Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1987, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1987.
19
Set stefhuna á
landsliðssæti
- segir Janus Guðlaugsson sem ætlar að leika með Fram í sumar
„Ég hyggst æfa og leika knatt-
spymu með Framliðinu í sumar og
markið er vitanlega sett hátt. Að sjálf-
sögðu stefni ég á landsliðssæti enda
væri annað hreinasta firra. Ef ég stefni
ekki á toppinn gæti ég rétt eins hætt
afskiptum af íþróttum."
Þetta sagði knattspymumaðurinn
snjalli, Janus Guðlaugsson, í samtali
við DV. Janus er nú leikmaður og
þjálfari þriðju deildar liðs ÍH í hand-
knattleik.
Á síðastliðnu sumri var Janus einn
af burðarásum knattspymuliðs Fram
en meiddist nokkuð alvarlega og varð
frá keppni í lok íslandsmótsins.
„Ég er í ágætu formi nú og æfi vel,
enda eru leikmenn ÍH liðsins áhuga-
samir. Það er því rökrétt framhald á
þessu brölti mínu nú að venda við
blaði og spila fótbolta er vorar.“ •
Ef Janus leikur að nýju með Fram-
liðinu verður það án efa mikil lyfti-
stöng fyrir félagið. Ekki mun af
liðsinni hans veita því markavélin,
Guðmundur Torfason, er horfin úr
herbúðum félagsins. Að auki em þeir
að hugsa sér til hreyfings, fóstbræð-
umir Guðmundur Steinsson og Pétur
Ormslev. Em þeir báðir tengdir sama
félaginu í V-Þýskalandi - Kickers Of-
fenbach, sem leikur í svokallaðri
Oberligu. Framliðinu hefur þó bæst
liðsauki sem getur sjálfsagt mætt þess-
ari blóðtöku að einhverju leyti. Er þar
um efnilega menn að ræða. Kristján
Jónsson kom úr Þrótti, Reykjavík, en
Pétur Amþórsson frá Víkingum þeirra
Norðmanna.
-JÖG
•Janus Guðlaugsson, sem hér sést ásamt Sigurði Grétarssyni i Sviss á sið-
asta vetri, ætlar að leika með Fram í sumar og stefnir að þvi að endurheimta
landsliðssæti sitt.
Zuibriggen vann
sitt annað gull
- í stórsviginu í Crans-Montana
•Zurbriggen fagnar sínu öðm gulli i
9ær-
Gulldrengurinn frá Sviss, Pirmin
Zurbriggen, hélt upp á sinn 24. af-
mælisdag með viðeigandi hætti. Hann
sigraði í gær i stórsvigi og hefur því
unnið til tveggja gullverðlauna og
tveggja silfurverðlauna á heimsmeist-
aramótinu.
Tími Zurbriggens var tvær mínútur
32,38 sek. en í öðm sæti var helsti
keppinautur hans, Marc Girardelli.
Þriðji varð Alberto Tomba frá Ítalíu.
Zurbriggen getur að nokkm þakkað
óheppni vinnar síns, Joel Gaspoz, sig-
urinn en hann datt í brautinni nokkra
metra frá markinu eftir að vera kom-
inn með sigurinn nánast i hendumar.
Gaspoz fekk besta tímann í fyrri ferð-
inni.
„Mér þykir þetta mjög leiðinlegt
með Gaspoz en ég var alveg sannfærð-
ur um að hann ynni gullið," sagði
Zurbriggen eftir á. Svisslendingar hafa
nú unnið sex af sjö gullverðlaunum á
heimsmeistaramótinu.
•Daníel Hilmarsson frá Dalvík
keppti í stórsviginu í gær og varð í
48. sæti en 96 keppendur hófu keppni.
-SMJ
| Sheffield |
S Wed. komst i
j áfram j
- Tveir leikir fóm fram í fjórðu ■
I mnferð ensku bikarkeppninnar í I
■ gærkvöldi.
I QPR sigraði Luton á heimavelli ■
I með 2 mörkum gegn 1. Terrv Fen- I
■ wick og John Byrne settu mörk J
I þeirra Drottningargarðsmanna en |
J Mick Harford svaraði fyrir Luton. ■
I Þá sigraði Sheffield Wednesday |
_ Chester með 3 mörkum gegn 1. ■
I Mörk Sheffield skomðu þeir Lee I
■ Chapman og Carl Bradshaw, en |
J eitt markið var sjálfsmark Chest- ■
I erleikmannsins Graham Abel. |
1 skosku bikurkt'ppnirmi fóm þessir ■ leikir fram i gærkvókli: 3. umferð:
Dundee East Kife 2-2 ■
Meadowbank Ajt Dumbarton Brechin 2-0 1 2-31
2. umferð: Albion-Wlútehill 1-21
-±l
Island á mikla
möguleika í Seoul
- segir Amo Ehret, þjálfari Sviss
„Leikurinn var ágætur og jafn en
Islendingar vom einfaldlega sterkari
á endasprettinum," sagði hinn geð-
þekki þjálfari Svisslendinga, Arno
Ehret. „Við áttum möguleika í þess-
um leik en þegar síst skyldi glötuð-
um við einbeitingunni. íslending-
amir sigldu fram úr er þeir máttu
leika einum færri. Vitanlega hefði
þetta átt að fara á hinn veginn. Flug-
leiðamótið er mjög góð æfing og
mikilvæg fyrir lið okkar sem er enn
ungt og óreynt. Af þeim sökum er
því ekki eðlilegt að setja markið
hátt í B-keppninni á Ítalíu. Ætlunin
er þó að halda sætinu í flokki B-
þjóða en stefna síðan upp á við.
íslenska liðið er mjög gott og
ávallt erfiður andstæðingur. Liðið á
efalítið möguleika á verðlaunasæti
á ólympíuleikunum í Seoul. íslenska
liðið hefur margsannað getu sína -
bæði hér í kvöld og á Eystrasalts-
mótinu í A-Þýskalandi. Islendingar
náðu þar stórkostlegum árangri.
-JÖG
Kínverji þjálfar
blaklandsliðið
Kínverjinn Jia Chang-Wen hef-
ur verið ráðinn þjálfari landsliðs
karla í blaki. Er hann um leið þjálf-
ari Víkings.
Jia Chang-Wen hefúr þegar valið
tíu leikmenn af tólf, sem hann ætlar
að velja, í landslið sem tekur þátt í
móti fimm þjóða í Lúxemborg í mars-
lok og mætir Færeyingum hér á
landi í maí. Þeir eru:
Bjami Þórhallsson, Víkingi.
Einar Hilmarsson. Þrótti.
Friðjón Bjamason. ÍS.
Kristján Már Unnarsson, Fram.
Leifúr Harðarson, Þrótti.
Ólafur Ami Traustason, Fram.
Sigurður Þráinsgon. ÍS.
Stefán Jóhannesson. Víkingi.
Sveinn Hreinsson. Þrótti.
Þröstur Friðfinnsson, Þrótti.
Óskipað er í tvær stöður. Kínverj-
inn er með fjóra menn í myndinm.
Þorvarð Sigfússon. ÍS. ef hann verð-
ur búinn að ná sér af meiðslum, en
annars Kjartan Busk. og hins vegar
bíður hans erfitt val á milli Þróttar-
anna Jóns Ámasonar og Lárentsín-
usai- Ágústssonar í stöðu
miðjiunanns.
-KMU
Norska knattspyman:
Ný stigagjof
Norska knattsp\Tnusambandið hef-
ur ákveðið að taka upp nýja stigagjöf
í deildarkeppninni þar í landi og mun
þetta fyrirkomulag taka gildi þegar
keppnistímabilið hefst í vor.
Þetta r.ýja stigafyrirkomulag felur í
sér að fyrir eins marks sigur fær lið
þrjú stig og fyrir hvert skorað mark
eftir það fær sigurlið eitt stig til við-
bótar. En fyrir leik sem endar 4-1 fær
sigurliðið fimm stig en hefði annars
fengið sex stig ef það hefði ekki fengið
mark á sig. Tapíiðið fær hins vegar
ekki stig fyrir skorað mark.
Að sögn Ola Nissen, talsmanns
norska knattspymusambandsins, von-
ast þeir til að þetta nýja stiga fyrir-
komulag komi til með að hleypa nýju
blóði í knattspymuna hvað varðar
aukinn sóknaileik liðanna og um leið
að áhorfendur munu í meira mæli
leggja leið sína á völlinn.
Þjálfarar liðanna hafa tekið vel í
þessa nýbrevtni og eru ákveðnir í því
að auka sóknarleik liða sinna til
rnuna. Þess skal getið að þetta keppn-
istímabil sem nú fer í hönd verður
aðeins notað sem pmfa á þessu nýja
fyrirkomulagi en ef vel gengur em
norskir knattspymumenn ákveðnir í
því að framhald verði á þessu.
-JKS
Urslit í NBA-deildinni
Nokkrir leikir fóm fram í banda-
ríska körfuknattleiknum í fyrra-
kvöld og réðust úrslit í mörgum
þeirra ekki fyrr en á síðustu stundu.
Úrslitin í leikjunum urðu eftirfar-
andi:
76ERS-Indiana Pacers.....99-44
Atlanta-Boston Celtics...126-123
Chicago-Washington Bullets...98-91
Denver-Houston Rockets..107-105
Antonio Spurs-Golden State 111-103
NY Knicks-Milwaukee.....110-109
Utah Jazz-Sacramento Kings 101-95
Portland-Phoenix Suns...117-103
-JKS