Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1986, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986.
19
DV
Atvinnumál
Ótrygg verkefni hjá skipasmiðjunum:
Skipasmíðin flutt úr landi
„Meðal útgerðannanna hefor gætt
og gætir enn ríkrar tilhneigingar til
að sniðganga innlend skipaiðnaðar-
fyrirtæki og semja frekar við erlenda
aðila um viðgerðarverkefni, skipa-
kaup og nýsmíðar," segir nefrid sem
ljallað hefúr um stöðu þessara mála.
Hún segir að innlendar skipasmiðjur
hafi ótrygg verkefiii þrátt fyrir að út-
gerðin standi nú í miklum endurbótum
og skipakaupum.
Nefiidin sem gengið hefur undir
heitinu K-nefnd segir að flest íslensk
skipaiðnaðarfyrirtæki hafi aðeins í
sjónmáli verkefni til tveggja eða
þriggja mánaða og sum þeirra til enn
skemmri tíma. Tillögur K-nefiidarinn-
ar snúast um skipulagningu á viðhaldi
og endumýjun skipaflotans og fram-
kvæmd og fjármögnun sem stuðli að
eflingu innlendra skipasmíða.
Þessar tillögur hafa nú verið kynnt-
ar og vinna samtök skiþaiðnaðarins
að framgangi þeirra með samvinnu við
útgerðina og stjómvöld og aðra þá
aðila sem fjalla um þessi málefiíi.
-HERB
.JOLATILBOÐ
FJOL5KYLDUNNAR
FRA TECHNICS
Komið þið nú biessuð og sæl.
Ég er hljómtækjasamstæðan Z-50 og
er íjólaskapi. Ég ermjög stolt af mér,
enda engin furða. Ég erfrá Technics
og flokkast þar afleiðandi undir alvöru
hljómtæki. Ég er ekki úr plasti. Ég er
ekki sambyggð og hliðarnar á mér eru
ekki fastar við skápinn. Ef þið hafið
áhuga á að heyra hvernig alvöru
hljómtæki hljóma og þar að auki frá
Technics, þá skora ég á ykkur að
koma og hlusta á mig. Nú fæst ég á
sérstöku jólatilboðsverði.
Þið getið fengið mig með einu eða
tvöföldu kassettutæki.og verðið á mér
með hátölurum og skáp er frá
33.340 kr.
m
WJAPIS
BRAUTARHOLT 7 SÍMI 27133