Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Síða 27
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1986. 27 Tómas Þorvaldsson. Úr lífsins Grindavík Gyffi Gröndal: ÆVIDAGAR TÓMASAR ÞORVALDSSON- AR Setberg, 1986. Þetta er aðgenglleg, gagnorð og viðfelldin minningabók eins og aðrar þær sem Gylfi Gröndal hefor ritað eftir mönnum. Tómas Þorvaldsson kann frá mörgu, jafht smálegu sem átakamiklu, að segja af söguríkum slóðum, vaxinn upp í hinni gömlu Grindavík. Tómas þekkir af eigin raun sjósóknina á árabátaöld og trilluárum, en varð síðan umfangs- mikill útgerðarmaður á vélskipa- og togaraöld á sömu slóðum. Það er því ekki út í hött er Tómas hefur frásögn sína með því að skilgreina ævileið- ina sem ferð frá gamla íslandi til nýja íslands. Hann hefur frásögnina í endur- sögn Gylfa með nokkurri sviðsetn- ingu í gömlu Grindavík og drepur á ýmsa örlagaviðburði úr sögunni, jafnframt því sem áar hans koma fram á sviðið. Og síðan hefjast ýmsar þjóðsögur og bemskuminni, sögur og sagnir á horfhum sjávarháttum og allýtarlega er lýst kyrrnum af Bjama Sæmundssyni ömmubróður sögumanns. Ýmislegt í þeim köflum skýrir mynd hins merkilega náttúm- fræðings. í útgerð og fiskvinnslu Tómas lýsir hinni harðleiknu sjó- sókn á áraskipum og síðan vél- knúnum opnum bátum á þessum slóðum af nánum kunnugleika og segir fiá ýmsum minnisverðum at- burðum, svo sem skiptöpum og slysum eða naumum landtökum í sviptingum stórbrimsins. En Tómas var ekki öllum stundum á sjó á yngri árum heldur einnig nokkur sumur kaupamaður á stór- býlum í uppsveitum Ámesþings, svo sem í Bræðratungu og Skálholti hjá Jörundi Biynjólfssyni og er sitthvað minnisstætt þaðan. Hann getur líka að nokkru Einars í Garðhúsum og stórbrotins menningarheimilis hans. Þáttur Tómasar í útgerð og fisk- vinnslu á Suðumesjum á seinni tímum er allmikill, og ekki síður í markaðsmálum útvegsins, en hann er stuttorður um þann bálk í þessari bók. Honum er gamli tíminn í Grindavík augsýnilega nákomnara söguefhi og ekki síður fólkið sem hann hefur kynnst. Glöggur og skilorður Tómas Þorvaldsson er augsýnilega minnugur og skemmtilegur sögu- maður, glöggur og skilorður. Það Bókmenntir Andrés Kristjánsson virðist hafa farið vel á með honum og Gylfa, og árangurinn verður létti- leg frásagnabók, stuttorð, gagnorð og hin læsilegasta, þar sem saman fer stundargaman og gagnlegur fróð- leikur. Margt gamalla ljósmynda er í bók- inni bæði af fólki, stöðum og útgerð. Þama er til að mynda heimildarík teikning eftir Bjama Sæmundsson af Jámgerðarstaðabænum. Það er kostur á þessari bók, að kaflafyrirsagnir em efiúslegar og oft forvitnilegar svo að þær laða til lestrar. Slíkt er allt of sjaldgæft í minningabókum en fer oftast vel og lyftir efni, verður lýsing bókar og upplyfting við lestur. Þessa blaða- mennsku kann Gylfi sérlega vel og er fundvís á fyrirsagnir sem hitta í mark. Góð dæmi um þetta em í bók- inni um Tómas Grindvfláng. En mér finnst nafn bókarinnar - Ævidagar Tómasar Þorvaldssonar - tæplega réttnefrú og hefði mátt vera ítækari og hnitmiðaðri efiússkírskotun. A.K. LÉTT. LIPUR OG VANDVIRK HAGKVÆM OG HEILNÆM Aðeins 6,1 kg á svifléttum hjólabúnaði. Stillanlegt sogafl og afbragðs sogstykki. STERK OG TRAUST Reynslan sannar rekstraröryggi og einstaka endingu. 10 lítra poki og svo frábær ryksíun að hún hreinsar einnig andrúmsloftið. Nýlegar hollusturannsóknir leiddu í Ijós að flestar ryksugur rykmenga loftið, sumar hrikalega. Já, svona er NILFISK: Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð til að vinna sitt verk, fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og tilkostnaði. NILFIS GS9ÖI NILFISK HEIMSINS BESTA RYKSUGA Stór orð, sem reynslan réttlætir /7=onix HÁTÚNI 6A SlMI (91)24420 Hrollvekiandirspenna Boftimeðlskoplegulívafiibó SKLÍpuriPÍgfheljartökum nhwmgö^mmwfætur ALFREÞ m H/rCHCOCK annarri í þessu einstæða smásaenasafni. Magnþrungin bok sem heldur fyrir manm vöku 998." ** TlMABÆR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.