Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Side 33
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
,13
Beint samband
fra LofUeiðum
til Washington
Fréttamiðstöð Hvíta hiissins verður
í Víkingasal Hótel Loftleiða. Þar fá
einungis þeir fréttamenn aðgang sem
tilheyra sérstökum hópi fréttamanna
sem fylgja forsetanum. Sá hópur mun
að öllu jöfriu vera um 250 manns.
I gær var verið að ljúka við að tengja
símakerfi sem komið var með til lands-
ins frá Bandaríkjunum sem sér um að
beint samband sé á milli Loftleiða og
Washington. í þessari stöð eru 68 línur
og er Intelsat hnötturinn notaður til
að koma símtölunum vestur um haf.
Fréttamiðstöðin verður opnuð á
fimmtudagskvöldið þegar forsetinn og
fýlgdarlið hans koma til landsins.
SJ
Flugleiðir með
1800 aukasæti
- Amarflug með 400-600
„Við erum með 1800 aukasæti vegna
tilstandsins í sambandi við leiðtoga-
fundinn og ljóst er að sætanýtingin
ætlar að verða minni en við bjugg-
umst við. Til að mynda voru loo sæti
auð frá New York í gær. Þá er einnig
ljóst að sætanýting frá Luxemburg og
London er minni en við bjuggumst
við. Ástæðan fyrfr þessu er m.a. að
margir fréttamenn hafa tvíbókað sig
til þess að gulltryggja sér far til Is-
lands,“ sagði Sæmundur Guðvinsson,
blaðafulltrúi Flugleiða, í samtali við
DV.
Amarflug býður upp á 400-600
aukasæti til landsins frá þeim stöðum
sem félagið flýgur til erlendis.
Sæmundur Guðvinsson sagði að
mikil örtröð yrði nk. mánudag þegar
koma þyrfti gestum aftur frá landinu
því allir vildu komast burt frá landinu
þann dag. Hann sagði það ljóst að
þann dag kæmust ekki allir brott og
yrðu því einhverjir að bíða næsta dags.
Þó yrði reynt að verða við óskum
flestra og ef þörf krefði myndu Flug-
leiðir taka aukavélar á leigu.
-S.dór.
Miðamir
í morgun fór vel á annað hundrað
manns til London og mun dveljast þar
fram á mánudag og er verð ferðarinn-
ar, fargjald og hótelgisting, aðeins
12.500 kr. Flugleiðir buðu þessi kjör
vegna þess að vélar félagsins fara nær
tómar út til að sækja fólk tilheyrandi
leiðtogafundinum.
Frá því að þessi kjör voru auglýst
mnnu út
sl. mánudag hefur verið mikið að gera
hjá afgreiðslu Flugleiða. Sömuleiðis
var auglýst 18 daga ferð til Flórída á
mjög hagstæðu verði og höfðu 40
manns pantað í þá ferð i gær að sögn
Sæmundar Guðvinssonar, blaðafull-
trúa Flugleiða. Flórídaferðin kostar
rúmar 18000 kr.
-S.dór.
Frímiðafarþegar
strandaglópar
Þeir íslendingar sem voru á ferða-
lagi erlendis og höfðu ferðast á frímið-
um frá íslensku flugfélögunum komast
ekki heim fyrr en umferðarörtröðinni
vegna leiðtogafundarins lýkur eftir
helgina.
Sæmundur Guðvinsson, blaðafúll-
trúi Flugleiða, staðfesti í samtali við
DV að allnokkrir landar sætu fastir
erlendis vegna þess. Hann sagðist ekki
vita um hve margt fólk væri að ræða
en taldi að þeir væru ekki mjög margir.
Þar sem um frímiðafarþega er að
ræða verða þeir að sjá sér fyrir gist-
ingu og uppihaldi á eigin kostnað þar
til úr rætist með far heim.
-S.dór.
Þeir dóu ekki ráöalausir japönsku sjónvarpsmennirnir og útveguðu sér
heimild fyrir gámum á Reykjavíkurflugvelli við flugskýlí númer eitt þegar
þá vantaði vinnuaðstöðu. í gær var verið að setja sima og rafmagn i gám-
ana og siðan mun vera ætlunin að klæða þá að innan til einangrunar.
DV-mynd KAE
Það var mikið annríki í Víkingasal Hótel Loftleiða í gær þegar verið var að breyta salnum í fréttamiðstöð fyrir Hvita húsið.
BN MEST SELDA HEIMIUS-
TÖtiAN Á MARKAÐNUM!
Það er engin tilviljun að AMSTRAD er ein vinsælasta tölvan í heiminum í dag. Síðastliðin tvö ár
hafa yflr 1 mllljón AMSTRAD tölvur verið seldar. Með hverjum degi sem líður fá tölvukaupendur
meira og meira fyrir peningana sína. í þeirri þróun er AMSTRAD tvímælalaust í fremstu röð.
AMSTRAD CPC 6128 og CPC 464 sameina frábæra hönnun, afl og hraða, einstaklega góða liti í
skjá, gott h[jóð og geysispennandi notkunarmöguleika. - Tvær afburðatölvur sem færa þig nær
framtíðinni.
CPC 6128
• TÖLVA • DISKSTÖÐ • UIASKJAR
128 K RAM örtölva Z80A 4MHz meö innbyggöu Basic,
hátalara og tengjum fyrir prentara, segulband og aukadiskstöð.
640 x 200 teiknipunktar á skjá, 27 litir.
20, 40 eða 80 stafir [ línu, íslenskir stafir.
CP/M PLUS stýrikerfi og DR.LOGO forrltunarmál
Verð aðeins
35.980,— kr. stgr.
CPC 464
• TÖLVA • SEGULBAND • LflASKiÁR
64 K RAM örtölva 280A MHz með innbyggðu Basic, hátalara
og tengjum fyrir prentara og diskstöð.
640x 200 teiknipunktar á skjá. 27 litir.
20, 40 eða 80 stafir í Knu, íslenskir stafir.
Verð aðeins
26.980,— kr, stgr.
ÞUSUNDIR FORRITA!
Úrval af forritum, bókum og tímaritum fyrir AMSTRAD.
Aukahlutir: Diskdrif - sfyripinnar - teiknipenni - stereohátalarar - mús o.fl. o.fl.
,./2S%
utborgun
eftirstöðvar allt^að 6 mán.l
v/Hlemm, símar 29311 & 621122.
UmboOsmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman. Akureyrl: Bókabúðin Edda, Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga, OJúplvogur: Verslunin
Djúpið. Grlndavfk: Bókabúð Grindavíkur. Hafnarfjörður: Kaupfélag Hafnfirðinga. Húsavfk: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, Isafjöröur:
Hljómborg, Keflavfk: Bókabúð Keflavikur, Vestmannaeyjar: Videóleiga G.S.
_ TÖLVULAND HF., SÍMI 17850
öll V4?rð miöuð við gengi I. okt. 1986 og staögretöslu. _________________________________