Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
7
DV
Hraðfrystihús Keflavíkur:
Þurfa 130
mmum * m
milljomr
í reksturinn
„Málið er i athugun hjá okkur Vilhjálmur Ketilssonar, bæjar-
og ekkert meira hægt um það að stjóri í Keflavík, sagði í samtali
segja á þessu stigi,“ sagði Gunnar við DV að eigendur hússins hefðu
Sveinsson, stjómarformaður ekki verið ánægðir með hvemig
Hraðfrystihúss Keflavíkur, í sam- bæjarstjóm afgreiddi þetta mál af
tali við DV en frystihúsið er eitt sinni hálfii. Sögðu þeir að ef þeim
þeirra sem ekki fengu fyrirgreiðslu tækist að útvega 110-115 milljónir
hjá Byggðasjóði þar sem eigendum þyftu þeir ekki á aðstoð bæjarins
þess tókst ekki að fá nýtt fé inn í að halda.
fyrirtækið á móti nýju láni. Rekstur hraðfiystihússins er
Hraðffystihúsið þarf nú um 130 með eðlilegu móti sem stendur.
milljónir króna til að koma rekstr- Fynrtækið rekur tvo togarara og
inum í eðlilegt horf. Bæjarstjóm hefúr rekstur þeirra gengið mjög
Keflavíkur hefur ákveðið að leggja vel á árinu, þeir hafa aflað vel og
fram 15-20 milljónir svo framar- ytri aðstæður til reksturins hafa
lega sem eigendum hússins takist verið með besta móti eins og fram
að útvega 110-115 milljónir en ekki hefiir komið í fréttum.
er ljóst hvort það takist. Rekstur frystingarinnar er hins
Guðmundur Malmquist, forstjóri vegar slæmur vegna hinnar erfiðu
Byggðasjóðs, sagði í samtali við skuldastöðu. Samkvæmt heimild-
DV að ef eigendum húsins tækist um DV heldur útgerðarþátturinn
að útvega þetta nýja fé kæmi til í rekstrinum fyrirtækinu nú á floti
greina að þeir fengju eitthvað af. en til að koma fiskvinnsluþætti
þeim 300 milljónum sem áformað þess í eðlilegt horf verður að afla
er að veita til frystihúsanna á fyrrgreindra 130 milljóna króna.
næsta ári. -FRI
Sjallinn, hinn þekkti skemmtistaður, fer væntanlega á uppboð innan tiðar.
Sjallinn á uppboð
Jén G. Hauksaon, DV, Akureyri:
„Ég veit ekki annað en að uppboðið
fari fram, það er gengið út frá því að
svo verði. Við auglýsum uppboðið á
mánudaginn," sagði Elías I. Elíasson,
bæjarfógeti á Akureyri, í gær um fyrir-
hugað nauðungaruppboð á veitinga-
húsinu Sjallanum á Akureyri
föstudaginn 17. október nk.
„Þetta er annað og síðasta upp-
boðið,“ sagði Elías.
Lógreglan leitaði
að mús
Þau geta verið af ýmsum toga verk-
efiún sem lögreglan í Reykjavík fær
inn á borð til sín. I fyrrinótt hringdi
kona til lögreglunnar og bað hana um
að losa sig við mús úr íbúð sinni.
Brugðist var snarlega við erindinu og
þrír lögreglumenn fóru á staðinn en
þrátt fyrir ítarlega leit fannst músin
ekki.
í samtali við lögreglu fékkst ekki
uppgefið hvar músarinnar var leitað
en þess getið að um „heldrimanna“
mús í vesturbænum hefði verið að
ræða. -FRI
Fréttir
i þessu húsi, Ráðherrabústaðnum við Tjamargötu, munu Vigdis Finnbogadóttir og Steingrímur Hermannsson ræða við
þá Gorbatsjov og Reagan.
Islensk sendinefnd
tekur á móti Reagan
og Gorbatsjov
Steingrímur Hermannsson og Vig-
dís Finnbogadóttir munu ræða við
Reagan um fimmleytið á fostudag eða
fljótlega eftir þingsetninguna. Sams
konar viðræður munu þau eiga við
Gorbatsjov á föstudagskvöld. Líklega
verða þessir fundir í Ráðherrabú-
staðnum við Tjamargötu.
Reagan kemrn- til landsins á fimmtu-
dag. Lendir vél hans í Keflavík um
klukkan 19. Það verða Vigdís Finn-
bogadóttir, Steingrímur Hermannsson
og Matthías Á. Mathiesen sem taka á
móti Reagan ásamt ráðuneytisstjórum
og forsetaritara. Reagan mun svo
halda til Reykjavíkur í sendiherrabú-
stað Bandaríkjanna við Laufásveg.
Búist er við að Reagan hvíli sig á
fimmtudagskvöld og einnig á föstudag
eða þar til hann hittir Vigdísi og Stein-
grím.
Gorbatsjov og Raisa, kona hans,
munu lenda í Keflavík upp úr klukkan
19 á föstudag. Sama móttökunefnd'
mun bjóða hann velkominn og að því
loknu mun hann fara til bústaðar síns,
sem ekki er alveg frágengið hvar verð-
ur. Tveir staðir koma til greina eins
og kunnugt er, Hótel Saga og
skemmtiferðaskipið Baltica. Síðan
mun hann hitta Steingrím og Vigdísi.
Fundimir hefjast svo á laugardag.
Sá fyrsti hefst klukkan 10 og annar
um klukkan 16. A sunnudag verður
svo þriðji fundurinn klukkan 11. Búist
er við að leiðtogamir ræðist við í um
tvær klukkustundir í senn.
Reagan heldur svo heim á leið um
klukkan 15 á sunnudag en Gorbatsjov
og Raisa ekki fyrr en undir kvöld þann
sama dag.
-KÞ
Alreikningur Iðnaðarbankans:
Nú þarf ekki að skrifta
fyrir bankastjóranum
Nýjung Iðnaðarbanka íslands hf.,
alreikningur, hefur meðal annars í för
með sér þau hlunnindi að viðskipta-
vinurinn getur fengið 100 þúsund
króna lán eftir sex mánaða viðskipti
án þess að bera það undir banka-
stjóra. Með sama hætti er hægt að fó
50 þúsund króna lán eftir þijá mán-
uði. Annars sameinar alreikningur
marga reikninga i einum.
Þessum reikningi tilheyra sérprent-
uð tékkhefti með nafni viðkomandi
viðskiptavinar, heimilisfangi og reikn-
ingsnúmeri. Ábyrgist bankinn inn-
lausn slíkra tékka að upphæð allt að
3.000 krónum. Hægt er að færa fé milli
reikningsforma. Reikningnum fylgir
færslubók og við stofhun fær við-
skiptavinur seðlaveski fyrir tékkhef-
tið, færslubókina, lykilkort, önnur
greiðslukort, lausafé og annað sem til-
heyrir.
Þjónustugjald er 150 krónur á món-
uði. Innifalin em 10 sérprentuð
tékkhefti á ári og áðumefnd gögn. Þá
em vextir af innstæðum á alreikningi
reiknaðir daglega í staðinn fyrir
lægstu stöðu ó 10 daga tímabili eins
og venjan er. Þá reiknast hækkandi
vextir á hækkandi innstæðu og nó
þeir 9% við 15.000 króna innstæðu.
Hluthafar í bankanum fá raunar pró-
senti meira eigi þeir 5.000 króna hlut
eða meira.
HERB
Póstur og sími
Álagið að færast
nær Höfða
Errnþá em að berast pantanir til
Pósts og síma um símtæki víðs vegar
um bæinn fyrir erlenda fréttamenn.
Að sögn Ágústs Geirssonar, sím-
sfjóra í Reykjavík, em erlendu
stöðvamar nú famar að biðja um
símtæki við pallana við Höfða og á
ýmsum stöðum nær fundarstað leið-
toganna.
„Við höfúm þurft að breyta ýmsum
áætlunum vegna þessa þar sem við
höfðum gert róð fyrir að fundurinn
yrði á Hótel Sögu. Við erum búnir
að bæta við töluverðu af línum í
kringum í Höföa þannig að við erum
tilbúnir ef við þurfum að bæta við
símtækjum þar í nágrenninu," sagði
símstjóri Reykjavíkur. SJ