Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1986, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1986, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986. Andlát Guðmundur Björgúlfsson klæð- skerameistari er látinn. Hann fæddist á Norðfirði 13. júlí 1924. Voru foreldrar hans Ólöf Guðmunds- dóttir og Björgúlfur Gunnlaugsson. Útför Guðmundar var gerð frá Foss- vogskirkju í morgun. Ólafur M. Waage, Kelduhvammi 11, Hafnarfirði, andaðist í Borgar- spítalanum laugardaginn 6. desemb- er. Árni Sigurður Einarsson frá Þing- eyri verður jarðsunginn frá Fríkirkj- unni í Reykjavík þriðjudaginn 9. desember kl. 13.30. Ragnhildur Runólfsdóttir frá Hólmi í Austur-Landeyjum, andaðist í Vífilsstaðaspítala föstudaginn 5. desember. Árnheiður G. Guðmundsdóttir Hafberg lést 28. nóvember sl. Hún fæddist 25. apríl 1929, dóttir hjón- anna Maríu Ámadóttur og Guð- mundar J. Guðmundssonar. Eftirlif- andi eiginmaður hennar er Ágúst Hafberg. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. útför Ámheiðar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Hallbera Sigurðardóttir, Gnoðar- vogi 22, Reykjavík, andaðist í Landakotsspítala föstudaginn 5. des- ember. Arnleif Steinunn Höskuldsdóttir frá Höskuldsstöðum, Djúpavogi, til heimilis í Klapparbergi 23, Reykja- vík, lést í Landspítalanum að morgni sunnudagsins 7. desember. Gústav Sigvaldason, Blönduhlíð 28, andaðist 6. desember sl. V/nnmgstölur 6. des. 2-3-10-13-29 Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Nönnufelii 1, 4.t.v., þingl. eigandi Anna Maríanusdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 11. des.'86 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Reykjahlíð 12, neðri hæð, þingl. eigandi Haukur Hjaltason, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 11. des.'86 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Útvegsbanki islands, Landsbanki islands, Baldvin Jónsson hrl., Þórunn Guðmundsdóttir hdl., Búnaðarbanki íslands, Skúli J. Pálmason hrl., Klemens Eggertsson hdl., Landsbanki islands, Útvegsbanki islands, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Gjaldheirman í Reykjavík. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Nóatúni 24, 3.t.h„ þingl.eigandi Páll H. Kristj- ánsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 11. des.'86. kl. 16.00. Uppboðs- beiðendur eru Indriði Þorkelsson hdl, Ævar Guðmundsson hdl., Ólafur Axelsson hrl., Guðmundur Jónsson hdl., Búnaðarbanki islands, Ásgeir Thor- oddsen hdl., Sigríður Thorlacius hdl., Sigurmar Albertsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Árni Einarsson hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands. ________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Hagaseli 22, þingl. eigandi Þór Sigurjóns- son, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 11. des.'86 kl. 10.15. Uppboðs- beiðendur eru Tryggingastofnun ríkisins, Gjaldheimtan í Reykjavík, 4 Búnaðarbanki islands, Baldur Guðlaugsson hrl„ Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Ingólfur Friðjónsson. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Njálsgötu 20, 1. hæð, þingl. eigendur Ingi- björg Sigurðardóttir og Walter Marteinss., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 11. des.'86 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Ólafur Gústafsson hrl. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Skólavörðustíg 18,1 .h. norð, þingl. eigend- ur Pétur Gunnlaugsson og Hallgr. Magnússon, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 11. des.'86 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki íslands, Gjaldheimtan í Reykjavík, Gísli Baldur Garðarsson hrl„ Ammundur Backman hrí., Guðjón Ármann Jónsson hdl„ Tómas Þorvaldsson hdl„ Ólafur Thorodds- en hdl„ Róbert Árni Hreiðarsson hdl„ Ólafur Gústafsson hri„ Jón Ingólfsson hdl„ Jón Finnsson hrl., Málfl.stofa Guðm. Péturss. og Axels Einarss., Tómas Þorvaldsson hdl„ Tollstjórinn í Reykjavík, Gjaldheimtan í Reykjavík, Ólafur Thoroddsen hdl., Sigríður Thorlacius hdl., Guðni Haraldsson hdl„ Sigurmar Albertsson hdl. og Sveinn Skúlason hdl. __________Borgarfógetaembættið í Reykjavík. í gærkvöldi Lilja Rafney Magnúsdóttir verkakona, Súgandafirði Einskorða sig við höfuðborgarsvæðið Sjónvarpsdagskráin var ekki nógu góð í gækvöldi, ekki að mínum smekk að minnsta kosti. Bamaefnið er mjög gott og fréttimar horfi ég alltaf á og það er mun betra að hafa þær klukkan átta fyrir fólk úti á landi þar sem við erum að vinna oft lengur á daginn. Nýi ástralski myndaflokkurinn Keppikeflið var ekki nógu góður, en það er eflaust margir sem hafa gam- an af honum og sænska myndin Svínabúið var með leiðinlegra móti enda gafst ég upp á henni. í útvarpinu hlustaði ég á lög unga fólksins með öðm eyranu í gær- kvöldi en Daglegu máli missti ég því miður af, ég er vön að leggja þar við hlustir. Ég hlustaði á Mál málanna, Lilja Rafney Magnúsdóttir. sem var um málefhi fatlaðra, það var afar fróðlegur þáttur. Rás 2 hef ég ekki hlustað á undanfama daga vegna bilunar hér fyrir vestan sem oft gerist og nú höfum við ekki heyrt í þeirri rás undanfama fimm daga. Það sama má segja um sjónvarpið, við höfum misst úr þætti í fram- haldseríum vegna truflana sem orðið hafa hér vegna veðurs, það minnsta sem þeir geta gert er að endursýna þá þætti aftur. Það vantar fleiri þætti á borð við Stiklur Ómars Ragnarssonar og Á líðandi stund, þætti sem fara meira út á landsbyggðina. Mér finnst þeir einskorða sig of mikið við höfúð- borgarsvæðið. Hrafn Haraldsson kennari lést 28. nóvember sl. Hann fæddist á Seyðis- firði 11. nóvember 1932, sonur hjónanna Margrétar Brandsdóttur og Haralds Guðmundssonar. Hrafn lagði stund á viðskiptafræði við Há- skóla íslands og lauk kandidatsprófi árið 1963. Síðar hlaut hann réttindi sem löggiltur endurskoðandi og rak síðan eigin endurskoðunarskrifstofu hér í Reykjavík um nokkurra ára bil. Hin síðari ár stundaði Hrafn kennslu úti á landi og nú síðast við Héraðsskólan að Laugum í S-Þin- geyjarsýslu. Hann kvæntist Ragn- hildi Kvaran en þau slitu samvistum. Þeim varð fjögurra sona auðið. Fyrir hjónaband hafði Hrafn eignast einn son. Útför Hrafns verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Emil Jónsson, fyrrverandi ráð- herra, er látinn. Hann fæddist í Hafnarfirði 27. október 1902, sonur hjónanna Jóns Jónssonar og Sigur- borgar Sigurðardóttur. Emil lauk verrkfræðinámi í Kaupmannahöfn árið 1925. Hann var kjörinn bæjar- fulltrúi og bæjarstjóri í Hafnarfirði 1930 og alþingismaður 1934. hann hvarf frá störfum bæjarstjóra og var skipaður vita- og hafnamálastjóri 1937. Því embætti gegndi hann með frávikum til 1956 að hann varð Landsbankastjóri til 1958. Árið 1956 var hann kjörinn formaður Alþýðu- flokksins og endurkjörinn til þeirra starfa á meðan hann gaf kost á sér. Sama ár var hann kjörinn forseti sameinaðs þings. Emil kvæntist Guðfinnu Sigurðardóttur en hún lést fyrir nokkrum árum. Þeim hjónum varð sex bama auðið sem öll eru á lífi. Útför Emils verður gerð frá Haftiarfjarðarkirkju í dag kl. 13.30. Haukur Kjartansson bifvélavirki, Áslandi 4a, Mosfellssveit, er andaðist á Reykjalundi 2. desember verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið- vikudaginn 10. desember kl. 15. María Anderson (Sveinsdóttir) lést í Bandaríkjunum 2. desember. Útförin hefur farið fram. THkyimingar Vímulaus æska Skrifstofa foreldrasamtakanna Vímulaus æska, Síðumúla 4. Opið mánudaga kl. 13-16, þriðjudaga kl. 9-12, miðvikudaga kl. 9-12, fimmtudaga kl. ÍL10, föstudaga kl. 9-12. Sími 82260. Jólaalmanak ungra framsóknarmanna 1. des. 3046, 2. des. 4129, 3. des. 3899, 4. des. 3301, 5. des, 7097, 6,- des. 7385, 7. des. 2765, 8. des. 6018. Ný framköllunarþjónusta í miðbæ Kópavogs Filman sf. hefur opnað nýja framköllunar- þjónustu að Hamraborg 1, Kópavogi. Notuð eru framköllunartæki Minilab 23 frá Fuji, sem eru fljótvirkustu framkölfun- artæki heimsins, framkalla og skila full- unnum myndum til viðskiptavina á innan við klukkustund. Þar sem fjölbreytni í ljósnæmi litfilma hefur aukist mjög á síð- ustu árum hefur þörfin fyrir nákvæmari framköliun aukist mjög en Minilab 23 framköllunartækin eru búin fullkomnum tölvustýrðum lit- og ljóssetningarbúnaði sem tryggja bestu gæði á vinnslu mynd- anna. Kosturinn við þessa nýju framköil- unartækni er m.a. fólginn í því að framköllunarþjónustan flyst nær við- skiptavinunum og sparast því stór kostn- aðarliður sem er smölun á filmum víðsvegar að, eins og háttur var hafður á áður. Ennfremur sparast mikið vinnuafl vegna sjálfvirkni tækjanna. Það sem skiptir viðskiptavinina miklu máli auk gæðanna er auðvitað verðið en Filman sf. býður 10^40% ódýrari framköllun en hér þekkist. Að sjálfsögðu eru framkallaðar litfilmur frá öllum framleiðendum. Þá er hægt að fá stækkanir í fjölmörgum stærð- um, seldar verða filmur, myndarammar, myndaalbúm og myndavélar. Fótaðgerða-, snyrti- og nudd- stofan Eygló hefrn- flutt starfsemi sína á Langholtsveg 17 en sl. ár hefur hún verið í Sólheimum 1. Eigandi stofunnar er Eygló Þorgeirs- dóttir og hefur hún einnig starfað um árabil á heilsuhælinu í Hveragerði. Stofan býður upp á fótaaðgerðir, andlitsböð og aðrar hefðbundnar snyrtingar. Þess fyrir utan spangarmeðferðir á niðurgrónum nöglum, electróniska háreyðingarmeð- ferð, líkamsnudd, partanudd og sjúkra- nudd. Sánabað G-5 og hátíðnimeðferð. Sími stofunnar er 36191. Til umhugsunar Þú, sem gefur börnum gjafir þessi jól. Hvað ætlarðu að gefa þeim? Við hvetjum þig til að vanda valið vel. Það setur eng- inn tímasprengju í jólaböggul bamanna né heldur önnur vopn. - Gerið börnin ekki að litlum hermönnum: - Gefið þeim friðar- gjafir og leggið með þeim áherslu á frið, samvinnu og bróðurkærleika. Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna. Hreyfing og offita Á félags- og fræðslufundi Náttúrulækn- ingafélags Reykjavíkur um ný viðhorf í heilbrigðismálum verða tveir kunnir menn, Valdimar Örnólfsson, fimleikastjóri Háskóla Islands, og Sigurður Þ. Guð- mundsson, læknir á Landspítalanum, með fræðslu um hreyfingu og líkamsrækt ann- ars vegar og offitu og afleiðingar hennar hins vegar. Fundurinn verður haldinn á Hótel Esju fimmtudaginn 11. desember kl. 20.30. Allir áhugamenn em velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Happdrætti Dregið hefur verið í Ólympíuhappdrættinu. Eftirtalin númer hlutu vinninga: Volvo bifreið að verðmæti kr. 584.000: Nr. 36867 og 75583. Volvo bifreið að verðmæti kr. 414.000: Nr. 25415,32241,51041,96509,29512,33538, 63928, 124216. Vélsleði að verðmæti kr. 400.000: Nr. 32497 og 140262. Vélsleði að verðmæti kr. 250.000: Nr. 37404, 47962, 79429, 124438. Ferðavinningar að verðmæti kr. 53.300: Nr. 17684, 38613, 58874, 83061, 118408, 137612. Vinninga skal vitja á skrifstofu Ólymp- íunefndar Islands í Laugardal. Spllakvöld Spilakvöld Kársnessóknar Spiluð verður félagsvist í safnaðarheimil- inu Borgum þriðjudaginn 9. desember kl. 20.30 Afmæli 85 ára afrnæli á í dag, 9. desember, Sigurlína Guðmundsdóttir frá Efri-Miðvík í Aðaldal, Suðurgötu 12 í Keflavík. Hún ætlar að taka á móti gestum á heimili sinu nk. sunnudag, 14. þ.m., eftir kl. 15. Eigin- maður hennar var Sölvi Þorbergsson er lést 1960. Varð þeim 6 bama auð- ið og eru þau öll á lífi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.