Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1987, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987.
Spumingin
Hvernig finnst þér ríkis-
stjórnin hafa staðið sig?
Ái ni Árnason ellilífeyrisþegi: Ekkert
sérstaklega, hún hefði mátt standa
sig mun betur.
Ásta Hilmarsdóttir húsmóðir: Ég get
ekki dæmt um það því ég hef ekkert
fvlgst með því.
Þorsteinn Guðmundsson, starfar hjá
ísal: Bæði vel og illa. Það hefur ekki
verið gert nógu mikið fyrir láglauna-
fólkið. Það er alveg skammarlegt
hvað það er enn mikið ósamræmi í
launakerfinu.
Magnús Guðmundsson, starfar í
Hagkaup: Alveg ágætlega, þeir hafa
alla vega staðið við flest sín Ioforð.
Gísli Björnsson nemi: Ágætlega, en
þá verðum við líka taka inn í dæmið
að hún hefur haft mjög góð ytri skil-
yrði til þess að láta leiða gott af sér,
sbr. að halda verðbólgunni niðri. Þó
finnst mér óneitanlega Hafskipsmál-
ið og okurmálið setja sterkan og
ljótan svip sinn á þetta tímabil en
maður er orðinn ansi leiður á þessu
ábyrgðarleysi ráðamanna.
Guðmundur Finnsson verkstjóri: Vel
og illa. Staðið sig vel hvað verð-
bólguna varðar en því miður gegnir
öðru máli um félagsmálin og lands-
byggðarmálin hafa agjörlega verið
látin mæta afgangi.
Lesendur
DV
íslensk nóbelsverðlaun
Getur leiðtogafundurinn komið viðvarandi gæðastimpli á land og þjóð með því að veita árleg verðlaun sem
yrðu eftirsótt?
Geir skrifar:
Eftir að leiðtogafúndurinn (Reag-
an og Gorbatsjov) var haldinn hér í
Reykjavík spunnust um það miklar
umræður og skrif hvemig við gætum
nýtt best þá athygli sem land og þjóð
fékk.
Það virðist nú sem mesti dampur-
inn sé farinn úr þessari umræðu. En
þó er af og til einhver sem heldur
áfram að íjalla um hugsanlega
möguleika á frekari kynningu þess-
um atburði samfara.
Einhvers staðar las ég um hug-
mynd, komna frá einhverjum sem
hafði tengst þessum leiðtogafúndi
hér, og var hann með hugmynd um
að við íslendingar reyndum að við-
halda eða öðlast einhvers konar
gæðastimpil og tengdum hann al-
þjóðlegum verðlaunum í nafni
hússins sem fundurinn var haldinn
í, Höfða.
Hugmyndin var, að mig minnir, í
því formi að þessi gæðastimpill gæti
verið verðlaun, eins konar nóbels-
verðlaun sem menn legðu sig fram
um að fá. Þetta yrðu vegleg verð-
laun, minnispeningur eða eitthvað
ámóta ,og afhent einu sinni á ári og
þá á þeim tíma sem fundurinn stóð
hér eða utan háanna vegna ferða-
manna.
Þetta gæti reynst góð búbót til
aukningar ferðamönnum hingað,
svo og til að koma landinu í svið-
setningu svo um munar einu sinni
ár hvert er þessi verðlaun yrðu af-
hent. Þessi hugmynd er áreiðanlega
vel þess virði að henni sé gaumur
gefinn og því fyrr því betra. Ef fram-
kvæmdin verður dregin á langinn
kemur að því að ekkert verður úr
neinu og leiðtogafúndurinn verður
grafinn í gleymsku áður en varir eða
þangað til einhverjum þjóðhöfðingj-
anum þóknast einhvem tíma að líta
til Islands sem hugsanlegs fúndar-
staðar. Er þetta ekki þess virði að
hugsa nánar um það?
Rás 2:
Vantar Bama-
dagbókina
Jónína Pálsdóttir hringdi:
Mig langar til að vita af hverju
hætt var við að hafa Barnadagbókina
á rás 2. Þessir þættir voru á morgnana
og krakkamir höfðu alveg einstaklega
gaman af þeim enda vom þetta sérlega
líflegir þættir. Krakkamir vom mjög
hrifnir af lagavalinu og einstökum frá-
sögnum og svo gafst þeim einnig
kostur á að gerast þátttakendur í
þættinum með því að hringja.
Skora ég á forráðamenn rásarinnar
að halda þessum þáttum áfram þar sem
það yrði bömunum til mikillar
ánægju.
Guðríður Haraldsdóttir var stjórnandi þessa vinsæla þáttar og stóð sig með
prýði.
RÚV
Glotuð helgar-
dagskrá
Didda skrifar: mætti svona til tilbreytingar sýna.
Mig langar að taka undir það sem ^efur Hrafn Gunnlaugsson verið
V.H. skrifaði um daginn um lélega ®nn við að sýna myndir eftir sig
helgardagskrá hjá ríkissjónvarpinu. sjálfan.
Mér finnst helgardagskráin einu Góðir landsmenn, það erum við
orði sagt alveg ömurleg, það em sem borgum afhotagjöldin fyrir
hundleiðinlegar myndir sem eru þessa glötuðu dagskrá. Hvet ég ykk-
annaðhvort svarthvítar frá 1955 eða ur láta álit vkkar í ljós og
nýjar myndir sem enginn söguþráð- standa einu sinni saman því við
ur er í. Maður skyldi ætla að það hljótum að eiga rétt á betri dagskrá. *
væri nóg af góðum myndum sem
Liðlegir
bílstjórar
Farþegi hringdi:
Vegna greinar er birtist á lesenda-
síðunni um skapillsku strætisvagna-
bílstjóra á leið 13 viljum við hér 4
starfsfélagar taka það fram að við
fömm alltaf með 13 í vinnuna og
erum áðumefndri grein algjörlega
ósamnuila. Okkur finnst strætis-
vagnabílstjórarnir á þossum vagni
alveg sérstáklega elskulegir og góðir
bílstjórar og ekki hpfúm við orðið
vör við neina skapvonsku hjá þess-
um mönnum.
Það er mikið álag á strætisvagna-
bílstjómm og þá sérstaklega þeim
er keyra 13 því vagninn er alltaf
fúllur og jjeir eiga svona skítkast
engan veginn skilið. Fólk ætti að
skeyta skapi sínu á öðru en strætis-
vagnabílstjórunum.
Hrútspungar
- ekki eistu
Einar örn hringdi:
í iesendasíðunni nýlega var bóndi
sem vildi meina að hrútspungar
væm rangmæli, réttara væri að
segja hrútseistu.
Ég er mjög hissa að bóndi skuli
ekki vita meira en jjetta því eistun
em súrsuð í pungunum og því er
réttnefnið hnitspungar. Einnig er
það eldgömul og föst hefð að kalla
þetta hrútspunga.