Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1987, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987. 3 Þá kemst dómurinn að þeirri niður- stöðu að rangir reikningar hafi verið lagðir íyrir gjaldeyrisyfirvöld og sé sú ranga upplýsingagjöf talin brot á gjaldeyrislögum en telja verði þó að sök sé íymd. Ósennileg fullyröing Erlends Varðandi refsiábyrgð ákærða Er- lends segir í dómnum að vegna stærðar SÍS mætti álykta að einstök atriði í daglegum rekstri SÍS hafi ekki verið borin undir forstjóra. En þó þyki sú fullyrðing Erlends afar ósennileg að hann hafi ekki vitað hvemig að hrá- kaífiinnflutningnum hafi verið staðið, um tvöfalt kerfi vörureikninga og þeim mikla afelætti sem gefinn var í viðskiptunum og leynt var fyrir Kaffi- brennslunni. Um, óvanalega aðferð hafi verið að ræða og afslátturinn óvenju mikill. Segist dómurinn verða að telja að aðferðin við að halda afs- lættinum leyndum hafi verið með þeim hætti að hún hafi komið frá hærra settum aðilum i fyrirtækinu en þeim sem stóðu að framkvæmdinni, en yfir- maður allra ákærðra, að Gísla undanskildum, var ákærði Hjalti og Erlendur síðan yfirmaður hans. Hins vegar hafi enginn ákærðu borið óyggj- andi vitni um bein eða óbein afskipti Erlends við refsiverða framkvæmd kaffiviðskiptanna. í dómnum segir að Erlendur hafi viðurkennt að hafa á árinu 1981 átt hlut í því að greiða Dráttarvélum 120 milljónir gamalla króna af hagnaði Lundúnaskrifstofunnar. Ekki hefði Erlendur sagst hafa hugað að því sérs- taklega hvemig hagnaðurinn var til kominn. Segir dómurinn að ekki sé hægt að sýna fram á að þessi fullyrð- ing sé röng, en hún geti alls ekki talist trúverðug þegar á það er litið um hversu mikla fjárhæð hafi verið að ræða. Að ff amansögðu þykir dómnum ekki alveg nægjanlegum stoðum skotið undir lögfulla sönnun fyrir sök ákærða Erlends og því verði hann að njóta þess vafa og beri því að sýkna hann af því sem honum er gefið að sök i ákæru og refsivert er tali,ð. Hjalti ábyrgur Varðandi Hjalta Pálsson kemur það ffarn í dómnum að hann hafi fylgst með og tekið ákvarðanir vegna hrá- kaffikaupanna og ffamkvæmd þeirra og þar á meðal notkun vörureikning- anna. Vegna stöðu hans sem yfirmað- ur innflutningsdeildar og framburðar vitna og nokkurra ákærðra telur dóm- urinn sannað, þrátt fyrir neitun Hjalta, að það hafi verið hann sem átti hlut að því að leggja á ráðin um það hvemig að viðskiptunum hafi ve- rið staðið. Varðar það notkun tvenns konar vörureikniga, launung á afs- lætti og óhóflegar vaxtatökur. Því teljist hann ábyrgur. Refsiverð háttsemi Sigurðar Árna Vegna ákærða Sigurðar Ama Sig- urðssonar er talið sannað að hann hafi átt hlut í ffamangreindum fjár- svika-, skjalafals- og gjaldeyrisbrotum og telur dómurinn það ekki skipta máli að hann hafi talið að SÍS bæri afslátturinn, enda hefði honum ekki átt að dyljast að um refsiverða hátt- semi hlyti að vera að ræða. Er talið að sök Sigurðar Ama snerti tvær kaffisendingar. Gísli og Árni sekir um hlutdeild Um ákærða Gísla Theódórsson segir að honum hefði ekki getað dulist að um óeðlileg viðskipti hefði verið að ræða en þrátt fyrir það hefði hann ekki séð ástæðu til þess að ræða þessi mál við yfirmenn sína, þá Erlend og Hjalta. Hann reiknaði út vexti vegna hærri vörureikninganna en ekki hinna lægri og samkvæmt því verði að telja að hann hafi gert sig sekan um hlutdeild í fjársvikum og gjaldeyr- isbrotum árin 1979 og 1980. Hvað varðar ákærða Amór segir í dómnum að hann hafi tekið við starfi Sigurðar Áma í ársbyrjun 1981 en þá hafi kerfi tvöfaldra vörureikninga ve- rið í notkun ffá árinu 1979. Hann hafi þó staðið að því að viðhalda kerfinu áfram. Er Amór sakfelldur fyrir hlut- deild í flársvika-, skjalafals- og gjald- eyrislagabrotum. Refsingar Við ákvörðun refsinga ákærðu kem- ur það ffam í dómnum að hþðsjón sé höfð af því til þyngingar að ákærðu hafi staðið saman að ólögmætri hátt> semi sem leiddi til fjársvika sem skiptu háum fjárhæðum og vom kerfisbundin og stóðu yfir í rúm tvö ár. Ekki hefðu svikin tekist nema með samvinnu nok- kurra aðila. Þá verði að telja það refsingu Hjalta til þyngingar að telja verði sannað að hann hafi átt upptök- in að þeirri háttsemi sem leiddi til fjársvikanna og gjaldeyrislagabro- tanna og það þeir ennfremur talið Sigurði Ama til þyngingar að hann hafi staðið að brotastarfseminni allan tímann. Þá telst það öllum ákærðu til mildunar að þeir hafi engan persónu- legan ávinning haft af brotunum svo vitað sé. Þá er það talið þeim Sigurði Áma, Gísla og Amóri til mildunar að þeir vom undirmenn sem tóku við fyr- irskipunum hærra séttra aðila í fyrir- tækinu. Segir dómurinn að refsing Hjalta þyki hæfilega ákveðin 12 mánaða fangelsi, Sigurðar Áma 7 mánaða fangelsi, Gísla 3ja mánaða fangelsi og Amórs 2ja mánaða fangels. En vegna ástæðna til mildunar ákveður dómur- inn að skilorðsbinda refsingar Sigurð- ar Ama, Gísla og Amórs, og Hjalta að 9 mánuðum, og falli þær niður að tveimur árum liðnum, haldi ákærðu almennt skilorð 57. greinar almennra hegningarlaga. Loks ákvað dómurinn málsvamar- laun hvers veijanda kr. 200.000 sem ákærðu greiða þeim, utan Erlendur, en málsvamarlaun hans greiðir ríkis- sjóður. Annan sakarkostnað greiðir ríkissjóður að einum fimmta hluta en ákærðu afganginn, aðrir en Erlendur Einarsson. -ój Kaffibaunadómurinn: Hjatti áfvýjar Hjalti Pálsson var sá eini sem hefur ákveðið að áfrýja dórni sínum vegna „kaffibaunamálsins“ til Hæstaréttar, en aðrir tóku sér lög- boðna fresti til ákvörðunar. Við uppsögu dómsins vora þrír ákærðu staddir, þeir Hjalti Pálsson, Gísli Theódórsson og Amór Val- geirsson, en Erlendur Einarsson og Sigurður Ámi Sigurðsson vora er- lendis. Verjandi Gísla sagði þó eftir dómsuppkvaðninguna að hann byggist fastlega við því að dóminum yrði áfiýjað. I samtali við DV í gær sagði Hall- varður Einvarðsson ríkissaksóknari að ákvörðim um áfiýjun af hálfu ákæravaldsins yrði tekin á næst- unni, en það yrði ekki gert fyrr en dómur Sakadóms hefði verið skoð- aður. Ekki gat Hallvarður sagt til um hvenær ákvörðun yrði tekin. -ój Fréttir „Engar myndir". Starfsmaður Sakadóms tilkynnir fulltrúum fjölmiðla að engar myndatökur séu leyfðar I réttarsalnum. DV-myndir KAE * Þórskabarett í Þórscafé - lykillinn að ógleymanlegri kvöldstund. Snyrtilegur klæðnaður - Aldurstakmark 20 ár STflÐUR VflNDLATRfl Fær Hemmi Gunn liðið til að bylgjast um af hlátri? Ætli Ómar Ragnarsson stikli um salinn og kitli hláturtaugarnar? Hvaða gestir lenda í klónum á bandaríska stórsöngvaranum Tommy Hunt? Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Munið að panta borð tímanlega vegna mik- illar aðsóknar. Borðapantanir í síma 23333 og 23335 mánudaga-föstudaga milli kl. 10.00 og 18.00 og laugardaga eftir kl. 14.00. Skyldi Raggi Bjarna enn vera með sömu taktana? Santos sextettinn leikur fyrir dansi Haldið þið að Þuríður ' Sigurðar syngi kattadúettinn? ☆ ☆ ☆ r/19461 ■ 1986 ☆ ☆ ÞÓRSKABARETT Sýndur fÖStudagS- og laugardagskvöld. Islenska kabarett landsliðið er mætt til leiks í fjörug- um og eldhressum Þórskabarett ásamt bandaríska stórsöngvaranum Tommy Hunt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.