Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Side 9
MÁNUDAGUR 2. MARS 1987.
9
Utlönd
Hröpuðu til
bana er
skíðalyfta bilaði
Sex skíðamenn hröpuðu til bana og
áttatíu særðust er ný skíðalyfta hrundi
í Luz-Ardiden í Pýreneaflöllum í
Frakklandi í gær. Um hundrað skíða-
iðkendur köstuðust úr lyftustólunum
sem næstum allir féllu til jarðar. Örfá-
ir skíðamenn dingluðu í nokkrar
klukkustundir í sætum sínum ofarlega
í brekkunni áður en þyrlur komu þeim
til bjargar.
Að sögn lögreglu og björgunarliðs
eru þrjátíu manns alvarlega slasaðir.
Samkvæmt fyrstu fregnum eru hinir
látnu af frönsku og spænsku þjóðerni.
Gott veður var er slysið varð og
§öldi manns í skíðabrekkunum. Snjó-
lítið hjefur verið undanfarnar vikur
og féllu margir þrjátíu metra niður á
bert grjót. Lyftan hafði aðeins verið í
notkun í þfyár vikur. Ekki er enn vit-
að hvað olli slysinu.
Tugþúsundir heiðr-
uðu minningu
Olofs Palme
Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi:
„Við höfum fengið okkar dýrling
hér i Svíþjóð.“ Þannig voru viðbrögð
konu einnar 'er fréttamaður sænska
sjónvarpsins spurði hvers vegna hún
hefði komið að gröf Palme á laugar-
dag. Og vafalaust hafa margir getað
tekið undir með henni.
Á laugardag var ár liðið frá morð-
inu á Palme og í tilefni dagsins gengu
tugþúsundir Stokkhólmsbúa fram
hjá gröf hans í Adolf Fredriks kirkju-
garðinum. Þúsundir manna söfnuð-
ust einnig við morðstaðinn á
Sveavágen og margir sáust gráta
eins og fyrir einu ári.
Sten Andersson utanríkisráðherra
lagði á hádegi blómsveig á leiði
Palme og hélt síðar ræðu þar sem
hann ræddi um friðarboðskap Palme.
Hvatti hann til þess að ekki yrði lát-
ið undan ofbeldinu og baráttunni í
þágu friðar yrði haldið áfram.
Einna mesta athygli vakti bílalest
raggara á Sveavágen. „Þetta er okk-
ar gata og hér skal enginn myrða
forsætisráðherra okkar," sögðu
raggararnir sem lögðu krans í rósa-
hafið á morðstaðnum.
Stjórn jafnaðarmannaflokksins
hefur nú ákveðið í samráði við fjöl-
skyldu Palme að einhvers konar
minnismerki verði komið fyrir á
morðstaðnum. „Við vorum á móti því
í byrjun en það er greinilegt að fólk
vill það og að það er þörf fyrir ein-
hvers konar minningarmerki þar,“
segir einn af talsmönnum flokksins.
Meðal kransa sem lagðir voru á
leiði Palme á laugardag var krans
frá landssamtökum Kúrda í Svíþjóð
en eins og alkunna er hafa kúrdísku
samtökin PKK legið undir grun um
að bera ábyrgð á morðinu.
Aðalfrétt sænskra blaða um helg-
ina voru þó viðbrögð við frétt New
York Times þar sem því er haldið
fram að sænska ríkisstjórnin hafi
nýverið fengið heimildir frá útlend-
um leyniþjónustum um að morðið á
Palme tengist sáttasemjarahlutverki
hans í Persaflóastríðinu. Sænska
ríkisstjórnin hefur þegar borið til
baka þessar fréttir.
Thage G. Peterson, iðnaðarmálaráðherra Sviþjóðar, og Sten Anderson
utanrikisráðherra lögðu krans á leiði Olols Palme á laugardaginn til minn-
ingar um að ár var liðið frá þvi að hann var myrtur. Símamynd Reuter
ÁTT ÞÚ 100.000 KR.
OG ELDRIFORD ESCORT?
Med Ford skiptíkjönim getur þú auðveldlega
eignast nýjan ESCORT ’87
Dæmi: Peningar 100.000.-
lán 101.700.-
eldii Escort u.þ.b. 270.000.-
= Nýr ESCORT1300CL 5 dr. kr. 471.700.-
Ford Escort - framdrifinn þýskur gæðabíll
SVEINN EGILSSON HF
Skeifunni 17. Sími 685100.
f - í - .mm
Til Israel — í sólina
Jerúsalem — Betlehem — Hebron — Dauðahafið — Massada — Jeríkó — Nazaret —
Kapernaum - Golanhæðir - Akkó - Haifa - Netanya - Tel Aviv - Jaffa.
Láttu drauminn rætast. Þægileg þriggja vikna ferð til landsins helga þar sem leitast verður við að sam-
eina skoðunarferð á fræga sögustaði og hvíldarferð á yndislega strönd Miðjarðarhafsins. Dvalið verður
7 daga I Jerúsalem, 3 daga I Tíberías á strönd Genesaretvatns og 8 daga á einni bestu baðströnd lands-
ins, Netanya. 2 dagar í London á heimleið. Góð 3 til 4 stjörnu hótel með morgunverði. Skoðunarferðir
innifaldar I verði.
Brottför 1. maí. Verð: 59.800.00 NOtíð þ@tt3 ©ÍllStaka t8BkÍf8BrÍ.
Meöaltjöldi sólardaga
Meöalhiti 25-32 stig.
mai 30 dagar Fararstjórar:
Hrefna Pétursdóttir og
Þráinn Þorleifsson, tormaóur félagsins ísland-ísrael.
Ferðaskrifstofa Snorrabraut 27-29, simi 26100