Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Side 16
16
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Spumingin
Hvað finnst þér um að
kennsla falli niður í tveimur
skólum vegna leiðtogafund
arins?
Erna Ragnarsdóttir hönnuður: Þetta
er í raun spumingin hvort við eigum
að halda svona fund eða ekki. Já,
mér finnst við eigum að halda svona
fund og þetta hlýtur því að vera eitt
af því sem við verðum að taka með
í dæmið.
Ester Ólafsdóttir: Mér finnst það allt
í lagi, þetta er ekki svo langur tími.
Krakkarnir verða þá bara duglegri
er skólinn byrjar aftur.
Gísli Gíslason sölumaður: Það er
ágætt að krakkarnir fái smá frí, þeir
geta síðan unnið þessa viku upp með
því að vinna meira næstu daga.
Sigríður Gunnarsdóttir snyrtifræð-
ingur: Ég hef nú ekkkert pælt í því
en það er kannski ekki nógu sniðugt
að krakkamir dragist aftur úr í þess-
um skólum.
Haraldur Haraldsson: Ég geri ráð
fyrir að kennurunum þykji það
óæskilegt, þetta snertir mig ekki
beint.
Dagný Ingólfsdóttir: Mér finnst það
í lagi ef hægt er að vinna það upp,
þetta má náttúrlega alls ekki bitna
á bömunum.
Lesendur
MáKar og framburð
má bæta á Bylgjunni
„Þrátt tyrir galla Bylgjunnar eru
Hlustandi skrifar:
Samkvæmt skoðanakönnun DV
þann 24. september er Bylgjan vin-
sælasta útvarpsstöð þessa dagana.
Þrátt fyrir vinsældir þessar tel ég
að það sé margt er betur mætti fara,
á ég þá aðallega við málfar og fram-
burð útvarpsmanna. Þau em ótelj-
andi skiptin íram að þessu sem
þulimir hafa mismælt sig, farið með
slettur, stamað eða talað rangt mál.
Til þess að Bylgjan geti talist
fréttastöð held ég að stórt átak þurfi
að gera í þessum málum.
Það er mjög skiljanlegt að fólk sem
hefúr aldrei starfað áður sem þulir
eða fengist við fr amsögn mismæli sig
og stami í byrjun. Því tel ég það
vera skyldu forráðamanna slíkra
útvarpsstöðva sem Bylgjunnar að
sjá til þess að betur fari. Allir þeir
sem ráðast í störf sem þessi ættu að
fá tilsögn í framsögn auk þess sem
krefjast ætti lágmarkskunnáttu í ís-
lenskri málfræði af viðkomandi.
Þrátt fyrir ofnatalda galla em þó
kostir Bylgjunnar fleiri, má þar
nefha langan útsendingartíma, gott
lagaval, skemmtilega viðtalsþætti og
góð tengsl við hlustendur.
Ég óska Bylgjumönnum bjartrar
framtíðar og vona um leið að þeir
taki skjótum framförum í íslensku-
kunnáttu sinni!
Hvað verður um
Bandalag
jafnaðarmanna?
HaDdór Jónsson skrifar:
Ég er mjög ósáttur við framgang
mála hjá Bandalagi jafiiaðarmanna.
Mennimir, sem hefúr verið treyst fyrir
þessu, hlaupa frá borði. Það er verið
að eyðileggja hugsjónina bak við
flokkinn. Þessir framamenn skilja
og sökkvandi skipi til að ná þingsæti
í næstu kosningum. Mér finnst einna
helst hægt að líkja þessu við sökk-
vandi skip þar sem skipstjórinn og
stýrimaður hertaka björgunarbátinn
og skilja áhöfnina eftir í sökkvandi
skipinu.
„Það er bara hugsað um þingsætin sfn.“
Betra að hata fréttimar klukkan átta.
Sjónvatpið og fréttimar
Verkakona skrifar:
Hvað eru forráðamenn sjónvarpsins
eiginlega að hugsa? Er ekki hægt, þó
það væri ekki nema einu sinni, að
taka tilllit til landsbyggðarinnar? Við
í sjávarplássum og bændur sitjum ekki
við skrifborð og löllum okkur heim
kl. 4 eða 5 á daginn eins og meirihluti
manna í Reykjavík virðist núorðið
gera. Meðan við í fiskinum vinnum
beiki brotnu við að skapa þjóðinni
gjaldeyri. Við vinnum yfirleitt til kl. 7
þá á eftir að sinna búi og bömum.
Með lagni var hægt að kíkja á fréttir
kl. 8 en því miður útilokað nú. Ekki
er um að ræða hjálp frá eigmnannin-
um því hann er úti á sjó eins og flestir
karlmenn í sjávarþorpum. Og þeir sem
vinna við úthreinsun í frystihúsi koma
ekki heim fyrr en klukkan er langt
gengin í átta. En þetta er eins og við
var að búast, alltaf er landsbyggðin
sniðgengin. Við virðumst nógu góð til
að halda Reykjavík uppi, allavega
spretta seðlamir ekki á trjám í Seðla-
bankanum. Við fengum heldur ekki
að horfa á landsleikinn í beinni út
sendingu, ó-nei, það var bara fyrir
Reykjavík.
Fleiri
rútuferðir í
Mosfellssveitina
3503-9732 skrifar:
Ég er Mosfellingur og fer mjög oft
í bæinn og þarf því að nota rútu sem
fer milli Reykjavíkur og Mosfellssveit-
ar. Mér ásamt fleirum finnst að fjölga
eigi þessum ferðum, þær eru á klukku-
tíma fresti á virkum dögum með
nokkrum undantekningum. Um helg-
ar, þegar ömgglega flestir þurfa að
skreppa eitthvað í bæinn, fer hún á
tveggja tíma fresti. Flestum sem fara
með rútunni finnst að það eigi að
bæta við ferðum á kvöldin, bæði til
og frá Reykjavík. Þetta er alveg
ómögulegt eins og þetta er í dag.
Ég hvet þá sem em mér sammála til
að láta tieyra í sér því þetta er mál sem
þarf að taka til athugunar.
Það þarf að fjölga ferðum milli Mosfellssveitar og Reykjavikur.