Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Frjálst.óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- oa plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 500 kr.
Verð í lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr.
TiHitssemin ríki
Fjöldi fólks leggur nótt við dag, til þess að leiðtoga-
fundurinn megi fara fram í réttu umhverfi. Rétt var af
ríkisstjórn að samþykkja, að fundurinn skyldi haldinn
hér, þótt allt færi á hvolf, eins og forsætisráðherra
sagði. Margt í þjóðlífinu á höfuðborgarsvæðinu mun
fara úr skorðum næstu daga. Þá skiptir öllu, að tillits-
semin ríki.
íslenzk yfirvöld verða að sýna tillitssemi gagnvart
borgurunum og hafa friðhelgi einkalífs að leiðarljósi.
íslendingar eiga að vita, að fulltrúar öryggisþjónustu
risaveldanna munu gera margfalt meiri kröfur en unnt
er að uppfylla með viðunandi hætti. Þegar þetta er skrif-
að, virðist til dæmis hafa verið settar fram kröfur um
að rýma húsin nálægt Höfða tveimur dögum fyrir fund-
inn. Starfræksla fyrirtækjanna þar mundi þá leggjast
niður. Þarna er of langt gengið. Slík röskun er ekki
verjandi.
Vissulega má viðurkenna, að rýma þurfi þessi hús
og öryggisverðir taki sér stöðu á svæðinu, áður en fund-
irnir fara fram. En vonandi finna íslenzk stjórnvöld
málamiðlun, sem veldur borgurunum ekki of miklum
ama.
Þá hefur verið gerð könnun á, hverjir eru búsettir í
húsunum næst bandaríska sendiráðinu. Til stendur, að
því er ætla má, að íbúar fái passa og „talið verði inn í
íbúðirnar“, sem kallað hefur verið. Þar skiptir miklu,
að lögreglumenn fari með aðgát. Vissulega verður að
fylgjast með þessu svæði. En lögreglumenn verða þar
sem annars staðar að gæta þess að ganga ekki á rétt
fólksins. Það gildir um öll viðskipti við almenning,
meðan þessir fundir standa. Lögreglumönnum hér sem
annars staðar hættir til að fara offari, ganga á réttindi
borgaranna til að sýna vald sitt, þegar á reynir. Þetta
á allt að geta farið vel fram, ef nægur vilji er til.
Borgarbúar verða almennt fyrir mikilli röskun. Göt-
um verður lokað. Talið er, að 30-40 bílar kunni að verða
í bílalestunum, sem fylgja leiðtogunum. Þá hefur verið
skorað á fólk að borða heima þessa helgi, nokkuð sem
flestir ættu að una. Einnig verður mikið mál í höfuð-
borginni, að illur leikur verður að fá leigubifreiðir nú
um helgina. Unga fólkið unir. því að líkindum illa.
Stjórnvöld æskja þess, að mótmæíafundir og mót-
mælagöngur verði engar. Þetta er erfitt í lýðfrjálsu
landi. Minnstu munaði, að illa færi, þegar bægt var frá
hópi gyðingaleiðtoga, sem ætluðu að koma hingað frá
Bandaríkjunum. Forsætisráðherra okkar vafðist tunga
um tönn í því .máli, og Island fékk mínus fyrir. Þó tókst
í gær að finna málamiðlun, sem allir ættu að geta sætt
sig við. Nokkur skaði var orðinn af þessu máli.
Enginn efi er, að, meginþorri íslendinga samþykkir,
að þessi fundur verði haldinn hér. Flestir munu einnig
reiðubúnir til að leggja nokkuð á sig þess vegna. Þótt
við séum friðsömust þjóða og óvopnuð, skiljum við, að
við þurfum í nokkra daga að horfa upp á menn við al-
væpni, jafnvel okkar eigin menn. íslendingar hafa fylgzt
með öldu hryðjuverka, og við vitum, að margir þjóðar-
leiðtogar hafa fallið fyrir hendi tilræðismanns.
Stjórnvalda er sá vandi að tryggja öryggi hinna er-
lendu leiðtoga en vernda samtímis rétt íslenzkra
borgara. Þarna er vandratað meðalhófið.
Stór leiðtogafundur hefur áður verið haldinn hér, þó
ekki nærri jafnstór þessum. Sá fundur fór vel.
Haukur Helgason.
„Það getur ekki talist sögulegur atburður þó tveir fyrrverandi formenn flokksins takist i hendur þegar þeir eru
löngu hættir að hafa áhrif á starfsemi flokksins."
Samvinna
A-flokkanna
Nýlega er lokið þingi Alþýðu-
flokksins og fór víst ekki fram hjá
neinum. Þing þetta fékk óvenju-
mikla umfjöllun í fjölmiðlum og
endurkjörinn formaður flokksins lét
óspart að því liggja að um sögulegan
atburð væri að ræða. Ósagt skal lá-
tið hvort sagan síðar meir flokkar
þetta þing til minnisverðra atburða.
Sjálfum sýnist mér að fátt sé sögu-
legt við þingið eða niðurstöður þess
ef frá er talið að flokkurinn hefur
lifað í 70 ár og þess hafi verið minnst.
Það getur ekki talist sögulegur at-
burður þó tveir fyrrverandi formenn
flokksins takist í hendur þegar þeir
eru löngu hættir að hafa áhrif á
starfsemi flokksins. Sá atburður
hefði verið sögulegur hefði hann átt
sér stað fyrir 10 til 15 árum. Ekki
getur það heldur talist meiriháttar
tímamótaatburður þó Bandalags-
þingmennimir þrír gangi í Alþýðu-
flokkinn úr því Bandalag jafriaðar-
manna gerði það ekki sem heild.
Innganga þeirra nú sýnist augljós-
lega vera til þess gerð að framlengja
eigið pólitískt líf. Sumum finnst ef
til vill sögulegt að menn geti á jafii-
skömmum tíma skipt um pólitískar
skoðanir og forystumenn Banda-
lagsins hafa nú gert miðað við fyrri
yfirlýsingar frá því í vor. En slíkt
hefúr áður gerst í stjómmálum og í
sama tilgangi.
Þetta þing verður því að flokka
undir halelújasamkomu sem á engan
hátt er mjög merkileg.
Að þora að vera krati
„Nú þora menn að kannast við að
þeir séu kratar," var haft eftir form-
anninum. Þetta segir kannske miklu
meira um stöðu Alþýðuflokksins
heldur en sú skrautsýning sem þing-
ið var. Breytt ímynd flokksins í
augum flokksmanna og trúlega fleiri
er það sem skiptir sköpum. Það
sýndu sveitarstjómarkosningamar í
vor. Víst verður því ekki neitað að
formaður flokksins hefur getað talið
kjark í liðsmenn. En spil hans núna
er allt hæpnara og nauðsynlegt fyrir
hann að gæta hófs í bjartsýninni.
Það er löng reynsla fyrir því að
hættulegt er að taka út kosninga-
sigra fyrirffam. Á sama hátt er það
tvíeggjaður leikur að eigna Alþýðu-
flokknum stóran hluta Alþýðu-
bandalagsins fyrirfram. Það hlýtur
að skerpa sókn Alþýðubandalagsins-
í verkalýðshreyfingunni og brýna þá
Kjallaiirin
Kári Arnórsson
skólastjóri
til að halda þeim yfirburðum sem
þeir hafa þar umffam Alþýðuflokk-
inn. Einnig getur þetta virkað þann
veg að Alþýðubandalagið taki upp
enn nánara samstarf við Sjálfetæðis-
flokkinn innan ASÍ og væri þá verr
farið af stað en heima setið.
Verkalýðsflokkar nái saman
Á umræddu flokksþingi flutti Ás-
mundur Stefánsson ræðu sem forseti
ASÍ. Hann notaði að sjálfeögðu
tækifærið til að segja krötunum frá
því að hann ætlaði að vera áffam í
Alþýðubandalaginu. Hins vegar
hvatti hann þessa tvo flokka, A-
flokkana, til nánari samvinnu og
ættu þeir ýmsa kosti ef þeim auðnað-
ist að ná saman. Þetta er svipaður
boðskapur og Bjöm heitinn Jónsson
flutti löngum og átti t.d. mestan þátt-
inn í stórsigri A-flokkanna 1978. En
hitt er svo deginum ljósara að þess-
um flokkum hefur ekki gengið að
vinna saman þegar til alvörunnar
hefúr komið, þ.e. í ríkisstjóm.
Ræða Ásmundar var raunar það
merkilegasta sem á títtnefndu þingi
gerðist. Sjaldan eða aldrei hefiu- ve-
rið meiri nauðsyn að verkalýðs-
flokkamir næðu höndum saman.
Misrétti og ranglæti hefúr aukist í
svo stórum stökkum í tíð núverandi
ríkisstjómar að til skelfingar horfir
fyrir allan almenning. Launamisrét-
áð er geigvænlegt og svo horfir sem
/erkalýðshreyfíngin sé að missa öll
»k á því að ráða samningum. Síð-
jstu samningar, sem gerðir vom, og
n.a. formaður Alþýðuflokksins hef-
ir lofeungið, leiddu til mikils mis-
'éttis því það vom hinir almennu
aunamenn sem enn einu sinni vom
átnir axla byrðamar. Varaformaður
Uþýðuflokksins hefur í blaðagrein-
im undanfarið lýst þeirri neyð sem
3Ítt hefur af þeim kjörum sem fólkið
býr við. Hún virðist vita mun betur
en formaður flokksins hvað lág-
launafólkið býr við í landinu. Hún
fylgist með því að fólk flýr unn-
vörpum frá ríkisstofnunum vegna
þess að það getur ekki lifað af þeim
kjörum sem um var samið. Hún
hrópar ekki húrra fyrir samningun-
um frá því í febrúar.
En nú er tækifæri fyrir þessa
flokka, ef þeir kunna að vinna sam-
an, til þess að leiðrétta, til að minnka
vinnuþrælkunina, til að bæta kjörin.
Nú ætti að vera tækifæri til að bæta
atvinnuástandið og stöðva flóttann
af landsbyggðinni. Með því verður
fylgst hvort Alþýðuflokkurinn undir
stjóm Jóns Baldvins hefur raun-
vemlegan áhuga fyrir samstarfi
verkalýðsflokkanna eða aðeins
áhuga fyrir nokkrum forystumönn-
um eins og gerðist með BJ. Nái hann
fram virkri samstöðu þá verða sögu-
legir tímar.
Kári Amórsson.
„Með því verður að fylgjast hvort Al-
þýðuflokkurinn undir stjóm Jóns Baldvins
hefur raunverulegan áhuga fyrir samstarfi
verkalýðsflokkanna eða aðeins áhuga fyrir
nokkrum forystumönnum eins og gerðist
með BJ.“