Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Fréttir
Eitt af 11 herbergjum á Royal Inn.
DV-myndir KAE
Royal Inn hótel á laugavegi:
Hækkaði herbergi
úr 35 í 220 dollara
- að scgn blaðamanns á Glasgow Herald
„Ég vil ekkert gefa upp verð hjá
mér vegna leiðtogafundar," sagði
Sólveig Clausen sem rekur hótelið
Royal Inn eða Gistihúsið, Laugvegi
11.
Hins vegar hafði blaðamaður, sem
starfar á skoska blaðinu Glasgow
Herald, samband við DV og sagðist
hafa hringt á Royal Inn, skömmu
eftir að ljóst var að leiðtogafundinn
ætti að halda í Reykjavík, og spurt
um verð á herbergi. Þá voru honum
gefiiar þær upplýsingar að herbergi
með morgunverði kostaði 35 dollara,
eða rúmar 1400 krónur nóttin.
Blaðamaðurinn hugsaði malið í
rúma hálfa klukkustund, hringdi
aftur til Royal Inn og ætlaði að stað-
festa pöntun á eins manns herbergi.
Þá var verðið á herberginu komið
upp í 50 dollara eða rúmar 2000
krónur fyrir nóttina.
Síðan gerðist það að maðurinn
hringdi í þriðja skipti nokkrum dög-
um seinna og boðaði komu sína í
dag. Þá var honum sagt á Royal Inn
að herbergið kostaði 220 dollara eða
tæpar 10 þúsund fyrir nóttina, en
ekki 50 dollara.
Ritstjórinn á Glasgow Herald gat
ekki samþykkt svona háan gisti-
kostnað þannig að þessi blaðamaður
kemur ekki til landsins.
DV bar sögu blaðamannsins upp
við Sólveigu Clausen. Hún vildi ekk-
ert um málið segja. .jjg
í dag mælir Dagfari
Sum hótelherbergi hækka um meira en 50%
Hjá þeim hótelum sem tekin voru
leigunámi, Hótel Sögu, Hótel Loftleið-
um og Hótel Esju, hefur verð á gist-
ingu hækkað verulega vegna
leiðtogafundarins.
Hjá Hótel Esju kosta nú öll her-
bergi, bæði 1 manna og 2 manna, 126
dollara eða 5.166 krónur nóttin með
morgunverði. Áður var verðið á 1
manns herbergi með morgunverði um
60 dollarar eða 2.460 krónur og 2
manna herbergi kostaði 75 dollara eða
3.075 krónur.
Á Hótel Loftleiðum er einnig fast
verð á öllum herbeijum, það sama og
á Hótel Esju, eða 126 dollarar með
morgunverði. 1 sumar kostaði 1 manns
herbergi á Hótel Loftleiðum 71 dollar
með morgunverði og 2 manna her-
bergin 101 dollar, en talað hafði verið
um að vetrarverðið yrði fyrir 1 manns
herbergi 57 dollarar eða um 2.300
krónur og 75 dollar&r eða um 3000
krónur fyrir 2 manna herbergi.
Á Hótel Sögu kostar nú 1 manns
herbegi 105 dollara með morgunverði
eða 4.305 krónur og 2 manna herbergi
126 dollara eins og á hinum hótelunum
tveimur. Samkvæmt upplýsingum hjá
móttökunni á Hótel Sögu hefur ekki
orðið mikil hækkun vegna leiðtoga-
fundarins, þannig hafi 1 manns
herbergi áður kostað 96 dollara eða
tæpar 4 þúsund krónur með morgun-
verði og 2 manna herbergi hafi kostað
119 dollara eða um 4.900.
Hótelin, sem tekin voru leigunámi,
hafa sem sagt hækkað verð fyrir sum
herbergin sín um meira en helming
vegna leiðtogafundarins. -KB
Leiðtogafundarverð og venjulegt verð
Önnur hótel virðast ekki hafa
hækkað gistikostnað eins mikið og
leigunámshótelin þijú, Hótel Saga,
Hótel Loftleiðir og Hótel Esja.
Á Hótel Óðinsvéum fengust þær
upplýsingar að verði hefði ekki verið
breytt en að sumarverð yrði í gildi
ffam yfir leiðtogafund. Eins manns
herbergi kostar þar um 57 dollara, eða
um 2.330 krónur með morgunverði, og
tveggja manna herbergin kosta 87
dollara, eða um 3.600 krónur nóttin.
Nú þegar er orðið alveg fúllt á Hótel
Óðinsvéum og fullbóicað ff am yfir leið-
togafúnd.
Á Hótel Borg kostar tveggja manna
herbergi núna um 108 dollara með
morgunverði, eða tæpar 4.500 krónur,
en kostaði 95 dollara eða um 3.900
krónur. Eins manns herbergi hafa
hækkað um 10 dollara, úr 74 í 84 doll-
ara með morgunverði. Þeir sem voru
búnir að bóka herbergi áður en leið-
togafúndur kom til og vilja ekki hliðra
til og koma seinna munu borga hótel-
inu samkvæmt gamla verðinu. Þeir
sem koma vegna leiðtogafundar borga
á nýja verðinu.
City hótel hefur hækkað sumarverð
sitt um 20% vegna leiðtogafundarins,
tveggja manna herbergi kosta nú um
83 dollara með morgunverði, eða um
3.400- krónur nóttin. Eins manns her-
bergi kostar 58 dollara nóttin með
morgunverði, eða um 2.400 krónur.
Hótelið verður fullsetið nsestu daga.
-KB
Leigunámshótelin
„Það hefði ekki þurft að vísa öllu
þessu fólki ffá. Við höfum verið með
um 100 herbergi laus í gær og dag sem
hefði mátt nýta. Hótelið verður hins
vegar fúllt frá og með morgundeginum
og þar til leiðtogafúndurinn er yfir-
staðinn," sagði starfsmaður í móttöku
Hótel Ijoftleiða í samtali við DV.
Starfsmaðurinn á Loftleiðum sagði
að reynt hefði verið að ná til þess fólks
aftur sem hefði ætlað að gista á hótel-
inu fram á fimmtudag. Dæmi eru um
fólk sem búið var að koma sér fyrir á
einkaheimilum en hætti við og kom
aftur á Loftleiðir er ljóst var að til
voru laus herbergi þrátt fyrir allt.
Svipaða sögu er að segja um hin
leigunámshótelin, þau hefðu ekki
þurft að vísa öllum ffá. Á Hótel Esju
voru t.d. á milli 10 og 20 herbergi laus
aðfaranótt mánudags og þriðjudag og
með laus herbergi
eitthvað var laust síðustu nótt.
Á Hótel Sögu hafa verið um 50 her-
bergi laus undanfamar nætur.
Ástæðan fyrir lausum herbeijum mun
einnig vera sú að.eitthvað hefúr verið
um afbókanir hjá þeim sem pantað
höfðu vegna leiðtogafúndar.
„Ríkið mun ekki greiða kostnaðinn
af lausum herberjum þótt hótelin hafi
verið tekin leigunámi. Hótelin bera
sjálf skaðann af því,“ sagði Konráð
Guðmundsson, hótelstjóri á Hótel
Sögu. Að sögn Konráð ákváðu leigun-
ámshótelin sjálf verð á herbergjunum.
Ríkisvaldið hafði enginn afskipti af
því. Það var óformleg ákvörðun for-
svarmanna hótelanna þriggja að hafa
sama verð á tveggja manna herbeijum,
eða 126 dollara, 5.166 krónur nóttin
með morgunverði.
-KB
Engar veislur, takk
Nú er brátt að verða ljóst að fúnd-
ur Reagans og GorbatsjOvs er stærsti
atburður hér á landi fyrr og síðar.
Fundurinn er jafiivel enn merkilegri
heldur en kristnitakan árið þúsund
og langtum, langtum merkilegri
heldur en fundur Nixons og
Pompidous. Þegar kristnitakan fór
fram voru engir fréttamenn mættir
og þegar Nixon og Pompidou hittust
voru engar beinar sjónvarpsútsend-
ingar. Það má einna líelst líkja
leiðtogafundinum við stofnun al-
þingis, en þá fór Grímur geitskór um
landið allt og farrn Þingvelli sem
heppilegan fundarstað. Fujltrúar
leiðtoganna hafa einnig leitað að
góðum fundarstað og fundu Höfða.
Þannig munu Þingvellir og Höfði
verða í framtíðinni merkilegustu
sögustaðimir á íslandi og ekki er
ólíklegt að Höfði muni hafa vinning-
inn þegar fram líða stundir, þó ekki
sé af öðru en því að þar er meiri
draugagangur en á Þingvöllum.
Hingað eru komnir hundruð ef
ekki þúsundir erlendra fréttamanna
sem vitaskuld er ánægjulegt fyrir
okkur íslendinga. Bæði Reagan og
Gorbatsjov hafa gefið það út að eng-
ar fréttir eða fréttatilkynningar
verði gefiiar út af fúndinum og alls
ekki við því að búast, því mennimir
em eingöngu að hittast til að spjalla
saman um það sem þeir ætla að
ákveða seinna meir. Maður veltir
því fyrir sér hvað hefði eiginlega
gerst, ef frétta væri að vænta af þess-
um fundi, þegar slíkt stóð af frétta-
mönnum og ljósmyndurum leggur
leið sína hingað á tíðindalausan
snakkfund. En kosturinn við frétta-
leysið af fundinum er hins vegar sá
að í staðinn hljóta fréttamennimir
að beina kastljósi sínu að þjóðinni
sem býr hér. Nú er um að gera að
gefa rétta mynd af okkur.
Það var til dæmis afar óheppilegt,
þegar sjónvarpsstöðvamar banda-
rísku heimsóttu okkur síðast, að
tekin var sjónvarpsmynd af ölvuðum
unglingum í miðbænum og birtist sú
mynd um Bandaríkin þver og endi-
löng og var slæm íslandskynning.
Þetta má ekki gerast aftur og em
bæði unglingar og fullorðnir ein-
dregið hvattir til að stilla drykkju
sinni í hóf og haga sér siðsamlega
mn þessa helgi, svo útlendingamir
fa.i rétta mynd af þjóðinni. Helst
ættu íslendingar alls ekki að láta sjá
sig á götum úti um þessa helgi, svo
myndin verði örugglega rétt, enda
er það vísasti vegurinn til að röng
mynd verði dregin upp af þjóðinni
ef fólk er á ferli. Raunar hefúr Stein-
grímur ferðamálastjóri eindregið
beðið um að fólk haldi sig innan-
dyra, enda veit hann manna best
hvað það hefur í för með sér ef ís-
lendingar sjást.
Þeir Reagan og Gorbatsjov hafa
sennilega séð myndina af ofúrölva
æskulýðnum og hafa haft spumir
af drykkjuskap íslendinga á góðra
vina fundi, því þeir hafa afþakkað
allar veislur meðan á dvöl þeirra
stendur. Þetta er meiriháttar áfall
fyrir bæði Steingrím og Vigdísi, svo
ekki sé talað um alla kokkana og
útflutningsráðið, sem höföu hugsað
sér gott til glóðarinnar með því að
bjóða upp á íslenskan mat í fínum
veislum. Þær veislur áttu að vera
' innandyra með völdu fólki, þannig
að landinn hefði ömgglega sýnt á
sér rétta mynd. í veislunum áttu
þeir einir að mæta, sem kunna borð-
siði og hafa verið á Vogi, þannig að
fullvíst mátti telja að enginn yrði
þjóðinni til skammar, nema þá fyrir
þá sök að vera eins og hann á ekki
að sér að vera. Það er finast í svona
veislum og gefur rétta mynd af þjóð-
inni.
Annars hefúr Dagfari grun um að
orsökin fyrir því að veislur em af-
þakkaðar sé sú að þeir félagamir
hafi haft spumir af matseðlinum.
Gorbatsjov hefur augsýnilega óttast
að þurfa að éta saltsíld í forrétt og
aðalrétt og Reagan hefði átt von á
lambakjöti og hvalkjöti. Ameríkan-
amir á vellinum hafa verið búnir að
vara hann við lambakjötinu, sem
þeir hafa hingað til neitað að éta
niðurgreitt og allir í Bandaríkjunum
vita að íslendingar hafa verið að éta
hvalkjöt f vísindaskyni og eiga nóg-
an afgang. Þeir em þar að auki
hingað komnir til að semja um frið,
bæði á mönnum og hvölum, og það
yrði saga til næsta bæjar fyrir græn-
friðunga ef Reagan étur friðaðan
hval í nafni vísindanna.
Já, veislumar em afþakkaðar, en
getur ekki Edda Steingrímskona
boðið þeim strákunum í mat? Hún
verður hvort sem er með Raisu ‘í
kostgangi
Dagfari