Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1987, Blaðsíða 36
52
MÁNUDAGUR 2. MARS 1987.
Sviðsljós
Menningarverðlaun DV:
Menningarverðlaun DV voru
sem kunnugt er afhent við mikla
viðhöfn í hádegisverði á Hótel
Holti síðastliðinn fimmtudag.
Það var létt yfir gestum enda
gleðiatburður í vændum og ekki
spillti matseðillinn sem er þekkt-
ur fyrir annað en að vera með
hefðbundnum hætti. Hrár sítr-
ónuleginn lax var í forrétt að
þessu sinni en langlúra, veidd við
Vestmannaeyjar, í aðalrétt.
Kverkarnar voru vættar í upp-
hafi með sérríi, hvítvín með
réttunum og í lokin voru smákök-
ur kaffi og Porto Noval púrtvín.
Rut L. Magnússon tók við tón-
listarverðlaunum fyrir hönd
Sinfóníuhljómsveitar æskunnar,
Hróbjartur Hróbjartsson og Sig-
urður Björgólfsson hlutu verð-
launin í byggingalist, Óskar
Gíslason fyrir kvikmyndagerð,
Katrín Hall tók við leiklistar-
verðlaununum fyrir íslenska
dansflokkinn, Gunnar Örn
Gunnarsson hlaut viðurkenning-
una fyrir myndlist en Thor
Vilhjálmsson fyrir bókmenntir.
Meðfylgjandi DV-myndir GVA
sýna að ekki væsti um gesti DV
við verðlaunaafhendinguna það
herrans ár áttatíu og sjö.
Menningarverðlaunahöfum var boðið til herlegrar veislu á Hótel Holti. Thor Vilhjálmsson rithöfundur hefur orðið.
Rut L. Magnússon þakkaði heiðurinn fyrir hönd Sinfóníuhljómsveitar æskunnar.
Verðlaunahafar og dómnefnd sameinuð að lokum - arkitektarnir Hilmar Þór Björnsson, Sig-
urður Brynjúlfsson, Hróbjartur Hróbjartsson og Páll Gunnlaugsson.
Dómnefndarmennimir Baldur Hjaltason, Öm Ólafsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson virtust
líta veisluna alvarlegum augum.
Dómsorðin voru fallin hjá dómnefndarmönnunum Hringi Jóhannessyni og Daða Guðbjörns-
syni á myndlistarsviði og Páli Valssyni í bókmenntunum.