Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Side 20
20
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
íþróttir
Við homfanavm
Furðuleg niðurröðun
Þegar ljóst var að landsliðið myndi
ekki taka eins mikinn tíma í vetur,
þar eð engin stórkeppni er á dagskrá
hjá því næsta árið. áttu flestir von
á því að 1. deildar keppnin í hand-
knattleiknum í vetur fengi algeran
forgang og allt yrði gert til að gera
hana sem veglegasta. En svo verður
ekki. Nú er komið í ljós að niðurröð-
unin í Islandsmótið er vægast sagt
furðuleg. Heil umferð er leikin á einu
kvöldi og svo koma löng hlé á milli.
Það er því ljóst að fjölmiðlar verða
að velja og hafha þegar leikjahrúgan
skellur á. Greinilegt er að leikimir,
sem fyrirfram eru álitnir minna
merkilegir, verða útundan.
Vanmat Valsmanna
Það hefur vakið mikla athygli að
Valsmenn léku báða Evrópuleiki
sína í handknattleik gegn norska
liðinu Urædd í Noregi. Enn meiri
athygli vakti þegar liðsstjóri liðsins
lýsti því yfir í útvarpsviðtali að
ástæðan hefði verið sú að það hefði
kostað Valsmenn mikla peninga að
leika heima og heiman. Þetta verður
að teljast furðuleg ástæða og sú á-
kvörðun Valsmanna að leika báða
leikina erlendis er hreinlega móðgun
við aðdáendur félagsins og hand-
knattleiksunnendur almennt. Einn-
ig lýsir þessi ákvörðun Valsmanna
miklu ofinati á eigin getu eins og
kom fram í leikjunum í Noregi en
sem kunnugt er töpuðu Valsmenn
báðum leikjunum og eru úr leik í
Evrópukeppninni.
Ákvörðun Atla veldur heila-
brotum
Sú ákvörðun Atla Hilmarssonar
handknattleiksmanns að hætta að
ieika með landsliðinu vakti mikla
athygli á sínum tíma og þeir eru
margir sem ekki hafa enn sætt sig
að fullu við þessa ákvörðun hans.
Þeirra á meðal eru menn innan
handknattleikssambandsins og
reyna þeir nú óspart að fá Atla til
~áð breyta þessari ákvörðun sinni og
eru bjartsýnir á að hann skipti um
skoðun. Vonandi verður þeim að ósk
sinni en líkumar eru svo til engar.
Stutturfyrirvari
Sem kunnugt er varð Stefán Jó-
hannsson, markvörður í KR, pabbi
rétt fyrir landsleikinn gegn Sovét-
mönnum í knattspymu og lék af
þeim sökum ekki með íslenska lið-
inu. Ég hef heyrt að Stefán hafi sagt
Sigfried Held landsliðsþjálfara frá
því að hann ætti von á efingja að-
eins þremur tímum fyrir landsleik-
inn. Mörgum finnst þetta stuttur
fyrirvari og að Stefán hefði átt að
tilkynna Held um væntanlega fæð-
ingu erfingjans strax og hann var
valinn í landsliðshópinn. Nú líður
óðum að landsleiknum gegn Austur-
Þjóðverjum ytra þann 29. október
og mun Stefán ekki vera ömggur
með sæti sitt í landsliðshópnum.
Held mun ekki vera yfir sig ánægður
með þann stutta fyrirvara sem hann
fékk þegar Stefán afboðaði sig i leik-
inn gegn Sovétmönnum.
Hemmi úti í kuldanum
Það vakti nokkra athygli á leik
Vals og Juventus á Laugardalsvelli
á dögunum að Hermann Gunnars-
son var úti í kuldanum við að lýsa
leiknum í áhorfendastúkunni fyrir
hlustendum Bylgjunnar. Bjami Fel-
ixson, íþróttafréttamaður sjónvarps-
ins, sat hins vegar inni í glerbúrinu
og hafði það gott. Skýringin mun
vera sú að gamla gufuútvarpið og
sjónvarpið eiga sitt glerbúrið hvort
•Hermann Gunnarsson að lýsa leik
Vals og Juventus úti í kuldanum
DV-mynd Brynjar Gauti
á Laugardalsvellinum. Bylgjumenn
höfðu hins vegar engan fyrirvara á
sínum málum og komust því ekki
að. En þrátt fyrir að Hemmi hefði
þurft að sitja úti í kuldanum, vel
búinn, yljaði hann hlustendum
Bylgjunnar með skemmtilegri lýs-
ingu að vanda.
Gróusögur um Pétur
Gengið hefur fjöllunum hærra hér
í Reykjavík að Pétur Pétursson,
knattspymumaður frá Akranesi, eigi
þessa dagana í viðræðum við hol-
lenska félagið Ajax. Rétt er að Pétur
er þessa dagana staddur í Rotterdam
en hefur ekki átt neinar viðræður
við forráðamenn Ajax né annarra
félaga. Hann er í heimsókn hjá vin-
um sínum sem hann kynntist þegar
hann var hjá Feyenoord og er vænt-
anlegur heim til íslands í vikunni.
Pétur mun að öllum líkindum leika
með Akumesingum næsta keppnis-
tímabil.
Dómaravandræði í körfunni?
Nú er karfan komin á fulla ferð
og menn bíða spenntir eftir því að
sjá hvort sama ruglið verður í dóm-
aramálum og viðgekkst síðsata
keppnistímabil. Því miður er útlit
fyrir að ástandið verði svipað í vetur
enda hafa ekki nýir dómarar bæst í
hópinn. En þeir sem dæmdu í fyrra,
og þá sér í lagi þeir yngri, em ári
eldri en í fyrra og ættu því að vera
komnir með örlítið meiri reynslu.
Þá er greinilegt að hinn kunni dóm-
ari, Sigurður Valur Halldórsson, fær
fleiri leiki að dæma í vetur. Hann
átti í útistöðum við dómaranefnd
KKÍ í fyrra vegna ágreinings um
túlkun á ýmsum reglum. Nú er búið
að leysa það mál og reglunum hefur
verið breytt að hluta til. Sigurður
verður því ekki frystur eins og í fyrra
og vissulega er það ánægjuefhi fyrir
körfuknattleiksmenn.
Broddi vakti athygli
Á nýafstöðnu Evrópumóti félags-
liða í badminton vakti frammistaða
TBR-liðsins mikla athygli og þá sér-
staklega góð frammistaða Brodda
Kristjánssonar í einliðaleik karla.
Hann lenti til að mynda gegn Svían-
um Stefan Karlson, einum þekktasta
einliðaleiksspilara í heimi og sigraði
hann næsta auðveldlega í odda-
hrinu. Ekki tókst þó að ljúka henni
þar sem frammistaða Brodda fór svo
mjög í taugamar á honum að hann
yfirgaf leikvöllinn þegar staðan var
10-6 Brodda í vil. Var Svíinn mjög
óánægður með dómgæsluna en auð-
vitað hafði það úrslitaáhrif að hann
þoldi ekki að tapa fyrir hinum unga
Islendingi.
-Muggur
MUGGUR
„Ég var að frétta að forráðamenn
handknattleiksdeildar Vals væru bún-
ir að sækja um að fá að leika báða
leikina gegn FH í íslandsmótinu í
Hafiiarfirði. FH-ingar hafi boðist til
að borga ferðir fyrir Valsmenn í fjörð-
inn, þannig að Valur þarf ekki að
greiða neinn ferðakostnað."
Siggi Jóns skoraði
þrumufleyg af 25 m
--------
Stjaman til Júgóslavíu
íslandsmeistarar Víkings dróg-
ust gegn St. Ottmar Gallen í
Evrópukeppni meistaraliða i
handknattleik. Stjaman, sem tek-
ur þátt í Evrópubikarkeppninni,
mætir Ljubljana frá Júgóslavíu.
Samkvæmt drætti eiga Víkingar
og Stjömumenn að leika fyrri leiki
sína úti.
FH lék eitt sinn við St. Ottmar
Gallen í Evrópukeppninni og sló
svissneska félagið þá út. -SOS
- vonast eftir að leika með Sheff. Wed.
„Maður verður bara að bíða og vona
það besta - taka vel á á æfingum. Það
verður ekki tilkynnt fyrr en rétt fyrir
leikinn gegn Man. Utd á Old Trafford
á laugardaginn hverjir leika. Ég er
vissulega ánægður með frammistöðu
mína gegn Stockport í Littlewood-
bikarkeppninni á þriðjudag en leikur-
inn var háður á Maine Road í
Manchester. Ég skoraði fjórða mark
Sheff. Wed. í 7-0 sigrinum. Hörkuskot
af 25 metra færi neðst í markhomið
og markvörður Stockport átti ekki
möguleika á að veija. Vissulega var
gaman að skora þetta mark og það
gefur vissar vonir,“ sagði Sigurður
Jónsson, þegar DV ræddi við hann í
gær. Siggi lék sinn fyrsta leik í aðal-
liði Sheff. Wed. á leiktímabilinyu gegn
Stockport. Liðið var nokkuð breytt frá
6-1 sigrinum á Oxford í 1. deild síðast-
liðinn laugardag.
Siggi var tengiliður á Maine Road
og hann hefur leikið þá stöðu í vara-
liði Sheff. Wed. í haust. Leikið þar 5-6
leiki og skorað tvö mörk. Varaliðið
hefur ekki tapað leik í þeirri deild,
Central Leauge. Hins vegar gert tvö
jafhtefli og er þar í efeta sæti ásamt
tveimur öðrum liðum.
Sheff. Wed. vann stórsigur á 4. deild-
ar liði Stockport i Littlewood-keppn-
inni. Samtals 10-0 í báðum leikjum.
Colin Walker skoraði þrennu á Maine
Road, Mel Sterland tvö, Siggi og Paul
Hart eitt hvor. Þegar Sigurður fór til
Sheffield gerði hann samning við fé-
lagið í þrjú og hálft ár. Hann á tvö
ár eftir af samningum.
„Ég er alveg tilbúinn í Evrópuleik-
inn við Austur-Þýskaland 29. þessa
mánaðar og vona að við náum góðum
árangri þar. Það er alltaf gaman að
leika í íslenska landsliðinu og þessi
leikur verður sérstaklega þýðingar-
mikill. Mér líður prýðilega hér í
Sheffield, er kominn með eigin íbúð
og vona að möguleikamir á að leika
í aðalliðinu hafi aukist með frammi-
stöðunni á þriðjudag. Það er alveg úr
sögunni að ég fari aftur til Bamsley,
að minnsta kosti veit ég ekki annað.
Maður fær lítið að frétta hjá stjóran-
um hér, Howard Wilkinson. Hins
végar hef ég frétt á skotspónum að 2-3
félög hér á Englandi hafa verið að
spyijast fýrir um mig hjá félaginu.
Spurt hvort ég væri á sölulista. Svo
er ekki en eins og staðan er í dag veit
ég ekkert um hvort einhverjar hreyf-
ingar em framundan. Wilkinson er
ákaflega fastheldinn á sömu leik-
mennina í aðalliðinu og liðið hefur
mörgum góðum leikmönnum á að
skipa,“ sagði Sigurður Jónsson að lok-
um. -hsím
•Siggi Jóns - lék sinn fyrsta leik í aðalliði S
sl. keppnistímabili.
Víkingar tefla fram táningaliði
- þegar þeir hefja vömina gegn KR í kvöld
Baráttan um íslandsmeistaratitilinn
í handknattleik hefet á þremur víg-
stöðvum í kvöld, Laugardalshöll,
Kópavogi og Hafnarfirði. Meistartar
Víkings hefja vöm sína í leik gegn
KR-ingum. Víkingar hafa orðið fyrir
mikilli blóðtöku undanfarin ár. „Við
höfum misst reglulega tvo til þijá lyk-
ilmenn frá okkur á ári, undanfarin
ár,“ sagði Guðmundur Guðmundsson,
fyrirliði Víkinga.
„Af eldri leikmönnum em aðeins
eftir Hilmar Sigurgíslason, Kristján
Sigmundsson markvörður og Einar
Jóhannesson. Víkingsliðið er nú byggt
upp á ungum og efnilegum leikmönn-
um sem sést best á því að meðalaldur
liðsins er aðeins 22 ár,“ sagði Guð-
mundur.
Guðmundur sagði að Víkingar
myndu gera sitt besta eins og hingað
til. „Við gerum okkur þó fyllilega
grein fyrir að það er kominn tími upp-
byggingar hjá okkur.“ Karl Þráinsson
landsliðsmaður er nú byrjaður að æfa
á ný eftir nokkra hvíld vegna meiðsla.
- Hvaða félög telur þú að séu sterk-
ust um þessar mundir?
„Valur og Stjaman koma sterk til
leiks. Þessi lið hafa ekki misst leik-
menn en fengið sterka leikmenn til
sín. Stjaman hefur státað af því að
vera komin upp með stórveldi - að
timi Garðabæjarliðsins sé runninn
upp. Ef Stjaman á ekki möguleika
núna þá þurfa Garðbæingar að bíða
lengi eftir að meistaratitillinn komi í
fyrsta skipti til þeirra.“
Guðmundur sagði að KR-liðið hefði
fengið mestan liðsstyrkinn og væri til
alls líklegt. Vesturbæjarliðið vari með
góða samblöndu af reyndum og ungum
leikmönnum. „FH-liðið, með þá Héðin
Gilsson og Þorgils Óttar Mathiesen
sem aðalmenn, væri til alls líklegt og
einnig Framliðið undir stjóm Per
Skámp. Hann á örugglega eftir að
styrkja vöm Framliðsins mikið,“ sagði
Guðmundur.
„Ég hef trú á því að handknattleik-
urinn verði jafn og skemmtilegur í
vetur. Það em margir ungir og efnileg-
Tumertil Úlfanna
Graham Tumer, sem var rekinn frá
Aston Villa, var ráðinn framkvæmda-
stjóri Úlfanna í gær. Tumer, sem er
39 ára, tekur við starfi Brians Little,
fyrrum leikmanns Aston Villa, sem var
látinn víkja fyrir Tumer.
Úlfamir em í 4. deild. Þeir hafe leik-
ið undir stjóm ellefu framkvæmda-
stjóra sl. sex ár. „Ég mun stefna að
því að koma Úlfunum upp úr þeim
öldudal sem þeir hafa verið í,“ sagði
Tumer.
Úlfamir, sem vom í 1. deild 1984, em
nú í fjórtánda sæti í 4. deild. -SOS
ir leikmenn hér á uppleið. Þá hafa
félögin undirbúið sig mjög vel fyrir
slaginn,“ sagði Guðmundur.
Fimm leikir verða leiknir i 1. deildar
keppninni í kvöld. Haukar fá Vals-
menn í heimsókn í Hafnarfjörð kl. 20,
Víkingur mætir KR í Laugardalshöll
kl. 20 og strax á eftir leika þar Fram
og KA. Breiðablik leikur gegn FH í
Kópavogi kl. 20.15 og strax á eftir leika
Stjaman og Ármann.
-sos
| íslenskirl
; arar í No
I„Þetta var mjög gagnlegt námskeið
fyrir okkur og margt nýtt sem kom
í fram,“ sagði Sigurður Valur Halldóre-
| son, alþjóðlegur dómari í körfuknatt-
Ileik, en hann, ásamt Jóni Otta Jónssyni,
var á meðal þátttakenda á undirbún-
Iingsnámskeiði fyrir körfuknattleiks-
dómara sem haldið var í Nottingham í
IEnglandi nýverið.
Það er ekki á hveijum degi sem ís-
I lenskir körfuknattleiksdómarar leggja
land undir fót til að afla sér frekari
I upplýsinga í dómaramálum og því
Iánægjuefni mikið að þeir Sigurður og
Jón Otti skuli hafe séð sér fært að fara
L______________-_______________