Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1986. Fréttir Jólagetraun DV Skilafrestur til 8. janúar Nú hafa allir tíu hlutar jólagetr raunar DV birst. Væntanlega hafa allir nú fyllt út svarseðlana og merkt við rétt nöfn á þeim. Þá er ekki ann- að en að setja þá alla í eitt umslag og senda þá til DV, Þverholti 11,105 Reykjavík, merkt „Jólagetraun". Skilafrestur er til 8. janúar næst- komandi. Veglegir vinningar eru í boði í jólagetrauninni. Heildarverðmæti þeirra nemur kr. 93.000. Vinningur nr. 1 er fúllkomið videotæki af gerð- inni NV -G7- HQ. Þetta er ein af nýjungunum frá Panasonie. Verð á tækinu er kr. 37.850. Það er búið D ,D ON ^ . p f, Off , , . , J L C u ■ u u c' c JIJ hpause/&tíU >:nop HQ Vi-íeo Crtsseite tö*r NV-G ? ■ Pa»as©nie Vinningur nr. 1 í jólagetraun DV, fullkomið videotæki frá Panasonic af gerðinni NV- G7- HQ. Verð 37.850. Vinningur nr. 2, Sony sjónvarpstæki með 14 tommu skermi. Verð 27.880. læsanlegum hraðleitara með mynd, 32ja stöðva minni, 99 rásum og 14 daga upptökuminni með fjórurn rás- um. Og það fer í gang við innsetn- ingu spólu. Vinningur nr. 2 er Sony sjónvarps- tæki með 14 tommu skermi. Það er búið Trinitron myndlampa sem er rómaður fyrir endingu og gæði. Verðið á tækinu er kr. 27.880. Vinningar nr. 3-7 eru fimm vönduð ferðaútvarpstæki af gerðinni Pana- sonic RX- 4910L. Verð hvers tækis er kr. 5.450. Þessi tæki eru með fjór- ar bylgjur, FM stereo, langbylgju, miðbylgju og stuttbylgju. Það verður því vandræðalaust fyrir vinnings- hafana að ná þeim útvarpsstöðvum sem eru í gangi hér. Og nú er bara að bíða og sjá hveijir hreppa þessa glæsilegu vinninga Vinningar nr. 3-7, vönduð Panasonic ferðaútvarpstæki. Verð hvers tækis 5.450. Eggert Guðmundsson. Þórarinn Ó. Þórarinsson. Kvikmyndin Skyttumar Tökum lokið Tökum á kvikmyndinni Skyttun- um er lokið en þær fóru fram í Reykjavík, í Hvalfirði og úti á hvala- miðunum. Klipping myndarinnar er hafin og er það verk framkvæmt í Kaupmannahöfri. Klippingu annast Tómas Gíslason en honum til að- stoðar er Valdís Óskarsdóttir. Skyttumar fjalla um tvo hval- veiðisjómenn sem verið hafa til sjós í tuttugu ár eða svo. Þá langar til að kynnast lífinu í landi aðeins nán- ar og jafhvel fá sér vinnu þar. Þetta gengur mjög brösuglega og brátt eru þeir félagar lentir í alvarlegri málum en þeir áttu von á. Friðrik Þór Friðriksson er leik- stjóri myndarinnar, handritið er eftir hann og Einar Kárason og með aðal- hlutverkin fara þeir Þórarinn Óskar Þórarinsson og Eggert Guðmunds- son. Kvikmyndin verður væntanlega frumsýnd í Háskólabíói í byijun fe- brúar á næsta ári. -FRI Ákaflega litla reynslu og þröngt sjónarsvið - segir Garðar Sigurðsson alþingismaður um eftírmann sinn, Margrétí Frímannsdóttur „Mér líst ekkert illa á Margréti. Hún hefur að vísu ákaflega litla raunveru- lega pólitíska reynslu og stjómmála- legt sjónarsvið er þröngt,“ segir Garðar Sigurðsson alþingismaður um Margréti Frímannsdóttur sem leysa mun Garðar af sem efsti maður lista Alþýðubandalagsins í Suðurlands- kjördæmi. Þessi orð lætur Garðar falla í opin- skáu viðtali við Bæjartíðindi, yngsta bæjarblað Vestmannaeyja, undir fyr- irsögninni: „Ég hafði ekki lengur „Hún hefur ákaflega lltla raunveru- lega pólitíska reynslu og stjómmála- legt sjónarsviö er þröngt," segir Garðar um Margréti Frimannsdóttur. áhuga á að slást við það lið sem vildi mig burt.“ Lýsir hann því yfir að hann muni ekki taka heiðurssæti framboðs- hstans bjóðist honum það. Um Margréti segir Garðar ennfrem- ur: „Slagorðatrumban er hægt tæki, en landinu verður ekki stjómað með henni; gagnrýnið sjálfemat er nauð- synlegt, en það er hins vegar þægilegra að láta forystuna leiða sig og jafhframt miklum mun betra fyrir einsýna for- ystu að eignast nýjan jábróður eða systur. Vona ég að Margrét og Ragnar (Öskarsson) hætti senn að klappa fyrir tillögum eins og bróðir vor Olafur á til að finna upp og rúlla mönnum upp úr.“ Um stöðu Alþýðubandalagsins segir Garðar meðal annars: „Síðasta þing fyrrverandi stjómar var hörmulegt pólitískt slys; tilraun gerð til að stjóma landinu án þess að hafa meirihluta. Afleiðingamar vom hroðalegar, svo sem menn muna. Auð- vitað er hægt að vinna sig út úr slíku en til þess verða menn að viðurkenna staðreyndir, líka þær óþægilegu. Það er einnig óhætt að fullyrða að stjómarandstaðan hefur verið slök. Enginn flokkur undanskilinn. Það mætti kannski snúa út úr Páli frá Tarsus: „Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég sem hljómandi málmur og hvell- andi bjalla." Þama mætti skipta á „kærleika" og „raunsæi". Það mætti einnig segja að sá flokk- ur, sem ekki leggur áhersluna fyrst og fremst á stöðugleika á áreiðanlega ekki upp á pallborðið hjá kjósendum. Einkunnarorðin gætu til dæmis ve- rið: Stöðugleiki, raunsæi, réttlæti. Alþýðubandalagið getur bætt sig vemlega ef það gerði ekkert annað en að fylgja þessari hugsun í meginatrið- um, sleppa froðunni, bjóða ekki upp á gull og græna skóga á öllum sviðum. Getan er takmörkuð. Það em nægi- lega margir sem lofa of miklu og of langt upp í ermar sér.“ -KMU Garðar Sigurösson: Alþýðubandalag- ið ætti aö sleppa froðunni, bjóða ekki upp á gull og græna skóga á öllum sviðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.