Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Uúönd
Evrópsk dagblöð bjartsýn
á nýtt tímabil slökunar
Telja íslandsfund þar geta orðið vendipunkt
Fréttaskýrendur og stjómmálaleiðtogar í Evrópu, er fjallað hafa um samskipti stórveldanna að undanfömu, em
bjartsýnir á nýtt tímabil slökunar. Telja þeir að nú riki raunverulegur sáttavilji í Kreml og Hvita húsinu og að
fundur Reagans og Gorbatsjovs á íslandi um helgina kunni hugsanlega að verða vendipunktur nýs slökunartímabils.
Leiðtogafundurinn á íslandi um
helgina er hvarvetna í brennidepli.
Fjölmiðlar í nágrannaríkjum okkar
í Evrópu hafa nokkuð fjallað um
fundinn á íslandi að undanfömu.
Þar velta fréttaskýrendur, stjóm-
málamenn og almenningur fyrir sér
stöðunni eins og hún er í dag í sam-
skiptum austurs og vesturs og á
hvaða hátt íslandsföndurinn gæti
þar á einh vem veg breytt stöðunni.
Bjartsýni ríkjandi
Ef litið er til umfjöllunannnar í
evrópskum dagblöðum síðustu daga
má segja að hún einkennist af bjart-
sýni og er það almennt álit frétta-
skýrenda að tímabil slökunar í
samskiptum Bandaríkjanna og Sov-
étríkjarma sé nú í uppsiglingu. Kann
íslandsföndurinn að verða þar merk-
ur vendipunktur, segja fréttaskýr-
endur.
John Keegan, fastur dálkahöfund-
ur um hermál í breska blaðinu Daily
Telegraph, íjallar um íslandsfundinn
í lok síðustu viku þar sem hann spá-
ir gagnkvæmum samningi stórveld-
anna um fækkun meðaldrægra
flauga í Evrópu og að drög að slíkum
samningi verði lögð á Islandi um
helgina.
Breska blaðið Guardian, sem telst
vera ögn vinstra megin við miðju í
breskri stjórmálaumræðu, tekur
undir spádóma um samning um
fækkun meðaldrægra flauga og föll-
yrðir að samningur náist um meiri
fækkun en fram að þessu hafi verið
taldar líkur á. í leiðara Guardian
síðastliðinn fimmtudag segir meðal
annars að vilji ríki nú hjá báðum
stórveldunum um að leggja á sig
varanlegar fómir til að komast að
varanlegu samkomulagi um afvopn-
unarmál.
Haukarnir sigraðir?
Breska blaðið Daily Mail, sem yfir-
leitt er talið hallt undir íhaldsflokk-
inn, lofar bæði Reagan og Gor-
batsjov fyrir sáttfysi og framgöngu
í afvopnunarmálum í leiðara um síð-
ustu helgi og segir að báðum leið-
togunum hafi tekist að vinna bug á
„haukum" í eigin röðum er telji lítið
gagn í þeim leiðtogafundum sem fyr-
irhugaðir em á Islandi og svo síðar
á árinu í Bandaríkjunum.
Vestur-þýskt dagblað, vinstra
megin við miðju, lýsir svipuðum
skoðunum og koma fram í Daily
Mail. Þar segir að farsæl lausn Dani-
loff- og Sakharov-málsins hafi verið
bitur „ósigur fyrir haukana í
Moskvu og Kreml“ og jafnframt sig-
ur beggja stórveldanna.
Haft var eftir Helmut Schmidt,
fyrrum kanslara Vestur-Þýskalands,
á fundi með fréttamönnum í Dan-
mörku, er tekist hafði að semja um
lausn blaðamannsins Daniloff, að
honum væri mikill léttir í því að
stórveldin hefðu getað komið sér
saman um viðunandi lausn í jain
fáránlegu máli og Daniloff-málið
hefði verið allt saman.
Parísarblaðið Le Monde tekur aft-
ur á móti í nokkuð annan streng,
er það fjallar um samskipti stórveld-
anna eftir að íslandsfundurinn var
ákveðinn. Segir blaðið takmarkaðs
árangurs að vænta á Reykjavíkur-
fundinum, sem frekar verði sviðsetn-
ing fremur en árangursrík fúndahöld
og skoðanaskipti. Segir Le Monde
ennfremur að leiðtogamir hafi fyrst
og fremst fallist á að fúnda í Reykja-
vík til að hafa áhrif á stjómmála-
ástandið í eigin herbúðum og bæta
ímynd sína þar.
Vara við „Daniloff-brögðum“
Le Monde varar ennfremur við
fleiri “Daniloff-brögðum" Sovét-
manna í framtíðinni og að Sovét-
menn gerðu slík brögð að vana
sínum.
Franska blaðið Le Matin, málgagn
franskra sósíalista, tekur undir mál-
flutning Le Monde og föllyrðir að
Bandaríkjastjóm hafi þurft að
kaupa frelsi Daniloffs dýru verði
með því að fallast á að koma til ís-
lands til föndar við Gorbatsjov.
Enginn evrópskur fréttaskýrandi
virðist hafa gleypt við opinberri
skýringu Hvíta hússins um að ekk-
ert samband sé á milli lausnar
Daniloffs og meinta sovéska njósn-
arans Zakharov, er bandarísk yfir-
völd slepptu lausum nokkrum
klukkustundum eftir að Daniloff var
hleypt frá Sovétríkjunum.
Breska blaðið Times segir tengslin
milli Daniloff- og Zakharov-málsins
vera augljós og í þeim málarekstri
hafi „Reagan forseti greinilega verið
sigraður".
Daily Telegraph fjallar um Zak-
harov-málið í helgarblaði sínu. Þar
lýsa fréttaskýrendur blaðsins ótrú
sinni á þeirri föllyrðingu að samband
sé á milli lausnar andófsmannsins
Yuri Orlov og njósnarans Zakharovs
og líta verði á málavexti í ögn víð-
ara samhengi tál að átta sig á
tengslunum. Segir ennfremur að
Sovétstjómina skipti ekki máli
hverjum sé sleppt fyrir hvem á með-
an hún kemst upp með meginmark-
mið sín að fá njósnara sinn úr haldi
í Bandaríkjunum fyrir saklausan
blaðamann eða kunnan andófsmann
er KGB hefur haft í haldi í Moskvu.
Veikari staða leiðtoganna?
I sænska blaðinu Dagens Nyheter,
sem af flestum er talið áhrifamesta
dagblað Svíþjóðar, er fjallað um við-
burði síðustu vikna í samskiptum
stórveldanna. Þar er um helgina lát-
inn í ljós ótti um að hörð gagnrýni
stórveldanna hvort á annað áður en
lausn fannst á Daniloff-málinu hafi
grafið undan líkum á gagnkvæmum
samningum austurs og vesturs á
næstunni og getur leiddar að því að
málavafstrið í kringum Daniloff-
málið hafi veikt stöðu bæði Reagans
og Gorbatsjovs á heimavígstöðvun-
um og gert þá berskjaldaðri fyrir
gagnrýni.
ErfHt stefnuval fyrir Corazon Aquino
Corazon Aquino, forseti Filippseyja, þarf nú að fara að ákveða hvaða
stefnu hún ætlar að taka í efnahagsmálum.
Flestum þeim þúsund milljörðum
króna, sem Filippseyjar hafa fengið
að láni, hefur verið varið i rangar
fjárfestingar. Og á hveijum degi þarf
að greiða um 240 milljónir króna í
vexti af þessum lánum. Brúttó-þjóð-
arframleiðslan hefur minnkað og
lífsafkoman er orðin eins og hún var
1975.
Eftirvæntingin vegna komu hinn-
ar nýju stjómar er mikil og allir
búast við nýjum aðgerðum í efna-
hagsmálum. Hingað til hefur þó ekki
mikið gerst. Talað er um að Corazon
Aquino þurfi nú að’ákveða hvaða
leið skuli velja. Innan stjómarinnar
em þeir sem aðhyllast sósíaliskar
aðgerðir í efaahagsmálum og hins
vegar þeir sem mæla með frjálsri
verslun. Og skæruliðar kommúnista
leggja hart að stjóminni að ánetjast
ekki alþjóðlegum auðhringum.
Erlendar fjárfestingar
Innan viðskiptaráðuneytisins
heyrast þær raddir sem álíta að hinn
gullni meðalvegur sé æskilegastur
en margt bendir þó til þess að Coraz-
on Aquino hafi ákveðið sig. Á ferð
sinni í Bandaríkjunum hefur hún
mælt með erlendum fjárfestingum á
Filippseyjum. Hefur hún meira að
segja lokkað eigendur fyrirtækja
með ódýrum og duglegum vinnu-
krafti. Olli það hörðum mótmælum
af hálfö verkalýðsfélaga heima fyrir
og enn meiri ágreiningi innan
stjómarinnar.
En flöldi verkfalla og umræðumar
um endurgreiðslu lánanna gera það
að verkum að erlendir aðilar hika
við að fjárfesta i landinu. Margir
róttækir embættismenn vilja að þau
lán, sem ekki hafa verið notuð til
tilætlaðra ffamkvæmda, verði ekki
endurgreidd. En þeir em þó fleiri
sem álíta að skynsamlegast sé að
taka á sig greiðslubyrðina frá Marc-
osartímanum.
Faldir fjársjóðir
Sett hefúr verið á laggimar nefad
sem á að leita að földum fjársjóðum.
Tilgangurinn er að komast að því
hvar hinar gífurlegu fjárhæðir, sem
Marcosi og mönnum hans tókst að
koma undan, em niðurkomnar. Hef-
ur skipan þessarar nefndar valdið
deilum og leitt til færri fjárfestinga
bæði af hálfö innlendra og erlendra
aðila. Eignaupptaka á vegum nefnd-
arinnar hefur í mörgum tilfellum
verið vafasöm og stundum hefur litið
út fyrir að um hefnd hafi verið að
ræða. Fjárfestingaraðilar em varir
um sig og vilja vita hvaða reglur
gilda áðm- en þeir hætta peningum
sínum. Ákveðnar reglur hafa þó ekki
verið settar og telja margir hag-
fræðingar og atvinnurekendur að
þessi óvissa hafi geigvænleg áhrif
fyrir landið.
Nýlán
Alþjóðlegar peningastofnanir em
fúsar til þess að veita Filippseyjum
ný lán með því skilyrði að hrist verði
upp í bankakerfinu. Með því að veita
ný lán gefst landinu tækifæri til að
koma efnahagslífinu í betra horf og
þar með gefast tækifæri til þess að
endurgreiða skuldimar. Þessi stefna
er liður í nýrri áætlun Alþjóðabank-
ans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um
að koma fótunum undir skuldugar
þjóðir. Spumingin er bara hvort
hjálpin kemur í tæka tíð.
Umsjón: Hannes Heimisson og Ingibjörg Bára Sveinsdóttir