mínútum á undan fréttum ríkissjónvarpsins. Dagskrá nýju sjónvarpsstöðvarinn- ar er birt hér með þeim fyrirvara sem Jónas nefridi. Hugsanlegt er að gömul kvikmynd með Ronald Reagan í aðal- hlutverki verði sýnd um helgina ef hún kemur til landsins i tæka tíð. Stöð 2 á morgun Dagskrá Stöðvar 2 annaðkvöld verð- ur þessi: 19.20 Ávarp sjónvarpsstjóra. 19.25 Fréttir. 19.50 Bein útsending frá komu Banda- ríkjaforseta. 20.10 Equalizer. Bandarískur saka- málaþáttur. 21.30 Umræðuþáttur um leiðtogafund- inn. 22.00 He is not your son. Kvikmynd. 24.00 48 hours. Kvikmynd 01.30 Dagskrárlok. 18.25 Bulman. Breskur sakamálaþátt- ur. 19.25 Fréttir. 20.00 Miami Vice. Bandarískur saka- málaþáttur. 21.00 Northbeach and Rawhide. Bandarísk framhaldsmynd. 23.00 Deception I. Sjónvarpsmynd. 00.30 Faul Play. Kvikmynd. 02.00 Tónlistarþáttur. Music Box. 05.00 Dagskrárlok. Knattspymu- og handboltamaðurinn kunni, Heimir Karlsson, hefur verið ráðinn iþróttafréttamaður Stöðvar tvö. Föstudagur 17.30 Tónlistarþáttur. Music Box. 17.55 Teiknimyndir. Laugardagur 14.30 íþróttir. Umsjón Heimir Karls- son. 17.30 Tónlistarþáttur. Music Box. 17.55 Teiknimyndir. 18.25 Hitchcock-kvikmynd. 19.25 Fréttir. 20.00 Deception n. 21.00 Love Boat. Grínþáttur. 21.30 Lords of Dicipline. Kvikmynd. 23.00 Nighthawks. Kvikmynd. 00.30 Dagskrárlok. -KMU Gömul kvikmynd með Ronald Reagan í aðalhiutverki er á leið til landsins. Friðaivakning vegna leiðtogafundarins: Kertaljós í öllum skólastofiim Norðurlöndum MATREIÐSLU NÁMSKEIÐ Þú fœrö nú matreiöslunámskeiö aö láni, á VHS eða Beta myndbandi, meö Husqvarna örbylgjuofni. HANNER KOMINN AFTUR ©J HUSQVARNA ÖRBYLGJUOFNINN • Micronett örbylgjuofninn er þrisvar sinnum betri. • Helmingi rýmra ofnhólf (40 lítra). Brúnar matinn. • Sjálfvirk hitamæling. Ath. Góð greiðslukjör HUSQVARNAER HEIMILISPRÝÐI Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 91-35200 „Ég fékk hugmyndina á hestaferða- lagi í Finnlandi. Þegar tilkynningin um leiðtogafúndinn náði eyrum manna var ég stödd í Helsingfors og ég á ekki orð til að lýsa þeirri friðar- vakningu er varð meðal almennings þar í borg,“ sagði norski kennarinn Oddny Laukholm Holter sem hefur skipulagt friðarstund í öllum skólum Norðurlanda næstkomandi fóstudag. Verður kertaljós látið loga í hverri skólastofu í Noregi, Finnlandi, Dan- mörku og Svíþjóð frá því að skólar hefjast á föstudagsmorgni og þar til þeim lýkur þá um kvöldið. Aðspurð sagðist Oddny ekki vita hversu mörg kerti þyrfti í allar skólastofumar er DV ræddi við hana í sima frá Osló í gær. „Mér hefiir ekki enn tekist að kom- ast í samband við íslensku kennara- samtökin en ég vona svo sannarlega að þau taki þátt í þessu með okkur,“ sagði Oddny Laukholm og bætti þvi við að leiðtogunum yrði sent skeyti föstudaginn með ósk skólabama og þannig að þeir fengju í það minnsta kennara um frið á jörðu. að vita um öll kertin sem loguðu á -EIR Spicer HJÖRULIÐIR, DRAGLIÐIR OG TVOFALDIR LIÐIR KOMNIR! EINNIG SPINDILKÚLUR í BRONCO, BLAZER, DODGE,,SCOUT OG JEEP. 1 mmm i Mkrnm SENDUMí PÓSTKRÖFU. VARAHLUTAVERSLUNIN 0 3 7 2 7 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.