Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Page 13
MÁNUDAGUR 2. MARS 1987.
13
dv____________________________________________________________________________Skák
IBM-skákmótið:
Ekki að spauga með hann Joa
- þegar hann sneri vöm í sókn og sigraði í 8. umferðinni
Skák dagsins í 8. umferðinni á laug-
ardag var viðureign þeirra Nigels
Short og Jóhanns Hjartarsonar. Sá
enski kom betur út úr byrjuninni og
það leit ekki út fyrir að Jóhann riði
feitum hesti frá viðureigninni. Menn
voru ,daufir í dálkinn og hættu að
fylgjast með skákinni á skjánum. En
svo allt í einu kom í ljós að taflið var
að snúast við. Jóhann var ekki lengur
í vöm heldur kominn i bullandi sókn.
Þar með þyrptust allir að skjánum
með skák Jóhanns og Short og allt i
einu var spennan í hámarki.
„Það er svona þegar menn fá kær-
ustuna í heimsókn, einbeitingin bilar
og menn þreytast fyrr,“ sögðu speking-
amir. „Þetta hefur ekkert með
kæmstuna að gera, hér er bara á ferð-
inni snilli Jóhanns," sögðu aðrir.
Svona fuku athugasemdimar meðan
Jóhann þjarmaði jaíht og þétt að
Short. „Hvers vegna gefst maðurinn
ekki upp?“ spurði einhver. „Þarna
Guðmundur Sigurjónsson stjórnar skákskýringum í skákskýringasal
Þessir mættu
Laugardagur-8. umferð:
Það var fremur fámennt á 8. um-
ferðinni á laugardaginn. Meðal þeirra
sem mættu vom: Höskuldur Ólafsson
bankastjóri, Páll Jónsson í Pólaris,
Hannes Hlífar Stefánsson skákmaður,
Guðmundur Arason, fyrrverandi for-
seti Skáksambandsins, Þrándur
Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður,
Hjörtur Gunnarsson kennari, Helgi
Sæmundsson skáld, Lúðvík Jósepsson,
fyrrverandi ráðherra, Ólafrn- Helgason
bankastjóri, Gunnar Gunnarsson,
bankamaður og skákmaður, Jón Þor-
steinsson lögfræðingur, Hlynur Sig-
tryggsson veðurstofustjóri, Bjarni
Bragi Jónsson, aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans, Páll Bjamason prent-
smiðjustjóri, Haukur Bjömsson
bókari, Friðrik Ólafsson, stórmeistari
og skrifstofustjóri Alþingis, Guðni
Þorsteinsson fiskifræðingur, Leó Ing-
ólfsson rafeindavirki, Ólafur Eyjólfs-
son skrifstofustjóri, Friðjón Sigurðs-
son, fyrrum skrifstofustjóri Alþingis,
Ivar H. Jónsson, skrifstofustjóri Þjóð-
leikhússins, Guðlaugur Guðmundsson
kaupmaður, Gísli Guðlaugsson, skák-
maður úr Búðardal, Guðmundur
Einarsson verkfræðingur, Ingi R. Jó-
hannsson, endurskoðandi og skák-
maður, Hafsteinn Austmann listmál-
ari, Engilbert Ingvarsson, bóndi
Tyrðilsmýri, Stefán Þ. Stephensen
hljóðfæraleikari, Eiríkur Hrehm
Finnbogason bókmenntafræðingur,
Halldór Blöndal alþingismaður, Bjöm
Grétar Sveinsson verkalýðsforingi,
Höfn Hornafirði, Þórir Daníelsson,
framkvæmdastjóri Verkamannasam-
bandsins, Sæmundur Pálsson lög-
regluþjónn, Sigurður Bjamason
handknattleiksþjálfari, Björgvin
Jónsson skákmaður, Benedikt Jónas-
son skákmaður, Þorbjöm Sigurgeirs-
son prófessor, Gunnar Steinn Pálsson
framkvæmdastjóri, Hjálmar Theo-
dórsson frá Húsavík, Borgþór Jónsson
veðurfræðingur, Jón Ámi Jónsson,
menntaskólakennari á Akureyri, Ind-
riði Jóhannsson bankamaður, Högni
Torfason, fyrrverandi fréttastjóri,
Bragi Bjöm bankamaður.
-S.dór
kemur það, hann er búinn að gefa,“
var þá allt í einu hrópað á ganginum
og sigurbros færðist yfir andlit spek-
inganna. „Hann Jóhann, það er ekki
að spauga með hann,“ sögðu menn og
vom stoltir.
Jón L. og Mikhail Tal sömdu um
jafntefli eftir fáa leiki. „Hann sagðist
ekki vera í árásarskapi í dag og tefldi
bara upp á jafntefli svo ekki var um
annað að gera en semja þótt mér sé
ekki að skapi að semja jafntefli á lítt
tefldar stöður,“ sagði Jón L. á eftir.
Helgi Ólafsson samdi líka jafhtefli við
Ljubojevic en ógæfan elti Margeir
Pétursson og hann varð að gefast uþp
fyrir Polugaévskí. Ljósi punkturinn
fyrir íslensku áhorfendurna var sigur
Jóhanns Hjartarsonar og menn fóru
sæmilega ánægðir heim.
-S.dór
'AO GBR idi
lo gömlu
tækin? r~
EGROHE RANNSOKNIR - ~
- ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR -
NOTUÐ BLÖNDUNARTÆKI FRÁ ÍSLANDI ERU HEPPILEG TIL
RANNSÓKNA OG ÞRÓUNAR NÝRRA BLÖNDUNARTÆKJA FRÁ
EGROHE
ATT ÞU GAMALT BLONDUNARTÆKI?
ÞÁFÆRDU 25% AFSLÁTTÁ
NY-IU SGROHE TÆKI
2S61Q G/B/T/L jí 33050tyY^ E 21277 L ' ~ ^ ^
3 0 #
\ 313 >U» 21610 G/B/L/T
eP
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
SKUTBÍLL 1500
Höfum þennan frábæra farkost til afgreiðslu á mjög
stuttum tíma.
Verð aðeins 206.000,-
Góð greiðslukjör.
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16.
Verið velkomin.
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR ^
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur