Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Síða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Audrey
Hepburn
hefur loksins Ijóstrað upp
leyndarmálinu um hvernig
hún hefur haldið sér svona
grannri allt sítt líf: „Ég svalt
þegar ég var barn. Fjölskylda
mín var svo fátæk." Upp úr
1950 var síðan í tísku að
vera flatbrjósta og horaður
og byggðist sú tíska á útliti
Audrey.
Diana Ross
- sem nú er næstum norsk
eftir neglinguna á Arne
Næss - hefur það alveg á
hreinu hvað hún vill þegar
kvikmyndaframleiðendur
eru annars vegar. Við hverja
töku skulu þeir hafa til reiðu
minnst sex limúsínur til um-
ráða fyrir söngkonuna og að
auki sína í hverjum litnum.
Við hérna á Fróni megum
víst þakka fyrir að Reagan
og Gorbatsjov eru ekki sömu
prímadonnurnar þegar litur
á bíllakki er annars vegar -
svart er ágætt, takk, hafa
þeir félagarnir um málið að
segja.
er víst ekkert erfítt að gera
til hæfis. Stjörnustælarnir
rista ekki djúpt hjá frúnni -
einu sérþarfirnar eru fjólu-
bláir fataskápar og dýra-
læknir í kallfæri. Allir vita
hversu mikill dýravinur dam-
an er, stundum eru kjöltu-
rakkarnir í fylgdarliðinu fleiri
en aðstoðarfólkið. Því þarf
að gæta vel að heilsu hinna
viðkvæmu fjórfætlinga og
ekkert kjölturakkakvef fer
framhjá fránum augum
hinnar dáðu leikkonu.
Heill herskari sérfræðinga hefur legið yfir því hverju kapparnir skuli klæðast fyrir myndatökuna. Staðurinn er Genf og
sem vera ber er sá rússneski ekki ennþá kominn inn úr kuldanum, iklæddur þykkum frakka með trefil á brjósti. Banda-
ríkjamaðurinn hefur brosið á hreinu og bindið myndar fíngerö hugartengsl við þjóðfánann.
/
semskapa
manninn
Að ýmsu þarf að gæta þegar taka
skal á móti höfðingjum og það er eins
gott fyrir þá kappa, Steingrím, Matthí-
as og fleiri, að fara að líta inn í
fataskápinn. Á að samræma aðgerðir
þannig að ekki verði einn í köflóttum
jakkafötum, annar í rósóttri skyrtu
og sá þriðji íslenskri úlpu? Samsetn-
ingin er afleit á mynd og vissara að
hafa allt á hreinu. Þetta er eitt út-
pældasta atriði slíkra opinberra
sýninga erlendis og víst er að augu
alheimsins beinast hingað á skerið um
þær mundir.
Eigum við að nýta tækifærið og
auglýsa íslensku ullina með tilvísun í
langa sögu vaðmálsplagga hérlendis?
Hætt er við að svitinn færi að spretta
út á einhverjum íslensku fyrirmann-
anna ef þeir væru haiðir ullarklæddir
frá hvirfli til ilja og eins er alltaf
vandamálið að efrúð vill kitla og
stinga þegar verst lætur. Ekki dugir
að hafa mannskapinn sveittan og klór-
andi en ljóst er að hvert skref þarf að
íhuga vandlega.
Mikilvægt er að vera sjálfum sér samkvæmur og ekki síður þjóðlegur í fatavali. Þetta eru
Afganir sem mættu til skrafs við Reagan í ávölu skrifstofu Hvíta hússins. íslenskir ráðamenn
verða að taka ákvörðun um hvort mæta skal í kórónafötum, vaðmálsfatnaði eða alklæðnaði
frá Sambandinu - og samræma síðan aðgerðir.
Við Genfarviðræðurnar voru valin jakkaföt með hefðbundnu
sniði á alla hersinguna. Sovéskir sendimenn báru dökk bindi
að auki en bandaríkjamenn leyfðu sér meira frjálslyndi i litav-
ali. Augljós þægindi þegar þekkja þarf í sundur leikmenn liðanna.
• '■*««**!
Raisa Gorbatsjov er bylting hvað varðar eiginkonur sovéskra leiötoga. Hún
er nokkuð augljóslega á lífi og sýnir áhuga á ýmsum hiutum. Meðfylgjandi
mynd er tekin þegar Gorbatsjov heimsótti Frakkland en þá heimsótti frúin
frönsk tískuhús. íklædd röndóttri dragt gengur hún fram ganginn í tiskuhúsi
Yves Saint Laurent á Avenue Marceau við hlið Yves Saint Laurent og Pierre
Við Genfarviðræðumar var síst minna skrifað um eiginkonumar, Nancy og
Raisu, heldur en innihald umræðnanna. Fötin, sem þær klæddust, vom stór-
mál sem farið var virkilega grannt í saumana á að þessu sinni.