Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
31
Sandkom
Reagan.
Hvers vegna
Island?
Menn velta því nú mjög fyr-
ir sér hvers vegna Sovétmenn
hafi stungið upp á því að halda
leiðtogafund þeirra Reagans
og Gorbatsjovs á Islandi. Eins
og vænta mátti, þegar Rússa-
grýlan er annars vegar, flögr-
aði fljótt illur grunur að
mörgum. Þótti einsýnt að
staðarval Rússanna stafaði af
einhverju öðru en einskærri
Islandsvináttu.
Fljótlega eftir að ákveðið
var að halda fundinn hér á
landi fóru svo að heyrast ótta-
raddir um að nú myndu „þeir
rauðu“ nota tækifærið og
flytja hingað öll þau njósna-
tæki og tól sem tiltæk væru í
Sovét. Það væri einmitt í þeim
tilgangi sem Rússamir hefðu
verið svo æstir í að komast
hingað.
Gorbatsjov.
En hinir framsýnni hafa
bent á aðra ástæðu, engu lak-
ari. Þeir segja nefnilega að
Rússamir séu þegar búnir að
koma upp svo trausttun bún-
aði hér á landi að héma vilji
þeir vera og hvergi annars
staðar.
V
Það þýðir lítið tyrir fegrunar-
nefnd Akraness að dæma
svona skraut.
Seint í rass-
inn gripið
Akumesingar hlaupa ekk-
ert á undan sjálfum sér, ef
marka má fregnir Bæjarblaðs-
ins á Skaganum. Þeir kusu til
að mynda fegrunarnefnd ekki
fyrr en í september síðastlið-
inn.
Hlutverk þeirrar nefndar er
annars að kjósa fegurstu garð-
ana í plássinu, sem mun full-
seint þegar skrúðblómin era
löngu frosin í hel og tré orðin
sköllótt. Nefndin sú arna
verður því að halda að sér
höndunum í þessum efnum þar
til næsta sumar, nema þá að
hún skelli sér í að skoða garð-
ana þegar þeir verða komnir
undir snjó.
Sjö milljón-
irfyrir nafn
Víðir gamli í Mjóddinni
heitir nú Kaupstaður, eins og
rækilega hefur komið fram í
auglýsingum. Sannast sagna
er Kaupstaðamafnið heldur
óþjált sem heiti á verslun.
Enda stóð aldrei til að Víðir
breytti um nafn þegar eig-
endaskipti urðu á versluninni.
Málið mun þannig vaxið að
þegar Kron-menn keyptu gull-
námuna í Mjóddinni buðu þeir
Viðisbræðrum stórar fúlgur
fyrir nafnið. Sumir segja allt
að sjö milljónum króna. En
Víðisbræður höfnuðu þessu
alfarið og sögðu að Víðis-
nafnið væri alls ekki til sölu.
Þá snera Kron-menn sér til
eiganda verslunarinnar Vísis
á Laugavegi og föluðu það
nafn af honum til að breyta
nú sem minnstu. En það var
sama sagan þar. Nafnið var
ekki til sölu.
Á endanum var því gripið
til þess ráðs að smíða nýtt
nafn á verslunina í Mjódd-
inni. Kaupstaður varð niður-
staðan á þeim vangaveltum, -
því miður.
Samfelld
hátíð
Vesturbæingar óska þess nú
heitast af öllu að stórafmælis-
veislum og leiðtogafundum
linni ekki í bráð. Lagfæringar
ýmiss konar og hreingerning-
ar hafa nefnilega tröllriðið
vesturbænum það sem af er
árinu.
Tökum Víðimelinn sem
dæmi:
Undanfarin ár hafa gang-
stéttir þar verið í megnasta
ólestri. Þær voru svo ójafnar
að gamalt fólk var alltaf að
detta þar og bijóta sig. Voru
sum gamalmennin í áætlunar-
ferðum upp á slysavarðstofu
yfirvetrart.ímann. Enekkert
var að gert.
Svo var það skyndilega fyrir
200 ára afmæli Reykjavíkur-
borgar að gangstéttimar vora
rifnar upp með offorsi og end-
urlagðar, þá sléttar eins og
bamsbossi. I það sinnið
gleymdist þó að tyrfa moldar-
ræmur sem lágu meðfram
blokkunum.
En svo kom að leiðtoga-
fundinum, sem líkur era á að
berist vestur í bæ, ef fram
heldur sem nú horfir. Þegar
af honum fréttist var rokið í
að tyrfa ræmumar í einum
hvínandi hvelli. Engu var
skeytt um frost eða fjúk né þá
lífslíkur túnþakanna. Allt
skal nú lagt í sölurnar fyrir
augað.
Það er ekki nema von að
vesturbæingar vilji fleiri af-
mæli og fleiri fundi.
Skildi ekkert
Verslunarferðirtil útlanda
eru mjög í tísku um þessar
mundir. Og það er eins og
áður, landinn geggjast þegar
hann kemst í „ódýra“ góssið.
Hópur Suðumesjamanna
var, að sögn Víkurfrétta, ný-
lega staddur erlendis í einni
slíkri verslunarferð. Þar á
meðal voru hjón ein að kaupa
föt á son sinn, en sá sat heima.
Hjónin vora ekki öragg á
stærð fatnaðarins sem kaupa
átti.
En þegar neyðin er stærst
er hjálpin næst. Skammt frá
hjónakomunum stóð nefni-
lega strákpatti á stærð við
soninn. Þau fengu því sam-
ferðamann, sem glúrinn var í
útlensku, til að tala strákinn
inn á að máta fötin. Sá mál-
slyngi vék sér strax að strássa
og stóð bunan út úr honum.
En strákurinn varð alltaf
kindarlegri eftir því sem á
ræðuhöldin leið og loks kall-
aði hann upp á kjamgóðri
íslensku:
„Amma, ég ski) ekki mann-
inn...“
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Kvikmyndir
Hanna og systurnar ★★★★
Fjölskyldumynd Allens
Hanna og systumar (Hannah And Her Sist-
ers).
Leikstjóri og handritshöfundur: Woody Al-
len.
Kvikmyndun: Carlo Di Palma.
Aóalleikarar: Mia Farrow, Michael Caine,
Barbara Hersey, Dianne Wiest, Woody
Allen og Max Von Sydow.
Woody Allen hefur með Hönnu og
systrunum sannað enn einu sinni að
hann er með mestu kvikmyndagerð-
armönnum sem nú eru uppi. Myndin
sem er hans aðgengilegasta kvik-
mynd síðan Annie Hall er lýsing ó
fjölskyldu einni í New York og er
látin gerast á tveimur árum. Við
kynnumst fyrst persónum myndar-
innar í þakkarhátíðarveislu sem ein
af þremur systrum Hanna heldur.
Hanna er hjálpsemin og blíðlyndið
uppmálað og býr að því er henni
virðist í hamingjusömu hjónabandi
með Elliot. Hann aftur á móti er
heldur betur búinn að fá gráa fiðr-
inginn og öll hans löngun beinist að
Lee systur Hönnu sem býr með ein-
angruðum listamanni Frederick sem
er á góðri leið með að brjóta hana
andlega. Hún er því auðveld bráð
fyrir Elliot þegar líða tekur á mynd-
ina. Þriðja systirinn er svo Holly,
fyrrverandi kókaínneytandi sem á í
erfiðleikum með að koma sér niður
á jörðiha og þrátyt fyrir að Hanna
hjólpi henni peningalega og ráðleggi
henni virðist líf hennar háð tilviljun-
um og mistökin eru mörg.
Við sögu kemur einnig Mickey,
fyrrverandi eigimaður Hörrnu sem
er ímyndunarveikur sjónvarpsmað-
ur á nipðurleið. Þá koma einnig
aðeins við sögu Foreldrar systranna
Mia Farrow leikur Hönnu, eina af
þrem systrum í nýjustu kvikmynd
Woody Allen.
og fram kemur að þau haf á skraut-
legri ævi komið nálægt mörgu er
tengist skemmtibransanum.
Þessari fjölskyldu tekst Woody
Allen að lýsa á stuttum tíma einstak-
lega vel. Eiginleikar, slæmir og góðir
eru minnisstæðir og þrátt fyrir allt
sem ó gengur er hér um einstaklega
mannlegar lýsingar á hversdagslegu
fólki, fólki sem eru miklar andstæður
en hafa samt öll eitthvað sameigin-
legt. Það er helst að foreldamir skeri
sig úr þótt lítið komi við sögu.
Það er mikið og gottlið úrvalsleik-
ara sem fara með aðalhlutverkin.
Fyrst ber að nefiia Miu Farrow sem
vex með hverri mynd sem hún leikur
í fyrir sambýlismann sinn Woody
Allen. Henni tekst ó látlausan hátt
að koma gæðum prýddu Hönnu til
skila svo unun er að fylgjast með.
Systur hennar eru leiknar af Bar-
bara Hersey og Dianne Wiest og er
sérstaklega gaman að sjó hversu vel
Barbara Hersey sem ekki hefúr feng-
ið mörg góð hlutverk tekst til.
Michael Caine bregst ekki frekar en
venjulega. I stað þess að fá fyrirlitn-
ingu á framkomu Elliot hefúr maður
meðaumkun með honum í meðfórum
Caine.
Þótt ekki sé hægt að tala um
Hanna og systumar sem gaman-
mynd, þá er ekki laust við að Woody
Allen í hlutverki eiginmannsins
fyrrverandi kitli hláturtaugar áhorf-
andans, ón þess að yfirkeyra.
Stundum liggur þó við að hann fari
á fomar slóðir, sérstaklega á þetta
við þegar trúskiptin hjá honum
standa yfir.
Á undanfomum órum, hefur
Woddy Allen gert hvert snilldar-
verkið á fætur öðm. Eiginlega
byrjaði þetta fijósama tímabil með
Zelig, þvínæst kom Broadway
Danny Rose, þá hin frumlega Kairó-
rósin og svo nú hin glæsilega Hanna
og systumar. Woody Allen er þegar
komin á stað með nýja mynd, enda
snillingurinn afkastamikill og vist
er að spennandi er að fylgjast með
hver útkoman verður. tekst honum
enn einu sinni að koma kvikmynd-
faheiminum á óvart með snilldar-
verki sem er svo allt öðm vísi en það
síðasta?
Hilmar Karlsson.
LÆKNASTOFA
Hef opnað stofu í læknastöðinni hf., Áifheimum 74.
Tímapantanir í síma 686311 alla virka daga frá 9-17.
Uggi Agnarsson
Sérgrein: Lyflækningar og hjartasjúkdómar.
ORKUBÓT
Sími: 39488
KVENNADAGAR:
mánudagar, miðvikudagar og föstudagar.
KARLADAGAR:
þriðjudagar, fimmtudagar og laugardagar.
Upplýsingar og innritun í síma 39488.
skrifstofuhúsgögn
skrifborð - stólar - fundaborð -
afgreiðsluborð, laus skilrúm og margt fleira.
★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léieg 0 Afleit
notuð
EINSTAKT
TÆKIFÆRI
Opið í dag kl. 14-19,
laugardag kl. 14-16.
Komið í Síðumúla 12, 2. hæð.
Dagblaðið-Vísir
getraina-
VINNINGAR!
7. LEIKVIKA-4. OKTÖBER1986
VINNINGSRÖÐ:
222-1XI-1XX-2X1
1. VINNINGUR: 12 RÉTTIR, kr. 1.011.610,-
550618 ------------------
2. VINNINGUR: 11 RÉTTIR,
kr. 72.258,-
44980 49309 130726+ 200581+ 202488(2/11)
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Kærufrestur er til ménudagsins 27. okt. 1986 kl. 12.00 é hédegi.
Kærur skulu vera skrillegar. Kærueyöublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni
Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa stofni eða senda stotninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til Islenskra Getrauna tyrir lok kærufrests.