Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Page 2
2 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1986. Fréttir Fasteignamarkaðurinn Verulegar verð- hækkanir eftir áramót segja fasteignasalar „Venjulega eiga sér stað einhveij- ar hækkanir á fasteignamarkaðnum eftir hver áramót en við teljum miklu meiri líkur á því en áður að verð á fasteignum hækki verulega á næsta ári vegna úthlutunarmáta nýju lánareglnanna hjá Húsnæðisstofh- un,“ sagði Þórólfur Halldórsson, formaður Félags fasteignasala, í samtali við DV en eins og fram kom í blaðinu á laugardag hafa fasteigna- salar sent yfirvöldum bréf þar sem varað er við uggvænlegum afleiðing- um úthlutunarreglnanna. „Samkvæmt þessum nýju reglum þurfa þeir sem eru að byggja eða kaupa í annað sinn að bíða í helm- ingi lengri tíma eftir sínu láni en þeir sem eru að fá lán í fyrsta sinn, eða allt að tvö ár. Útborgunartíminn á fasteignamarkaðnum er hins vegar tólf mánuðir og það sem við óttumst að gerist er að það fólk, sem þarf að bíða svo lengi eftir sínu láni, setji sínar íbúðir einfaldlega ekki í sölu. Afleiðingin er stórhækkað verð á notuðum íbúðum vegna aukinnar eftirspumar og lítils framboðs. Þetta teljum við að þýði óhjákvæmilega að húsnæðisleitin beinist að veru- legu leyti að nýbyggingum sem aftur þýðir aukin útgjöld fyrir byggingar- sjóð þar sem lán til nýbygginga eru hærri en til kaupa a notuðu." - En má ekki gera ráð fyrir þvi að greiðslukjör á fasteignamarkaðnum breytist og lánstíminn lengist vegna nýju lánanna? „Það ríkir ákveðið tregðulögmál á fasteignamarkaðnum og eins og fram kemur í bréfinu þá hafa verið gerðar tvær alvarlegar tilraunir til þess að breyta greiðslukjörunum en þær einfaldlega mistókust. Við erum ekki að segja að þetta þurfi að verða varanlegt ástand. Þetta er svona tveggja ára flösku- háls sem kerfið þarf að komast í gegnum. Spumingin er bara hvort ekki þarf að veita meira fjármagni inn í kerfið núna svo að allir geti fengið lán á sama tíma til þess að koma í veg fyrir verðhækkanir og þenslu á byggingarmarkaðnum," sagði Þórólfur. Ekki rétttúlkun „Ég er ekki búinn að fá þetta bréf í hendumar en það verður tekið fyr- ir í ráðunevtinu fijótlega og sjálfsagt gefin út fréttatilkynning um það. Annars er lítið hægt að segja á þessu augnabliki meðan menn em að átta sig og nýju reglumar að komast í framkvæmd," sagði Alexander Stef- ánsson félagsmálaráðherra er haft var samband við hann vegna þessa máls. „Þeir sem sömdu lögin vom fyrst og fremst að hugsa um þá sem væm að byggja eða kaupa í fyrsta sinn og það var ljóst að það fjármagn, sem var til ráðstöfúnar, dugði ekki til að gera jafnvel við alla. Ég er ekki viss um að þessi túlkun fasteignasala sé rétt. Umsóknir bera það ekki með sér að það sé meiri fjöldi en áður sem fari út í nýbygg- ingar af þeim sem em að fá lán í fyrsta sinn. Ég tel rétt að bíða og lofa þessu að þróast áður en menn fúllyrða nokkuð um þetta,“ sagði Alexander. „Þetta bréf hefur verið rætt í stjóm Húsnæðisstofhunar og menn hafa á þessu ýmsar skoðanir en ég get ekki greint frá þeim umræðum á þessu stigi. Það er auðvitað Ijóst að það em margar hliðar á þessum nýju lögum sem þarfhast gaumgæfilegrar athugunar og þetta atriði meðal annars. Ég á von á því að bréfið verði aftur tekið fyrir í janúar og að við sendum þá eitthvað frá okkur um málið,“ sagði Sigurður E. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðistofhunar ríkisins, í samtali við DV í gær. - Sáuð þið þetta ekki fyrir? „Alþingi setti þessi lög en ekki Húsnæðisstofnun og við fengum lagafrumvarpið ekki til umsagnar." - En telur þú það rétt, sem fram kemur í þessu bréfi Félags fasteigna- sala, að þetta séu óhjákvæmilegar afleiðingar nýju lánareglnanna? „Ég er ekki tilbúinn til að sam- þykkja að þetta sé óumflýjanlegt. Þetta gæti farið á þennan veg en það er ekki víst. Það fer eftir því hvemig haldið er á málum. Hins vegar er þakkarvert að fasteignasalar skyldu benda á þessa hættu," sagði Sigurð- ur E. Guðmundsson. -VAJ Hafþór Ferdínandsson í Toyota-jeppanum sínum á leiö til Hveravalla með jólaglaðninginn til veðurathugunarfólks- ins þar. DV-mynd Ingvar Óskarsson Jólaferðin til Hveravalla Kallaður Hvera- vallaskreppurinn - segir Hafþor Ferdínandsson „Þetta em górðu jólin sem ég fer þessa ferð fyrir veðurstofuna," sagði Hafþór Ferdínandsson, sem fór ásamt Ingvari Óskarssyni inn á Hveravelli um helgina með jólavaminginn handa veðurathugunarfólkinu þar, þeim Sig- urði Maríssyni og Kristínu Auði Jónsdóttur. „Þar til fyrir fjórum árum var alltaf farið á þyrlu en eftir að hún fórst í Jökulfjörðum var þessi háttur tekinn upp. Síðan hef ég farið ansi margar ferðir fyrir veðurstofuna. Ég geng orð- ið uncLr nafrúnu Hveravallaskreppur- inn vegna þess að ég tala alltaf um að skreppa inn á Hveravelli þó að þetta sé inni í miðju landi. Menn hafa líka verið að grínast með það hvort ég ætlaði ekki að sækja um sérleyfi á þessari leið,“ sagði Hafþór. Einbíla á hálendið Hafþór segir þessar ferðir hafa tekið frá níu klukkustundum upp í þijátíu og sex tíma. 1 þetta skiptið gekk mjög vel. Veðrið var ákaflega gott, ijóma- logn og fúllt tungl, og skyggnið svo gott að hægt hefði verið að keyra án þess að nota ljósin. Þeir félagar lögðu af stað um sex- leytið á föstudagskvöldið og vom komnir til Hveravalla klukkan fjögur um nóttina. Farartækið var Toyota Landcmiser jeppi sem Hafþór á. Hann var spurður að því hvort ekki væri óðs manns æði að fara einbíla inn á hálendið á þessum tíma árs. „Það er yfirleitt ekki gert. Ég hef hins vegar oftast farið þetta einbíla. Ég hef ferðast um hálendið þvers og kruss og þekki þetta svæði mjög vel. Við erum auðvitað með allan nauð- synlegan útbúnað í bílnum. Við erum með Gufúnes-talstöð, sem nær um allt land, og Loran C staðsetningartæki, eins og verið er með í björgunarbílum. I bílnum er líka áttaviti, sem hægt er að keyra eftir, hæðarmælir og hita- mælir bæði úti og inni. Og að sjálf- sögðu erum við með nógan mat og olíu. Ingvar þekkir líka bílinn jafrivel og puttana á sér, því hann vinnur sem bifvélavirki hjá Toyotaverkstæðinu. Þannig að ég lít ekki á þetta sem neina fífldirfsku," sagði Hafþór Ferdínands- son. -VAJ Kasparov efstur í Brnssel Heimsmeistarinn Garrí Kasparov hefur vinningsforskot á sex manna stórmeistaramóti sem nú stendur yfir í Brussel í Belgíu. Að loknum sex umferðum hefur hann hlotið 5 v., Englendingurinn Nigel Short er í öðru sæti með 4 v., þriðji er V. Þjóðverjinn Húbner með 3!4 v. Síðan koma Nunn (Englandi) og Kortsnoj (Sviss) með 3 v. en Ung- veijinn Portisch rekur lestina með 2 /t v. Haft er eftir skipuleggjendum mótsins að Kasparov sé ekki auð- veldasti maður í umgengni sem þeir Skák Jón L. Ámason hafi kynnst. Hann kvartaði yfir þvi að skáksalurinn væri of lítill og eins fannst honum umferðimar hefjast of snemma á daginn. Teflt er frá kl. 12.30 en Kasparov hefur vanist því að byrja að tefla fjórum tímum síð- ar, eins og títt er á skákmótum í Sovétríkjunum. Mishermt var í skákþætti í DV á laugardag að Kasparov hefði tapað fyrir Nunn í 4. umferð. Það var Short sem lagði heimsmeistarann að velli en nöfri þeirra Englendinganna vilja ruglast á síðum belgískra dagblaða. Nunn lá hins vegar eins og skata er hann tefldi við Kasparov. Varð að gefast upp eftir aðeins 18 leiki er mát eða stórfellt liðstap blasti við. Short hefur staðið sig frábærlega vel og verður gaman að fylgjast með honum á IBM-stórmótinu í Reykja- vík í febrúar. Kortsnoj og Portisch, sem munu einnig taka þar þátt, em aftur á móti langt frá sínu besta. Lítum á skák Kasparov og Nunn: Hvítt: Gam' Kasparov Svart: John Nunn Grúnfelds-vöm. I.d4 Rf6 2.Rf3 g6 3.c4 Bg7 4.g3 0-0 5.Bg2 c6 6.Rc3 d5 7.cxd5 cxd5 8.Re5 e6 9.0-0 Rfd7 10.f4 Rxe5 ll.fxeð Rc6 12.e4 dxe4 13.Be3 f5 14.exf6 fr.hl. Hxf6 15.Re4 Hxfl + 16.Dxfl Rxd4?? 17.Hdl e5 18.Rg5! - Og Nunn gafst upp því að hann er vamarlaus gagnvart hótuninni 19. Dc4 + Kh8 20.RÍ7 + sem vinnur drottninguna og mátar. Ef 18.-Dc7, þá 19. Bd5+ og vinnur. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.