Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987.
9
70 fórust í jám-
brautarslysi í gær
„Þetta var alger ringulreið. Fólk vein-
andi og hrindandi öðrum til þess að
ryðjast út,“ sagði einn farþeganna sem
slapp úr slysinu í Sao Paulo í gær
þegar tvær farþegalestir rákust á. Þrjú
hundruð slösuðust og sjötíu fórust.
Er þetta annað stórslysið í Sao Paulo
á einum mánuði. 19 þúsund misstu
heimili sín 25. jan. í flóðum sem fylgdu
i kjölfar úrhellisrigninga.
Óhappið í gær varð vegna bilunar í
sporaskiptingu sem leiddi til þess að
ein farþegalest ók á hlið annarrar sem
komið hafði úr gagnstæðri átt. Skeði
þetta síðdegis við jámbrautarstöðina
Itaqueira, sem er í úthverfi í austur-
hluta Sao Paulo.
Björgunarflokkar unnu í allt gær-
kvöld og í nótt við að ná fólki út úr
brakinu og koma slösuðum á sjúkra-
hús þar sem fijótlega gætti skorts á
blóði til gjafar, deyfi- og svæfingarlyfj-
um.
„Það eina sem þeir koma með út em
lík,“ sagði ein konan um björgunar-
mennina en fjöldi fólks dreif að til að
afla sér vitneskju um aðstandendur.
Símakerfið fór úr skorðum vegna
álagsins.
Það auðveldaði ekki björgunarstarf-
ið að enn var úrhellisrigning og mikill
aur sem björgunarmenn urðu að vaða
til þess að komast að slysstað og
vagnabrakinu. Lögreglubílar fluttu
björgunarmenn til staðarins og smöl-
uðu mönnum til blóðgjafar til sjúkra-
húsanna.
Tíð slys hafa verið hjá jámbrautun-
um í Brasiliu á síðustu tíu árum og
höfðu kostað um áttatíu manns lífið
fram að slysinu í gær.
Járnbrautarstarfsmaður kannar skemmdirnar eftir árekstur tveggja farþega-
lesta i Sao Paulo og leitar um leið að slösuðum sem kynnu að leynast enn
I brakinu. Simamynd Reuter
Björgunarmenn reyna að ryðja sér leið að slösuðu fólki sem er fast I braki
farþegalestanna eftir áreksturinn i gær.
Simamynd Reuter
Umsjón: Guðmundur Pétursson og Ingibjörg Bára Sveinsdóttir