Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTOBER 1986.
Um borð fer vel um farþegana. Nancy er fremst en fjær til vinstri situr forsetinn að spjalli við John Connally ríkisstjóra.
Feningamarkaöur
VEXTIR (%> hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækur óbundnar 8-9 Ui
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ah.Lb.Vb
6 mán. uppsögn 9,5-13,5 Vb
12 mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað í S-5 mán. 8-13 Ab
Sp. í 6 mán. og m. 9-13 Ab
Ávisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3,5 U)
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalur 5-7 Ab
Sterlingspund 8,75-10,5 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 3,54 Ab
Danskar krónur 7-9 Ib
Utlán óverötryggð
Almennir víxlarjforv.) 15,25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge Allir
Almenn skuldabréf(2) 15,5 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 15,25 Allir
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að 2.5 árum 4 Allir
Til lengri tíma 5 Allir
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 15
SDR 7,75
Bandarí kjadalir 7,5 —
Sterlingspund 11,25
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskírteini
3ja ára 7
4ra ára 8,5
6ára 9
Með vaxtmiðum(4 ár) 8,16
Gengistryggð(5 ár) 8,5
Húsnæðislán 3,5
Lifeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala 1509 stig
Byggingavisitala \ Húsaleiguvisitala 281 fftig
Hækkaði 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokiimi jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Almennar tryggingar 111 kr.
Eimskip 216 kr.
Flugleiðir 152 kr.
Hampiðjan 131 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til upp-
gjörs vanskilalána er 2% bæði á verð-
tryggð og óverðtryggð lán. Skammstaf-
anir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb=Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtudög-
um.
Sérhönnuð forsetaflugvél
flytur Reagan til íslands
flugvél Bandaríkjaforseta, er af gerðinni Boeing 707.
Gorbatsjov kemur með flugvél Aeroflot, hugsanlega þessari af gerðinni llyus-
hin-86.
Veifað úr landganginum. Skjaldarmerki forsetans er á hurðinni.
Air Force One er hún kölluð, einka-
þota Bandaríkjaforseta. Hún er af
gerðinni Boeing 707 og orðin fjórtán
ára gömul. Áætlað er að hún lendi
með Ronald Reagan á Keflavíkurflug-
velli klukkan 20 annað kvöld.
Ekki var í gær vitað með hvaða flug-
vél Gorbatsjov Sovétleiðtogi kemur
með. Ríkisflugfélagið Aeroflot leggur
honum til flugvél þegar hann þarf að
ferðast milli landa.
Aeroflot er nánast hluti af sovéska
hemum. Er talið víst að herinn búi
flugvél Sovétleiðtogans þannig úr
garði að auðvelt verði að senda úr
henni fyrirskipanir og taka við mikil-
vægum skilaboðum sem varða stjóm
ríkisins.
Ilyushin 86 undir Gorbatsjov?
Hugsanlega verður það breiðþotan
Ilyushin 11-86 sem notuð verður til að
flytja Gorbatsjov til íslands. Hún er á
stærð við DC-10 en með Ijóra hreyfla
á vængjunum.
Aeroflot tók þessa flugvélartegund í
notkun árið 1980. Hún tekur allt að
350 farþega í sæti. Fyrir Gorbatsjov
yrði hún væntanlega ekki svo þröngt
innréttuð.
Boeing 707 hefur verið forsetaþota
Bandaríkjanna Irá því að John F.
Kennedy var forseti. Það var árið 1962
sem bandaríski flugherinn fékk sér-
smíðaða þotu af þessari gerð fyrir
forsetann. Hlaut hun fljótlega nafnið
Air Force One þrátt fyrir að hún hefði
númerið 26000.
I þessari flugvél sór Lyndon Johnson
embættiseið þegar Kennedy hafði ve-
rið myrtur. Með henni fór Richard
Nixon í hina sögufrægu ferð sína til
Kína.
Árið 1972 tók flugherinn við nýrri
Boeing 707 fyrir forsetann. Hún fékk
númerið 27000. En eins og gamla vélin
er hún yfirleitt kölluð Air Force One.
Með henni kom Nixon til íslands
árið 1973 og með henni kemur Reagan
til Islands á morgun.
Svefnherbergi
í flugvél Reagans
Þotan er sérstaklega innréttuð fyrir
forsetann. Auk fullkomins fjarskipta-
búnaðar hefur forsetinn um borð
einkaskrifetofu og svefhherbergi.
í flugvélinni er einnig rými fyrir
aðstoðarmenn forsetans, fréttamenn
og aðra gesti sem forsetinn kýs að
bjóða með.
í grein, sem nýlega birtist í tímariti
Amarflugs um forsetaþotuna, segir að
gríðarlega eftirsótt sé að ferðast með
Flugher 1. Boð um slíkt þyki mikill
heiður.
Um borð séu ýmsir hlutir merktir
með skjaldarmerki forsetans og Air
Force One, til dæmis borðbúnaður,
öskubakkar, servíettur og eldspýtur.
Þess sé gætt að hafa alltaf til nægar
varabirgðir af þessum hlutum því að
jafhvel háttsettustu menn geti ekki
stillt sig um að taka með sér minjagrip.
Undir ströngu eftirliti
Boeing 707-þotur eru yfirleitt komn-
ar úr notkun í farþegaflugi. Þær em
gamlar og eyðslúfrekar. Flugvél for-
setans hefur hins vegar ekki verið
flogið eins mikið og venjulegum far-
þegavélum. I árum talið ætti hún því
að hafa lengri líftíma.
Flugvél Bandaríkjaforseta hefúr
aldrei hlekkst á. Hjólbarði hefúr ekki
einu sinni spmngið á henni. Enda er
engin önnur þota í heiminum talin
njóta eins mikils eftirlits.
Líkur em á því að skipt verði um
forsetaflugvéí eftir eitt til tvö ár. Er
talið að Hvíta húsið muni fá fil um-
ráða júmbóþotu eða Boeing 747.
Flugherinn hefúr þegar nokkrar slíkar
til að nota sem stjómstöðvar í styrjöld.
-KMU