Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Síða 34
34
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Andlát
Guðmundur Þórarinsson lést 28.
september sl. Hann fæddist í Ytri-
Tungu í Breiðuvíkurhreppi 11. maí
1893. Foreldrar hans voru Jensína
Jóhannsdóttir og Þórarinn Þórar-
insson. Guðmundur giftist Þórhildi
Kristjónsdóttur en hún lést árið 1966.
Þeim hjónum varð fjögurra barna
auðið. Útför Guðmundar verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Björn Þorsteinsson, fyrrverandi
prófessor, andaðist í Borgarspítalan-
um mánudaginn 6. október.
Erlendína Magnúsdóttir, Kirkju-
vogi, Höfhum, lést í sjúkrahúsi
Keflavíkur 6. október.
Sophus S. Magnússon frá Drangs-
nesi lést á Sjúkrahúsi Akraness 6.
október.
Jóhann J. E. Kúld lést í Borgarspít-
alanum 7. október.
Indijana (Sveinsdóttir) Sigurd-
son, lést á Betel Gimli, Manitoba,
Canada 4. október 1986.
Guðmundur Oddgeir Jónsson
matsveinn, Arnarhrauni 7, Hafnar-
fírði, sem lést 26. september, verður
jarðsunginn í dag, 8. október, kl. 15
fró Hafnarfjarðarkirkju.
Sjturla Jóhannesson, Sturlu-
Reykjum, verður jarðsunginn fró
Reykholtskirkju föstudaginn 10.
október kl. 15. Farið verður frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 12.
Útför Klöru Helgadóttur, Hólm-
garði 58, sem lést þann 30. september,
fer fram frá Bústaðakirkju 9. október
og hefst athöfnin kl. 15.
Ásgerður Ágústa Ágústsdóttir frá
Lýsudal í Staðarsveit, Hraunbæ 10,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Staðarstað laugardaginn 11. október
kl. 15. Rútuferð verðurfróBSÍ kl. 11.
Margrét Sigurþórsdóttir, Stiga-
hlíð 32, verður jarðsungin fró
Fossvogskirkju föstudaginn 10.
október kl. 13.30.
Sighvatur Þorsteinsson, Furu-
gérði 11, er andaðist 2. okt., verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 9. október kl. 13.30.
Tombólur
Tombóla á Eskifirði.
Þessar efnilegu og duglegu stúlkur, Dilja
Rannveig Bóasdóttir og Oddný Svana
Friðriksdóttir, sem báðar eru 8 ára og eiga
heimili við Bleiksárhlíðina á Eskifirði,
héldu tombólu á dögunum að Bleiksárhlíð
15 með hjálp góðra manna. Alls söfnuðust
kr. 1850 sem þær afhentu meðhjálparanum
á Eskifirði, Gunnari Auðbergssyni, sem
tók við þeim f.h. Hjálparstofnunar kirkj-
unnar. Þess má geta að þessar tvær
stúlkur voru líka með tombólu í fyrra
ásamt 2 öðrum vinkonum sínum og söfn-
uðust þá 1.280 krónur sem þær létu síðan
renna í söfhunina Brauð handa hungruð-
um heimi.
Tilkyrtningar
Minningarkort Áskirkju
Minningarkort safnaðarfélags Áskirkju
hafa eftirtaldir aðilar til sölu: Þuríður
Ágústsdóttir, Austurbrún 37, sími 681742.
Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, s.
681984, Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17,
sími 82775. Holtsapótek, Langholtsvegi 84.
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27.
Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27, og
Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1. Þá
gefst þeim sem ekki eiga heimangengt
kostur á að hringja í Áskirkju, sími 84035,
milli kl. 17 og 19 á daginn og mun kirkju-
vörður annast sendingu minningarkorta
fyrir þá sem þess óska.
Samtök lækna
gegn kjarnorkuvá
Alþjóðasamtök lækna gegn kjamorkuvá
IPPNW er alþjóðleg friðarhreyfing 150
þúsund lækna óháð stjómmálaöflum. Þau
eru handhafar friðarverðlauna Nóbels
árið 1985 og hafa það að markmiði að
koma í veg fyrir kjamorkustríð. Alþjóða-
samtökin og íslandsdeild þeirra, Samtök
íslenskra lækna gegn kjamorkuvá, fagna
því að leiðtogar stórveldanna, þeir Ronald
Reagan og Michael Gorbachev, hafa
ákveðið að ræðast við á ný. Samtökin
hvetja leiðtogana til að sameinast um að
stöðva allar tilraunir með kjamorkuvopn
þar til samkomulag næst um alþjóðlegt
bann við kjarnorkuvopnatilraunum og
frekari útbreiðslu kjamorkuvopna. Slíkt
frumkvæði yrði öðrum kjarnorkuveldum
hvatning sem draga mundi úr kjamorku-
vopnakapphlaupinu. Samtökin óska þess
að fundurinn í Reykjavík verði heims-
byggðinni til heilla.
Dregiö úr réttum lausnum í
getraunakeppni Puffins
Þann 10. september sl. var dregið úr rétt-
um lausnum í getraunakeppni Puffins,
Islandi, frá heimilissýningunni ’86. Heild-
verslun Axel Ó. þakkar öllum þeim sem
þátt tóku í getrauninni. Ánægjulegt var
hversu margir voru fróðir um framleiðslul-
öndin. Puffins skómir eru framleiddir á
Islandi og í Portúgal. Rétt svar er því Is-
land, Portúgal. Eftirtaldir aðilar eru
Puffins lukkunnar pamfílar og mega velja
sér eitt par af Puffins skóm.
1. Margeir S. Ingólfsson, Engjaseli 29.
2. Guðjón Þorvaldsson, Marbakkabraut
32.
3. Svavar Dór Halldórsson, Dísarási 11.
4. Berglind Guðmundsdóttir, Álfhólsvegi
123.
5. Trausti Sigurðsson, Hörgshlíð 2.
6. Auður Guðmundsdóttir, Æsufelli 22.
7. Kristín Svava Svavarsdóttir, Furugrund
45, Kóp.
8. Gylfi Þ. Gylfason, Smyrlahrauni 39.
9. Anna Sif Gunnarsdóttir, Tjarnarbóli 14.
10. Guðrún Elíasdóttir, Bólstaðarhlíð 11.
Vinningshafar eru beðnir að hafa samband
í síma 21675 alla virka daga.
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Ráðstefna á vegum
Hjálpræðishersins
Um þessar mundir eru í heimsókn á Is-
landi ofurstahjónin Einar og Bergljót
Madsen. Hann er yfirmaður Hjálpræðis-
hersins á Islandi, í Færeyjum og Noregi
en hún er forseti ýmissa samtaka innan
hersins. Auk þess að kynna sér starfið á
Islandi og halda samkomur við flokkana
mun ofursti Einar Madsen halda fyrir-
lestra á foringjaráðstefnu sem haldin er í
Reykjavík. Ráðstefnan hefur staðið í tvo
daga og lýkur með almennri samkomu í
kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 í Herkastal-
anum, Kirkjustræti 2. Þátttakendur
ráðstefnunnar munu sjá um samkomuna
en aðalræðumaður verður ofursti Einar
Madsen, umdæmisstjóri. Fimmtudaginn
9. október verða gestimir í fararbroddi á
samkomunni um kvöldið, það eru þær
kapteinn Ingrid Björke og lautinantamir
Marianna Jakobsen, Björg Tronstad og
Britt Grimstad, sem em foringjar í Þórs-
höfn og Vogi. Einnig mun vistfólk á
Dalbraut og heilsuhælinu í Hveragerði
njóta góðs af fögrum söng og hljóðfæra-
slætti þessara ungu stúlkna þar sem farið
verður á þe'ssa staði.
Útvarp - Sjónvarp dv
Eiríkur Jónsson safnstjóri:
Mikill húmoristi og mannvinur
Ég hef fylgst með þáttunum Vitni
deyr og er mjög hrifinn af þeim.
Breskir þætti eru alla jafna bestir,
mjög vandaðir og spennandi. Það
er munur að sjá þennan þátt eða
Arf Afrótítu sem var einhver mesta
hörmung sem sést hefur í íslenska
sjónvarpinu. Peter Ustinov var á
skjánum í gærkvöldi í annað skipti
á stuttum tíma. Hann er mikill húm-
oristi og mannvinur svo að maður
hressist allur upp við að horfa á
hann.
En þó að margt sé gott í sjón-
varpinu þá er ýmislegt sem gera má
athugasemdir við. Þar á ég sérstak-
lega við þær breytingar sem gerðar
hafa verið á tímasetningu dagskrár-
liða. Hinir ýmsu dagskrárliðir um
kvöldmatarleytið eru á góðri leið
með að sundra þeim brotum sem eft-
ir voru af hinni íslensku vísitölufjöl-
skyldu. Einnig má nefna að ekkert
hefúr verið sýnt beint frá enskum
knattspymuleikjum það sem af er
hausti og reyndar lítið af breskum
leikjum yfirleitt. Aðdáendur ensku
knattspymunnar em að vona að
Stöð 2, sem nú er að hefja störf, verði
með beinar lýsingar frá enskum
knattspymuleikjum. Útvarpsráð
hefúr greinilega vilja meirihluta
þjóðarinnar að engu í þessu máli.
í sambandi við bamaefni vil ég
nefria að ég er mjög ánægður með
hve mikil aukning hefúr orðið á því
þó að mér finnist það reyndar mega
vera á örðum tíma.
í útvarpi hlusta ég alltaf á kvöld-
fréttimar á rás 1. En ég hef yfileitt
ekki tækifæri til að hlusta á útvarp
á öðrum tímum. Þó kveiki ég öðm
hvom á léttri tónlist á rás 2 og Bylgj-
unni.
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
Félagsvist verður spiluð laugardaginn 11.
október kl. 14 í félagsheimilinu, Skeifunni
17, 3. hæð. Allir velkomnir.
Skemmtileg samvinna
1 tilefni af 200 ára afinæli Reykjavíkur
hefiir veitingahúsið Gullni Haninn við
Laugaveg 178 prýtt glæsileg húsakynni sín
með myndum Sólveigar Eggerz listmálara.
Sólveig hefur getið sér gott orð fyrir mynd-
verk sín, bæði hér heima og erlendis.
Ásamt hefðbundinni málun hefur Sólveig
einnig fengist við málum á rekavið og
hafa þau verk ekki síður notið vinsælda.
Samvinna veitingahússins og listmálarans
hefur fallið gestum einkar vel í geð og
mun því verða framhald á henni um óá-
kveðinn tíma. Settar hafa verið upp nýjar
myndir og er viðfangsefni Sólveigar að
þessu sinni Reykjavík. 1 myndunum reynir
Sólveig að lýsa þeim töfrum sem borgin
býr yfir og skapa þá stemmningu sem rík-
ir í umhverfi gamalla og fagurra húsa. Að
þessu sinni eru allar myndir Sólveigar
Eggerz til sölu. Sýningin er opin á opnun-
artíma Gullna Hanans, frá kl. 11.30-14.30
og frá kl. 18 en lokað í hádeginu á sunnu-
dögum.
Afmæli
75 ára er í dag, 8. október, Ólafur
Beinteinsson verslunarmaður,
Hvassaleiti 58 hér í bæ. Hin síðari
ár hefur hann’verið aðstoðarútfarar-
stjóri hjá Kirkjugörðum Reykjavík-
ur. Hann og eiginkona hans,
Sigurveig Hjaltested óperusöng-
kona, eru erlendis um þessar mundir.
Maður handtekinn
vegna árásarinnar
Rannsóknarlögreglan handtók í
gærkvöldi mann sem tahnn er vera
viðriðinn árásina í Gamla kirkjugarð-
inum og hefur viðkomandi verið í
yfirheyrslum vegna málsins.
Sem kunnugt er af fréttum var ráð-
ist á fimmtuga konu í kirkjugarðinum
og slapp árásarmaðurinn en konan
kærði atburðinn.
-FRI
Concorde í Keflavík:
Kaupsýslumenn
í sundskýlum
„Ég var að taka á móti Concorde
á Keflavíkurflugvelli ásamt nokkrum
öðrum fegurðardrottningum," sagði
Hólmfríður Karlsdóttir er DV ræddi
við hana á sundlaugarbarmi Laugar-
dalslaugarinnar í gær. „Mér skildist
að þama væru á ferðinni bandarískir
kaupsýslumenn sem hefðu unnið flug-
ferðina í einhverri getraun og máttu
ekki taka neitt með sér annað en vega-
bréf og sundskýlu."
Samkvæmt öðrum heimildum DV
voru kaupsýslumennirnir í Concorde-
ferðinni ekki með annan farangur en
vegabréf og tannbursta og var boðið
að snæða hér á landi áður en snúið
var vestur um haf á ný í gærkvöldi.
Tannbursti eða sundskýla. Það
skiptir ekki öllu. Concorde lenti í
Keflavík í gær.
-EIR
Fiskmarkaður
alveg á næstunni
„Áhugi manna íyrir því að setja
upp fiskmarkað er mikill og ég tel
engan vafa leika á því að menn hefjist
handa með uppsetningu hans alveg á
næstunni," sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra í samtali við DV
í morgun.
Ráðherra sagði að hér væri um til-
raun að ræða, tilraun sem hann teldi
alveg sjálfeagt að gera ef það mætti
verða til þess að draga úr gámasölu
íslendinga og siglingum fiskiskipa. í
stað þess að íslendingar væru að senda
út gáma gæti þetta orðið til þess að
fiskkaupendur sendu sína gáma hing-
að til lands til fiskkaupa og sagðist
Halldór telja það af hinu góða.
Hvað varðar staðsetningu fyrsta
markaðarins sagði Halldór að talað
væri um að setja hann upp á Faxa-
flóasvæðinu. Hann gæti því verið
settur upp hvar sem væri frá Þorláks-
höfh til Akraness. Engin ákvörðun
hefur enn verið tekin um það en það
verður gert næstu daga.
Kostnaður ræðst að sjálfsögðu af
stærð markaðarins en kostnaðartölur
hafa verið nefndar allt frá 6,5 milljón-
um króna og upp í 12,5 milljónir.
Aðspurður hvort ekki væri nauðsyn-
legt að ráðast í byggingu húsnæðis
vegna þessa sagði Halldór að það
væri ekki víst og færi nokkuð eftir því
hve stór markaðurinn yrði en sjálfsagt
kæmi að því ef tilraunin heppnaðist.
Að lokum sagði Halldór Ásgrímsson
að margt væri óljóst varðandi fisk-
markað hér á landi en þessi tilraun
mun væntanlega leiða í ljós kosti og
galla þess að reka frjálsan fiskmarkað
á íslandi.
-S.dór.
EskKjörður:
Hrafnkell í prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
Emil Hioiarensen, DV, Eskifirði:
Hrafnkell A. Jónsson hefur ákveðið
að gefa kost á sér í prófkjöri sjálfetæð-
ismanna á Austurlandi. Hrafnkell
bauð sig fram fyrir óháða í síðustu
sveitarstjómarkosningum, Sjálfstæð-
isflokkinn áður og Alþýðubandalagið
þar áður.
Er hann var spurður hvers vegna
hann færi fram fyrir Sjálfetæðisflokk-
inn nú sagðist Hrafnkell gera það til
að ná sem bestum árangri. Góður ár-
angur gæti talist að ná þriðja sæti og
þar fyrir ofan væri ágætt.
Eingöngu félagsbundnir sjálfetæðis-
menn, sem eru orðnir 16 ára, taka
þátt i prófkjörinu, svo og þeir sem
ekki em félagsbundnir en skrifa undir
yfirlýsingu þess efnis að þeir styðji
Sj álfstæðisflokkinn.