Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Útlönd
Innbrot
í vopnabúr
danska
hersins
Haukur L. Hauksacm, DV, Kaupmhcfci;
Stolið var um hundrað kílóuin
af sprengihylkjum, þrjátíu kílóum
af dínamíti og sex hundruð hvell-
hettum auk skothylkja fyrir byssur
frá danskri herstöð í Farum fyrir
skömmu.
Þjófnaðurinn uppgötvaðist fyrst
um helgina þar eð enginn fastur
vörður er um vopnageymsluna en
svæðið er annars vaktað af vopn-
uðum vörðum er aka um það
þrisvar til fjórum sinnum á sólar-
hring.
Vegna fækkunar fólks í hemum
hefur ekki verið hægt að vakta
vopnageymslu danska hersins all-
an sólarhringinn, og hefur það því
verið léttur leikur að brjótast inn
um þéttar jámdyr vopnageymsl-
unnar, ekki síst þar sem ljóst er
að þjófamir hafa vel verið búnir
að kynna sér tímaáætlun varð-
anna.
Ef sprengiefhið lendir í höndum
hryðjuverkamanna geta afleiðing-
amar orðið alvarlegar. Þijátíu kíló
af dínamíti nægja tO að gera yfir
tíu öflugar bflsprengjur.
Þvi hafa dönsk yfirvöld, með
leyniþjónustuna í broddi fylkingar,
nú sett allt í gang til að koma upp
um þjófana.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
vopnum er stolið úr vopnageymsl-
um danska hersins, en þó einn
stærsti þjófhaðurinn til þessa.
Framleiðendur þjófavamatækja
benda á að öruggar þjófavamir
þurfi ekki að kosta herinn nein
ósköp og að spamaður hersins á
því sviði sé hlægilegur ef litið er á
þjófiiaði sem þennan og þær hör-
mungar er hann getur leitt af sér.
Sameiginlegir
ólympíuleikar
Kóreuríkjanna?
Hafter eftir Juan Samranch, for-
seta alþjóða ólympíúnefiidarinnar
í gær, að talsmenn ólympíunefhda
Norður- og Suður-Kóreu hittist
fyrir áramót til að ræða mögulei-
kann á að skipta með sér að hluta
ólympíuleikunum sem fyrirhugað-
ir em í Suður-Kóreu árið 1988.
Suður-Kóreumenn hafa þegar
samþykkt að nágrannar þeirra í
Norður-Kóreu fai að vera vett-
vangur fjögurra íþróttagreina á
leikunum en Norður-Kóreumönn-
um finnst það ekki nóg, þeir vilja
fa að halda átta íþróttagreinar.
Aldursforseti
fallinn í valinn
Górillan Karólína, elsta górilla
sem vitað er um í dýragarði, 47 ára
að aldri, lést fyrir skömmu í dýra-
garðinum í Bronx í New York.
Haft er eftir talsmanni dýra-
garðsins að Karólína hafi lifað
mun lengur en gengur og gerist
meðal villtra stallsystra hennar í
frumskógum Afríku.
_____________________________________DV
Óttast áróðursbrellu
Sovétmanna vegna Afganistan
Reagan hét sovéskum andéfsmönnum stuðningi er tekið var á móti Orlov í Hvrta húsinu
Ólafur Amaison, DV, New Yoric
Nú er lokaundirbúningur fyrir
leiðtogafundinn í Reykjavík um
helgina hafinn hjá Bandaríkjafor-
seta. Reagan forseti hefur kvartað
undan því á undanfómum dögum
að tillögur er nú liggja fyrir þinginu
um hermál séu þess eðlis að Sovét>
menn muni ekki semja við Banda-
ríkjamenn, því Bandaríkjaþing sjálft
sjái um að veita Sovétmönnum það
er þeir sækjast eftir.
Nú er talið líklegt að fallið verði
frá hluta þessara tillagna um her-
mál, eða málatilbúningur þeirra að
minnsta kosti frystur fram yfir ára-
mót. Bæði er það að demókratar eru
hræddir við að það verði notað gegn
þeim í kosningabaráttunni fyrir
þingkosningamar í haust, að þeir
hafi bundið hendur Bandaríkjafor-
seta fyrirfram og komið í veg fyrir
að forsetinn gæti haft góð spil á
hendi á íslandi.
Einnig er rætt um það að demó-
kratar hafi verið fremur jákvæðari
gagnvart leiðtogafúndinum á Islandi
en ýmsir íhaldssamir repúblikanar.
Áhrif á þingkosningar
Annars er talið að niðurstöður
Reykjavíkurfundarins geti haft
vemleg áhrif, jafiivel úrslitaáhrif á
bandarísku þingkosningamar er hér
fára fram eftir tæpan mánuð.
Ef Bandaríkjaforseti kemur heim
með það er teljast kann „góður ár-
angur“ frá viðræðum sínum við
Sovétleiðtogann, telja menn líklegt
að repúblikanar haldi meirihluta
sinum í öldungadeildinni og bæti
jafnvel hlut sirrn í fulltrúadeildinni.
Gagnrýnismenn fundarins innan
flokks repúblikana óttast það hins
vegar að forsetinn komi tómhentur
frá íslandi, og það geti orðið til þess
að demókratar vinni á í kosningun-
um og nái jafhvel að fella meirihluta
repúblikana í öldungadeildinni, en
um slíkt mega repúblikanar ekki
hugsa.
Mikið hefúr verið rætt um það hér
í Bandaríkjunum hver verði helstu
umræðuefni leiðtoganna í Reykja-
vík. Ljóst er að afvopnunarmál verða
ofarlega á dagskránni og leggja Sov-
étmenn mikla áherslu á að á því
sviði náist raunverulegur árangur.
Víst er að sá vilji er einnig fyrir
hendi hjá Bandaríkjamönnum.
Reagan hefúr þó lýst því yfir að
hann muni leggja inikla áherslu á
aðra þætti í samskiptum stórveld-
anna, svo sem sovéskt herlið í
Afganistan og mannróttindamál í
Sovétríkjunum sjálfúm.
Lofar andófsmönnum
stuðningi
I móttöku í Hvíta húsinu í gær, þar
sem Reagan tók formlega á móti
Yuri Orlov og konu hans, hét forset-
inn því að hann myndi gera mál
sovéskra andófsmanna og gyðinga
að mikilvægu umræðuefiú á fúndin-
um með Gorbatsjov.
Sévardnadse, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, hefúr einnig lýst því
yfir að Sovétmenn búist við því að
rætt verði um mannréttindamál, svo
og Afganistanmálið og að þeir séu
tilbúnir að ræða þessi mál.
Hann hefúr einnig lýst því yfir að
á næstunni megi búast við því að
hluti liðs Sovétmanna í Afganistan
verði kallað heim.
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, lýsti í gær áhyggjum sínum
yfir því að Sovétmenn hygðust um
helgina tilkynna um heimköllun
verulegs hluta sovéska herliðsins frá
Afganistan, og nota það sem auglýs-
ingabrellu til að létta á þrýstingi
Bandaríkjamanna vegna Afganist-
anmálsins.
Bandarískir fréttaskýrendur telja
nú ljóst að leiðtogafúndurinn í
Reýkjavík verði alvöru leiðtoga-
fundur, þar sem rætt verður um
alvarleg mál, en ekki eingöngu dag-
skrá væntanlegs síðari leiðtogafúnd-
ar er miðað er að að haldinn verði
í Bandaríkjunum fyrir árslok.
Lokaundirbúningur Bandarikjaforseta fyrir Reykjavíkurfundinn stendur nú sem hæst. A þessari teikningu, er birtist
í Svenska Dagbladet eftir helgina, kemur fram að Bandaríkjaforseti hefur að mörgu að hyggja fyrir Reykjavíkur-
fundinn.
Danir frysta fé til
byggingarframkvæmda
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmhöfa
Danska ríkisstjómin stöðvaði á
föstudag allar byggingarfram-
kvæmdir á vegum hins opinbera þar
eð ofvöxtur þótti vera á mörgum
stöðum og þar allverulega farið fram
úr fjárlögum. Húsnæðis- og bygg-
ingamálaráðherra Dana, Thor
Petersen, segir stöðvimina verða
eins skamma og möguleiki er á .
A hún að fría ríki ög sveitarfélög
frá bindandi samningum svo að
byggingarframkvæmdir minnki um
fimmtán prósent á næsta ári.
Hefúr stöðvunin mætt mikilli and-
stöðu aðila byggingariðnaðarins og
talsmenn hans tala um karatehögg
gegn honum. Leiðtogar stéttarfélaga
sjá fram á aukið atvinnuleysi og
kalla þetta paniklausn á léttvægu
vandamáli.
Aðilar byggingariðnaðarins benda
á að stöðvunin sé vitlaust tímasett
þar eð framkvæmdir séu hægt á nið-
urleið nú þegar og komi stöðvunin
til með að skapa aðgerðaleysi í vetur.
Kókaínherferð í
Karabíska hafínu
Bandaríska strandgæslan með að-
stoð sjóhersins hefur nú hafið um-
fangsmikla herferð gegn eiturlyfja-
smyglurum er fram að þessu hafa
athafnað sig í Karabíska hafinu og
undan ströndum Kólumbíu að því er
fram kemur í fréttatíma bandarísku
CBS sjónvarpsstöðvarinnar í gær-
kvöldi.
I fréttinni er fullyrt að nú sé ný
uppskera kókaíns að flæða yfir Banda-
ríkjamarkað og sé herferðinni ætlað
að stemma stigu við innflutningi nýju
uppskerunnar til Bandaríkjanna.
Mexíkönsk yfirvöld neituðu Banda-
ríkjastjóm um þátttöku í herferðinni
og segir CBS að hætt sé við að slíkt
kunni að grafa undan árangri eitur-
lyfjaherferðarinnar.
Bandarisk sfjómvöld skipuleggja nú mikla herferð gegn eifurlyfjasmyglurum
í Karabíska hafinu, er beita nú öllum brögðum við að koma nýrri kókainupp-
skem á markað i Bandaríkjunum.