Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Qupperneq 34
50 MÁNUDAGUR 2. MARS 1987. LYFTARAR ATH! Nýtt heimilisfang Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra raf- magns- og dísillyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyftara. Varahluta- og viðgerðaþjónusta. Líttu inn - við gerum þér tilboð. Tökum lyftara í umboðssölu. LYFTARASALAN HF. Vatnagörðum 16, símar 82770-82655. Rakarastofan Klapparstíg Hárgreiðslustofan Klapparstíg Sími 12725 Tímapantanir 13010 í gærkvöldi dv Guðný Guðmundsdottir konsertmeistari: „Tónlistin útundan í umfjöllun“ 1 gærkvöldi horfði ég á hluta bæði af Geisla og Goya. Þetta var í fyrsta skipti sem ég sá Goya. Mér fannst ánægjulegt að sjá að í þessum þætti er góð yfirsýn yfir mannkynssöguna. Þættir í þessum dúr finnast mér yfir- leitt mjög góðir. Geisli finnst mér mjög jákvætt framlag en um of ein- hliða, tónlistin er útundan í allri umfjöllun hvað varðar hvað tónlist- armenn eru að semja eða spila hér á landi í dag. En útvarpið hef ég ekki í gangi allan daginn. Frekar lít ég yfir dagskrána og athuga hvort eitthvað áhugavert sé að heyra. Ég kýs heldur að hafa þögnina en að hafa kveikt á útvarpinu bara til þess að hafa það í gangi. Ég meira að segja kann ekki að stilla yfir á Bylgj- una. Það er frekar að ég hafi kveikt á útvarpi á hátíðum þegar maður hefur meiri tíma heima við. Guðný Guðmundsdóttir. Um helgar endist ég yfirleitt ekki til þess að horfa á seinni mynd sjón- varpsins. Besta afþreyingarefni þar finnst mér vera jjættir með Miss Marple í fararbroddi og þeir sem eru byggðir á sögu P.D. James. Og Bill Gosby finnst mér mjög skemmtilegur og reyni helst ekki að missa af hon- um. Þrátt fyrir það finnast mér bresku þættirnir mun vandaðri. Löggulíf, sem var á laugardags- kvöldið, fannst mér of vitlaust til þess að vera fyndið. Dagskráin bæði á rás 1 og í sjón- varpinu finnst mér mjög góð innan um. Það er helst til of handahófslega valin tónlistin, vantar stefnumörk- un. Það mætti gera meira að því að kynna erlendar tónlistarkeppnir. En ég er ánægð með margt og þar er margt mjög vandað, einnig á stöð 2, sem er órtuflað. Það er auðvitað ekki hægt að gera öllum til hæfis. I LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Fóstrur, þroskaþjálfar eða aðrir með uppeldisfræði- lega menntun og reynslu óskast til stuðnings börnum með sérþarfir á dagvistarheimilum í vestur- og mið- bæ, heilsdags- eða hlutastarf eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir Gunnar Gunnarsson sálfræðingur á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277 eða 22360. Fóstrur eða fólk með uppeldislega menntun vantar á dagh. Bakkaborg v/Blöndubakka, dagh./leiksk. Hraunborg, Hraunbergi 10, og leiksk. Leikfell, Æsu- felli 4. Ennfremur vantar aöstoðarfólk á dagh. Valhöll, Suðurgötu 39, og dagh./leiksk. Grænuborg, Eiríks- götu 2. Upplýsingargefa umsjónarfóstrurá skrifstofu Dagvist- ar barna í síma 27277 og 22360 og forstöðumenn viókomandi heimila. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJAVÍK LAUSAR STÖÐU Auglýstar eru til umsóknar þrjár stöður. 1. Staða forstöðumanns á nýju heimili í Reykjavík fyrir 5 fjölfötluð börn. 2. Staða forstöðumanns á sambýli í Reykjavík þar sem búa 5 fatlaðir einstaklingar. Starfssvið forstöðumanna er, auk meðferðarstarfa, vaktaskipulag, fjárreiður og starfsmannahald. Stöð- urnar krefjast fagþekkingar, færni í samskiptum og hæfileika til stjórnunar. 3. Staða þroskaþjálfa á sambýli. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af meðferðar- starfi með fötluðum og þekki fjölþætt markmið þess. Ráðningartími hefst eftir nánara samkomulagi. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 10. mars nk. Nánari upplýsingar í síma 621388. Svæðisstjórn málefna fatlaðra, Hátúni 10, 105 Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 90., 99. og 101. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign- inni Grenilundi 5, Garðakaupstað, þingl. eign Sonju Margrétar Gránz, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs og Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. mars 1987 kl. 14.00. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað Nauðungaruppboð sem auglýst var I 31., 34. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign- inni Kjarrmóum 9, Garðakaupstað, þingl. eign Sigurðar Hanssonar, fer fram eftir kröfu Ara ísberg hdl„ Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. mars 1987 kl. 13.45. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað Andlát Margrét Halldórsson, Tómasar- haga 31, lést 27. febrúar í Landspítal- anum. Elín Snorradóttir Welding andað- ist að morgni 27. febrúar. Margrét Sigríður Jónsdóttir, Safamýri 57, verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, 2. mars, kl. 13.30. Heinrich Karlsson, Brekkubæ 20. Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 2. mars. kl. 15. Jónína Magnúsdóttir, Hátúni lOa, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 3. mars. Anna Theodórsdóttir lést 18. fe- brúar sl. Hún fæddist 29. apríl 1899 að Botni í Þorgeirsfirði, S-Þingeyjar- sýslu. Foreldrar hennar voru Theodór Friðriksson rithöfundur og Sigurlaug Jónasdóttir frá Hróarsdal í Skagafirði. Anna var gift Zóphon- íasi Jónssyni er lengi starfaði á Skattstofunni í Reykjavík. Eignuð- ust þau 4 börn en Zóphonías lést árið 1984. Útför Önnu verður gerð frá Kópavogskirkju á morgun, þriðjudaginn 3. mars, kl. 13.30. Tilkyiiimgar Merkjasala á öskudag Revkjavíkurdeild R.K.l. afliendir merki á neðantöldum útsölustöðum 3. mars 1987. Börnin fá 15 kr. í sölulaun fyrir hvert selt merki. og þau söluhæstu fá sérstök verð- laun. Vesturbær: Skrifstofa Reykjavíkur- deildar R.K.Í. Öldugötu 4. Melaskóli, Vesturbæjarskóli. Austurbær: Skrifstofa R.K.l. Iíauðarárstíg 18. Hlíðaskóli. Álfta- mýrarskóli. Hvassaleitisskóli. Austurbæj- arskóli. Smáíbúða- og Fossvogshverfi: Fossvogsskóli, Breiðagerðisskóli. Laug- arneshverfi: Laugarnesskóli. Klepps- holt: Langholtsskóli. Vogaskóli. Árbær: Árbæjarskóli. Breiðholt: Breiðholtsskóli, Arnarbakka 1. Fellaskóli, Breiðholti 111, Hólabrekkuskóli. Seljaskóli, Öldusels- skóli. Seltjarnarnes: Mýrarhússkóli. Grafarvogur: Foldaskóli. Byrjendanámskeið í makróbí- otík Helgina 7. og 8. mars verður haldið byrj- endanámskeið í makróbíotík, þ.e.a.s. list- inni í að setja saman mat á réttan hátt samkvæmt persónulegum þörfum hvers og eins, veðurfari, árstíð og starfsvettvangi. Hér verður Yin-Yang lögmálið haft að leiðarljósi. Þetta er kjörið tækifæri til að byrja fyrir þá sem hafa áhuga á heildræn- um aðferðum (Holistic Approach), þar sem fæðan er mikilvægur þáttur í líkams-sálar- heilsu hvers einstaklings. Leiðbeinendur verða Tue Gertsen. kunnur fyrirlesari frá Rosenborg Center í Kaupmannahöfn, Soff- ía Lára Karlsdóttir og Gunnhildur Emils- dóttir. Nánari upplýsingar og innritun í síma 13009. Fundir Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur fund nk. fímmtudag 5. mars kl. 20.30 á Hallveigarstöðum. Ungt fólk kemur á fundinn og skemmtir með söng og hljóð- færaleik. Svigmót Víkings í flokki 13-14 ára drengja og stúlkna verð- ur haldið laugardaginn 7. mars á skíða- svæði Víkings, Sleggjubeinsskarði. Þátttökutilkynningar tilkynnist í síma 38668 fyrir miðvikudagskvöld. Málstofa KFUM og K í kvöld 2. mars kl. 20.30 verður fundur í málstofu KFUM og K. Fundarstaður er Amtmannsstígur 2b og er efni fundarins ..kynfræðsla og eyðni“. Allir velkomnir. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund þriðjudaginn 3. mars kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Spiluð verður fé- lagsvist. Mætið vel og takið með ykkur gesti. Sálarrannsóknarfélag íslands Aðalfundur félagsins verður haldinn á Hótel Esju fimmtudaginn 5. mars kl. 20. Fundarefni: 1. venjuleg aðalfundarstörf. 2. lagabreyting, 3. önnur mál. Athugið breyttan fundarstað. Kvenfélagið Fjallkonurnar heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 3. mars í Fella- og Hólakirkju kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf, bingó spilað og kaffíveit- ingar. Afrnæli 75 ára afraæli á í dag, 2. mars, Jóhann Jónasson, fyrrverandi for- stjóri Grænmetisverslunar land- búnaðarins. Hann dvelur nú í Hvera- gerði ásamt eiginkonu sinni, Mar- gréti Sigurðardóttur. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins: Áætlun um frjjálsan innflutning búvöru - Reykvíkingar með sérstakan viðbúnað „Á sviði innflutnings ríkir enn opin- ber verndarstefna vegna olíuinnkaupa og leggur landsfundur Sjálfstæðis- flokksins það til að olíuverslunin verði gefin fijáls og að þar verði tekin upp frjáls verðlagning. Þá verði einnig gerð áætlun er miði að því að innflutn- ingur búvöru verði smám saman gefinn frjáls," segir í drögum við- skiptanefndar flokksins að ályktun á landsfundi nú í vikunni. Um búvöruinnflutninginn vísar í drögunum til sams konar aðgerða vegna iðnvamings sem hafi orðið öll- um til hagsbóta. Þá segir meðal annars: „Lagt er til að einkaréttur stóru fisksölufyrirtækjanna verði af- numinn á útflutningi og að opinber afskipti af útflutningi miðist í auknum mæli við alhliða eflingu útflutnings- fyrirtækja ...“ „Við teljum að fram- leiðslu búvöru eigi að miða við ákveðið mark sem leiði frekar til ein- hvers innflutnings en útflutnings og að síðan verði stefnt að því að ríkið reki ekki sérstaka vemdarstefhu í þessari grein. En það em algerarýkjur að við séum að ráðast með þessu að landbúnaðinum," segir Hreinn Lofts- son, aðstoðarmaður utanríkisráð- herra, formaður viðskiptanefndar. Samkvæmt heimildum DV hafa reykvískir sjálfstæðismenn nú uppi sérstakan undirbúning til þess að sjón- armið þeirra verði ekki undir í væntanlegum umræðum á landsfund- inum þar sem strjálbýlismenn verða fjölmennir. -HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.