Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Blaðsíða 37
37
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Sviðsljós
Ber er hver að baki
Þad er borðleggjandi að ber er hver að baki
nema sér flóðhest eigi ef marka má yfirbragðið
á meðfylgjandi mynd. Myndin er tekin i dyra-
garðinum i Chessham i Englandi og nokkuð Ijóst
að starfsmaður dýragarðsins veit ekki hvaða
sjón bíður ef hann rennir augunum aftur fyrir
sig. Andrúmsloftið er annars dásamlega afs-
lappað hjá tvímenningunum og vonandi að Frikki
flóðhestur hafi ekki lokað munninum harkalega
í lok senunnar.
Flísin og rassinn
Tilkynningin um giftingu skipa-
kóngsins Aristotele Onassis og for-
setaekkjunnar Jakcie Kennedy kom
mjög eins og köld skvetta yfir vestræn-
an almenning en nú segir í nýrri bók
Peters Evans um Ari Onassis að þau
hafi í raun hist á laun árum saman.
Fæstir gerðu ráð fyrir að þau ættu
mikið sameiginlegt og ástir þeirra ollu
gífurlegum heilabrotum meðal helstu
sérfræðinga í parasamböndum þeirra
frægu og ríku.
Kennedyklanið gerði allt til þess að
koma í veg fyrir að Jackie gerði al-
vöru úr því að bindast Onassis og
lokaátakið fór fram á eyjunni Scorpi-
os. Þangað var Teddy Kennedy boðið
til viðræðna við skipakónginn og var
ætlunin að fá hann til að gefa ekkjuna
eftir. En Ari sá við þeim öllum, hellti
Teddy öskurfúllan í einum ljósgræn-
um hvelli og í timburmönnunum
daginn eftir var erfðaprins Kennedy-
anna ekki í ástandi til að ná miklum
árangri í samskiptunum við Grikkj-
ann snarráða.
Með atburðum fylgdust böm Ari af
fyrra hj ónabandi - lítt hrifin. Christina
lokaði sig inni en Alexander missti
ekki af neinu og lét hafa eftir sér um
lyktir mála.
„Faðir minn elskar fræg nöfn og
Jackie elskar peninga. Þau hæfa hvort
öðm sérlega vel - falla saman eins og
flís við rass!“
Fréttin um samband Aristotele Onassis og Jackie Kennedy kom alheimi mjög
á óvart. í nýútkominni bók vestra segir að þau hafi hist á laun árum saman.
Reuterfréttastofan skýrir frá því í
síðustu viku að Joan Colins hafi ját-
að í sjónvarpsviðtali að hafa tekið
inn kókaín - en aðeins einu sinni.
„Jú, ég tók inn kókaín og það var
hræðilegt,“ segir Joan.
„Þetta gerðist í kókaínpartíi fyrir
mörgum árum. Þá var mér boðið að
prófa og ég ákvað að slá til. En þetta
var alveg hræðileg lífsreynsla sem
ég myndi aldrei vilja endurtaka,"
segir Dynastystjarnan.
„1 íjörutíu og átta tíma var mér
ekki nokkur leið að sofna og kom
ekki dúr á auga. Það var hræðilegt
- voðalegt - og ég ber enga virðingu
fyrir fólki sem tekur inn fíkniefni."
Kóktískan er engin ný bóla meðal
hinna ríku og frægu í Hollívúdd og
er reyndar einn stærsti vandinn sem
yfirvöld ,telja sig eiga við að etja í
sambandi við yngri kynslóðina líka.
Allmargir hafa náð að hætta í kók-
inu en mikill fjöldi eyðir gífurlegum
íjármunum í kókkaup og brennir lífs-
kertið löngu fyrir aldur fram með
notkuninni.
Ein þeirra, sem segist hafa lagt
kókið til hliðar, er Britt Ekland. Hún
kemur ekki nálægt neinum fíkniefn-
um vegna þess að hana langar til
þess að eignast barn sem allra fyrst
með eiginmanninum, Slim Jim. Til
þess að það verði mögulegt er fyrsta
skrefið að leggja niður alla lyfja-
notkun.
„Maðurinn minn, Peter Sellers, var
illa húkkaður á eiturlyf," segir Britt.
„Hann fékk mig fyrst til þess að prófa
marijúana og önnur efni. Að lokum
var hann búinn að eyðileggja eigin
heilsu með lífeminu og mér fór smátt
Britt Ekland segist hætt öllu eiturfitli vegna þess að hana langar að fjölga
mannkyninu með aðstoð eiginmannsins, Slim Jim.
og smátt að verða ljóst að nauðsyn-
legt væri að stinga við fótum. Og
núna kem ég ekki nálægt neinu þess
háttar.“
Dóttir Britt og Peters, sem heitir
Victoria, var dregin fyrir rétt í Los
Angeles á dögunum ákærð fyrir
fíkniefnanotkun en var sýknuð að
lokum.
„Dóttir mín hefur aldrei verið háð
neinum eiturlyfjum," fullyrðir Britt.
„Hún var aðeins óheppin með félags-
skap. Victoria veit fullvel að þetta
varð foður hennar að bana og hefur
lítinn áhuga á að lenda í sömu spor-
um.“
Það er greinilega enginn sunnu-
dagaskólablær yfir kvöldboðunum
hjá filmstjörnunum vestra.
Ólyginn
sagði . . .
Faye
Dunaway
leikur eiginkonu númer eitt
í Bandaríkjunum á sviði í
London. Það væri ekki í frá-
sögur færandi ef ekki sæti í
salnum fjöldi lífvarða á hverri
sýningu og leynilögreglu-
maður stæði ekki við sviðið
til þess að gæta lífs og lima
listamannsins. Þrátt fyrir
þetta er víst eitthvað pláss
ennþá eftir í salnum sem
áhorfendur fá að fylla og
segir sagan að móttökur séu
með afbrigðum góðar eftir
hverja sýningu. Það fylgir ^
ekki sögunni hvort leyni-
löggan uppi við sviðið
hneygir sig pent með hinu
sviðsliðinu þegar tjaldið fell-
ur.
Marlene
Dietrich
er heldur lítið fyrir fjölmiðla
en mætti þó í viðtal við
Maxmilian Schell. í upptök-
unni sagðist hún aldrei hafa
tekið atvinnuna og framann
neitt alvarlega og skildi ekk-
ert í því fólki sem nennti að
eyða tímanum í að glápa á
þessar eldgömlu myndir.:; ,
Samt sagði hún ákveðin að
loknu viðtali að það þyrfti
að koma því beint í sjón-
varpið - því í þeim bissniss
væri mesta fjármuni að
finna. Marlene er á áttræðis-
aldri.
John
McEnroe
olli pressunni sárum von-
brigðum þegar hann mætti
aftur til leiks með spaðann í
opnu keppnina í New York.
Hann sýndi öllum viðstödd-
um hina mestu tillitssemi,
missti ekki út úr sér eitt ein-
asta fúkyrði og sagðist vera
að hugleiða að hætta
keppni. Framtíðarplönin eru
efst á listanum hjá MeEnroe
og segja niðurdregnir frétta-
menn giftinguna og barn-
eign meðTatum O'Neal hafa
dregið úr frekjudallinum all-
an mátt.