Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Side 30
30
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Þröstur Ólafsson, stjómarformaður KRON, í DV-yfirheyrslu:
Reiknum með að ná kannski
20% af matvöruversluninni
- Ert þú að verða einhvers konar
„Silli & Valdi“ í verslun höfuðborg-
arsvæðisins?
Nei, það er nú langt í land með
það, bæði er stærðin allt önnur en
þessi umsvif núna gefa ef til vill til
kynna, svo hitt að Silli & Valdi ráku
sína verslun i allt öðrum tilgangi en
við.
- En stundum yrkja jú skáldin undir
dulnefnum.
Já, ja ég veit nú ekki hvað þú átt
við. Ekki rekum við okkar íyrirtæki
undir neinum dulnefnum.
- Eg á við að þarna ert þú potturinn
og pannan í rekstri sem að vísu er
undir merki félagasamtaka.
Þetta hefúr gerst þannig að það
eru að verða ákveðin kynslóðaskipti
í KRON. Félaginu hefur verið
stjómað af kynslóð sem er smám
* saman að draga sig í hlé og ég hef
óneitanlega komið dálítið við sögu
í sambandi við það að nýtt fólk er
að taka við.
- Konan þín, Þórunn Klemenzdóttir,
er líka í níu manna stjóm KRON.
Það er ágætt að hafa hana þama.
Hún kom raunar langt á undan mér
í stjómina. Ég kom þama inn i fram-
haldi af því að ég hafði verið beðinn
að taka að mér stjómarformennsku
í Miklagarði þegar ákveðið var að
koma honum á koppinn. Svo æxlað-
ist það þannig að ég var beðinn að
taka að mér stómarformennsku í
KRON einnig. Það lá nokkuð beint
við vegna þess að Mikligarður var
tu orðinn það stór hluti af rekstri
KRON.
- Fyrir utan formennsku í þessum
tveim stjómum ertu einnig í stjóm
Máls og menningar og jafnvel fleiri
fyrirtækja auk þess að vera fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar. Annarðu
þessu svo nokkur mynd sé á?
Ég var einu sinni framkvæmda-
stjóri Máls og menningar og tengslin
við þann félagsskap hafa aldrei slitn-
að. Einnig er ég í stjóm Granda hf.,
sem frægt er. Mér er það alveg ljóst
að öll þessi verkefni mín em orðin
- viðameiri en eðlilegt er að ætlast til
að einn maður anni. Ég eyði svo til
öllum mínum frítíma í þetta.
- Nú, þá er það KRON, ég stórefast
um að fólk almennt viti hvað það er
eða geri mun á því og fyrirtækjum á
borð við Hagkaup.
KRON er samvinnufyrirtæki, fé-
lagsverslun, sem hefur það að
markmiði að dreifa vörum til neyt-
enda á höfuðborgarsvæðinu á sem
bestu verði. Þetta hefur verið reynt
að gera með því að hafa búðir sem
víðast á félagssvæðinu. Nú, þetta
hefur gengið misvel eins og verða
vill í sögu fyrirtækja. Upphaflega
var KRON mikið stórveldi hér í
Reykjavík og hafði afgerandi áhrif á
verðlag. Félagið var með ýmsar nýj-
ungar, meðal annars opnaði það
fyrstu kjörbúð í Evrópu héma á
Vesturgötunni. Þá var það leiðandi
í verslun. Síðan komu samdráttar-
tímabil þar sem aðrir tóku við því
hlutverki. Við erum að vona að núna
séum við aftur að komast í forystu.
Með opnun Miklagarðs vorum við
að hefja þetta tímabil. Þar á KRON
52% hlut á móti 30% hlut SÍS og
18% hlut þriggja nágrannakaup-
félaga.
Með þjónustuhlutverk KRON í huga:
- Nú hafa hverfabúðimar flestar vik-
ið og þið eruð á kafi í stórmarkaða-
slagnum. Á félagið nokkurn rétt á
sér lengur sem þjónn félagsmanna?
Ég held að fyrirtæki sem er full-
gildur aðili í þessari samkeppni sé
af hinu góða. Það hefur sýnt sig að
það þarf fleiri en einn stóran aðila
til þess að tryggð séu bestu kjör á
markaðnum. Ég er þeirrar skoðunar
að það verði ekki gert nema þessir
aðilar séu ólíkir að uppmna og eðli
og komi ekki til með að sameinast
um verðlagningu. Þama þurfa því
að vera ákveðin öfl á ferðinni eins
og til dæmis núna KRON og hins
vegar Hagkaup. Þetta er kannski
heppilegasta fyrirkomulagið til þess
að tryggja bestan árangur. Það sýndi
sig á hinn bóginn að við stóðumst
ekki samkeppnina með rekstri
hverfaverslananna. Við gátum ekki
boðið félagsmönnum okkar og öðr-
um viðskiptavinum hagstæðasta
verðið nema með því að hagnýta
okkur hagkvæmni stórmarkaðanna.
- Stefnir þá í tvo meginpóla, annars
vegar KRON, hins vegar Hagkaup?
Það er ef til vill allt of mikið að
sviðsetja þetta þannig. Vissulega
stefair núna í að þetta verði stærstu
aðilamir en auðvitað þrífst með
þeim fjöldi miðlungs- og smáfyrir-
tækja á þessu sviði.
- En hvað er þá KRON stórt í smá-
söluverslun höfuðborgarsvæðisins?
Það er nú nokkuð óljóst hvemig
meta á stærð þessa markaðar. Þetta
blandast orðið svo gríðarlega með
tilkomu stórmarkaðanna, sem selja
svo til allt, ekki bara matvörur og
DV yfírheyrsla
Viðtal:
Herbert Guðmundsson
Myndir:
Brynjar Gauti
hreinlætisvörur eins og hverfabúð-
imar. En á þeim markaði sem við
álítum að slagurinn standi um í
matvöm og mörkuðum tel ég að við
höfum verið með 10-12%. Með kaup-
unum á Víði í Mjóddinni, sem nú
heitir Kaupstaður, gæti ég með sama
hætti giskað á að við næðum þetta
15-17%, jalhvel kannski 20%. En
það veit auðvitað enginn hvemig
þetta fer nákvæmlega.
- Hver var velta KRON í fyrra?
Hún var 370 milljónir í KRON-
búðunum og um 700 milljónir í
Miklagarði. En þar eiga jú fleiri
aðild að eins og ég hef greint frá hér
að framan.
- Og ó þessu öllu saman var tap-
rekstur.
Já, það er rétt. Tap KRON var
nokkuð og á Miklagarði var 6 millj-
óna króna tap. Það er að vísu hreint
ekkert óskaplegt, miðað við veltu.
Það varð einnig nokkurt tap árið á
undan. Þetta er raimar svipað og
við bjuggumst við varðandi tvö
fyrstu ár Miklagarðs. Við gerum
okkur vonir um að reksturinn standi
undir sér í ár eða komist mjög ná-
lægt því.
- Nú hafið þið nýlega keypt hús og
verslun Víðis í Mjóddinni og sagt er
að kaupverðið sé hátt í 300 milljónir
króna. Stendur KRON svona vel
þrátt fyrir taprekstur að undan-
fömu?
Ég segi að vísu ekkert um kaup-
verð Víðis, um það var samið að
gefa það ekki upp. En KRON stend-
ur eignalega mjög vel. Um síðustu
áramót vom bókfærðar eignir um
300 milljónir króna sem þýðir senni-
lega að þær séu eitthvað hærri að
söluverðmæti, til dæmis er bmna-
bótamat fasteigna eitthvað hærra en
bókfært verðmæti þeirra. Þá vom
skuldir félagsins um 110 milljónir og
þannig er eigið fé KRON 190 millj-
ónir króna ef við höldum okkur við
bókfært verð eignanna.
- Stenst það að þið sem stjórn sam-
vinnufélags neitið að skýra frá tölum
imi jafngríðarleg kaup og á Víði og
þá eignatilfærslu sem það hlýtur að
hafa í för með sér?
Já, stjómin hefur fulla heimild til
þess að kaupa og selja eigur. Hún
veit auðvitað allt um kaupverð Víð-
is sem trúnaðarmál og er ekki
skyldug að gefa út neinar auglýsing-
ar um það.
- Ef spurt yrði um þetta á aðalfundi
til dæmis einhverrar deildar KRON.
Fengist þá svar?
Ja, ekki öðm vísi en að ég myndi
skýra frá því að um það hefði verið
samið að kaupverð Víðis yrði trún-
aðarmál og ég treysti mér ekki til
þess að rjúfa þann trúnað.
Má ekki lesa þessi viðskipti út úr
næstu reikningum félagsins?
Þau koma auðvitað fram í breyttri
eignastöðu. Þar blandast þau auð-
vitað saman við aðrar tilfærslur og
ég efast um að auðvelt verði að lesa
þessi viðskipti nákvæmlega út úr
þeim. /
- Hvaða eignir látið þið á móti Kaup-
stað?
Við verðum auðvitað að selja
eignir og þar er hús Stórmarkaðsins
í Kópavogi efst á blaði. Sá markaður
var aldrei ætlaður nema til bráða-
birgða og er auk þess í næsta
nágrenni við Kaupstað.
- En hvað um Miklagarð, hann er á
bráðabirgðaleyfi í Holtagörðum
Sambandsins?
Já, hann er það að vísu. Ég hef
hins vegar alltaf haldið því fram og
geri það ennþá að leyfið verði fram-
lengt, enda hafa engin rök komið
fram sem mæla gegn því að svo
verði. Nú, Hagkaup hefúr verið á
bráðabirgðaleyfi allan sinn tíma í
Skeifunni, líklega í 25 ár. Það hefur
enginn hróflað við þeim, þeir hafa
ekki verið fyrir neinum og við erum
ekki fyrir neinum þama niðurfrá.
Það væru þá annarleg sjónarmið
sem réðu því að farið yrði að hrófla
við þessu.
- Er KRON pólitísk stofiiun? Stjórnin
núna er til dæmis eingöngu skipuð
mönnum úr svokölluðum vinstri
flokkum og að minnsta kosti fimm
af níu stjórnarmönnum eru yfirlýstir
alþýðubandalagsmenn.
Það er engin meðvituð pólitík í
þessu. Það er vitað mál að þessir
svokölluðu félagshyggjuflokkar,
hvaða merkingu sem menn leggja
svo í það, hafa stutt samvinnuversl-
un. Síðan hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn álitið annað rekstrarform
heppilegra og því hafa sjálfstæðis-
menn ekki laðast að samvinnuversl-
un í miklum mæli. En við erum með
fólk bæði í störfum og framkvæmda-
stjóra sem er yfirlýst sjáltstæðisfólk
þannig að við höfum ekki farið
þannig í neitt pólitískt manngrein-
arálit.
- Hefur aldrei setið sjálfstæðismaður
í stjórninni?
Uppistaðan í stjóm KRON hefur
lengst af komið úr verkalýshreyfing-
unni og þar hafa verið formenn í
deildum Dagsbrúnar og stjómar-
menn þar. Saga Dagsbrúnar og
KRON hafa verið mjög tengdar. En
hvort einhvem tíma hefur slæðst
þama inn sjálfstæðismaður veit ég
bara ekki.
- Ertu mikill bisnessmaður?
Ég hef gaman af því að atast mik-
ið í málum og það er mikil athafna-
semi í mér. Látinn vinur minn sagði
eitt sinn að í mér væri þessi vest-
firski djöfúldómur sem mér skildist
að væri ólæknandi. Ég á sennilega
erfitt með að aðhafast ekki neitt og
láta umhverfið þannig líða fram hjá
mér án þess að taka þátt í mótun
þess. Þetta er nú líklega ástæðan
fyrir því að ég er í þessu öllu saman.
- Fyrst þú hefur svona gaman af
þessu brölti öllu, hefurðu þá ekki
alveg eins áhuga á að græða á þessu
sjálfur? Eða er þetta allt saman hug-
sjónastarf?
Ég hef nú aldrei hugleitt þetta af
neinni alvöm. En auðvitað gæti það
komið til greina að ég starfaði af
þessu á öðrum vettvangi. Ég held
að ég myndi þó ekki fara út í eigin
bisness. Ég verð að sjá ákveðinn til-
gang í því sem ég ætla að gera,
annan heidur en þann að auðgast
sjálfur.