Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1987, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987.
Fréttir______________________________________________________________________________pv
Fjórir fá fangelsisdóm vegna „kaffibaunamálsins":
HJalti Pálsson dæmdur
í 12 mánaða fangelsi
- Eriendur Einarsson sýknaður af öllum ákærum
Dómur í „kaffibaunamálinu" svo-
kallaða var upp kveðinn í Sakadómi
Reykjavíkur í gær og er helsta niður-
staða dómsins sú að Erlendur Einars-
son, fyrrum forstjóri SfS, var sýknaður
af kröfum ákæruvaldsins, Hjalti Páls-
son, framkvæmdastjóri innflutnings-
deildar SÍS, var dæmdur í 12 mánaða
fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðs-
bundna, Sigurður Ámi Sigurðsson,
fyrrum forstöðumaður Lundúnaskrif-
stofu SÍS, var dæmdur í 7 mánaða
fangelsi skilorðsbundið, Gísli Theód-
órsson, fyrrum forstöðumaður Lund-
únaskrifstofunnar, var dæmdur í 3ja
mánaða fangelsi skilorðsbundið og
Amór Valgeirsson deildarstjóri var
dæmdur í 2ja mánaða skilorðsbundið
fangelsi.
Fjársvik, skjalafals og gjaldeyr-
isbrot
Krafa ákæmvaldsins í málinu var
tvíþætt, annars vegar fyrir fjársvik og
hins vegar fyrir skjalafals og gjaldeyri-
slagabrot. Varðandi íjársvákaþátt
ákærunnar kemur fram í dómnum að
SÍS hafi annast innflutning á hrákaffi
fyrir Kaffibrennslu Akureyrar og hafi
viðskiptin farið fram þannig að Kaffi-
brennslan pantaði hrákaffi hjá inn-
flutningsdeild SÍS sem síðan hafði
samband við sknfstofu NAF í Kaup-
mannahöfn vegna samninga NAF við
IBC í nafrii samvinnufélaganna á
Norðurlöndum. Skrifstofa NAF leitaði
síðan tilboða í hrákaffikaup frá út-
flytjendum í Brasilíu og komu síðan
tilboðin til Kaffibrennslunnar fyrir
milligöngu fóðurvömdeildar SÍS og
tók þá Kaffibrennslan endanlega af-
stöðu til tilboðanna á grundvelli
upplýsinga frá fóðurvömdeild.
Amór Valgeirsson til vinstri og Hjalti Pálsson takast í heldur fyrir utan dómssal i Sakadómi Reykjavíkur fyrir uppkvaðningu dómsins i gær.
Mismunurinn til SIS
Síðan útvegaði SlS íjármagn til þess
að greiða fyrir kaffisendingamar og
fór sú fyrirgreiðsla nær eingöngu fram
fyrir milligöngu skrifstofu SÍS í Lon-
don en forstöðumenn hennar vom
þeir Gísli og síðan Sigurður Ámi og
heyrði skrifstofan beint undir Erlend
Einarsson.
Árið 1979 varð offramboð á heims-
markaði á hrákaffi og tóku þá að falla
til afslættir sem fyrst gengu til Kaffi-
brennslunnar en þá vom afslættimir
ekki sérlega háir. En eftir að afslætt-
imir fóm að hækka, síðla árs 1979,
bárust Lundúnaskrifstofunni boð um
það að framvegis skyldu berast tveir
vörureikningar vegna hverrar send-
ingar og skyldi tekið lán í banka í
London fyrir lægri upphæðinni en
hærri reikningurinn skyldi sendur til
Landsbankans á Akureryri til inn-
heimtu hjá Kaffibrennslunni. í raun
rann mismunurinn á þessum tveimur
vörureikningum, þeim sem SÍS greiddi
fyrir kaffið og þeim sem Kaffibrennsl-
an greiddi, til SÍS í Reykjavík. Einnig
vom Kaffibrennslunni reiknaðir vext-
ir af hærri upphæðinni enda þótt
fjármögnunin í London væri í sam-
ræmi við þá lægri sem var raunverð
kaffisins í hvert sinn. Þá vom SÍS
einnig reiknuð umboðslaun af hærri
upphæðinni sem og Kaffibrennslan
greiddi.
Um umboðsviðskipti var að
ræða
I dómnum er komist að þeirri niður-
stöðu að um umboðsviðskipti á milli
aðila hefði verið að ræða þar sem
Kaffibrennslan greiddi SÍS umboðs-
laun og þar með hafi SÍS átt að gegna
umboðsskyldum gagnvart Kaffi-
brennslunni. Ekki er talið að eðli
viðskiptanna hafi breyst við það að
SÍS fjármagnaði kaffiviðskiptin, enda
greiddi Kaffibrennsalan hrákaffið eftir
reikningi frá seljendum í Brasilíu og
víðar en ekki eftir reiknigi frá SÍS.
Ekki telur dómurinn að að tengsl
Kaffibrennslunnar og SÍS hafi leyst
hið síðamefnda undan þeirri skyldu
að uppfylla umboðssamninga þeirra á
milli.
Kaffibrennslunni bar afsláttur-
inn
Því er það mat dómsins að sannað
sé að um hafi verið að ræða umboðs-
viðskipti sem SÍS hafi innt af hendi
fyrir Kaffibrennslu Akureyrar og fyrir
það reiknaði SÍS sér umboðslaun.
Ekki hafi SÍS fært þessi kaup í bækur
sem innkaup og síðan sem beina sölu
til Kaffibrennslunnar. Að framan-
sögðu er það mat dómsins að Kaffi-
brennslunni hafi borið allur afsláttur-
inn og að notkun tveggja
vörureikninga og sú leynd sem yfir
viðskiptunum hvíldi sýni að þeim sem
að viðskiptunum stóðu hafi verið ljóst
að SÍS ætti ekki óskorað tilkall til
afsláttarins. Því þyki sannað að fram-
angreind háttsemi sé fjársvik og brot
á 248. grein hegningarlaganna.
Þó eru gerðar athugasemdir við
nokkrar kaffisendingar þar sem ekki
sé að finna nægilega greinargóð fylgi-
skjöl með þeim og því er heildarupp-
hæð fjársvika lækkuð og telst vera
tæpar 4,4 milljónir Bandaríkjadala.
Upphæð oftekinna vaxta er talin vera
liðlega 206 þúsund Bandaríkjadalir.
Ekki skjalafals
Varðandi þann hluta ákærunnar,
sem snýr að skjalafalsi og gjaldeyris-
lagabrotum, segir að ljóst sé að notkun
tveggja mismunandi reikninga fyrir
sömu hrákaffikaupum sé talin fölsun
og ennfremur notkun þeirra í blekk-
ingarskyni í viðskiptum. Hins vegar
sé ljóst að báðir reikningamir séu
gefriir út af sama aðila og efrii þeirra
ekki breytt síðar og af þeirri ástæðu
kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu
að rétt sé að hafna því að um skjala-
fals hafi verið að ræða. Því beri að
sýkna ákærðu af skjalafalsákærunni.
Hins vegar telur dómurinn þá hátt-
semi SIS að óska eftir hækkun
vörureikninga vegna tveggja sendinga
og notkun þeirra í blekkingarskyni sé
brot á 158. grein hegningarlaganna.
öm Clausen hrl. ræðir viö Gisla Theódórsson, fyrrum forstöðumann Lundúnaskrifstofu SÍS, en öm var verjandi Gísla
i málinu.