Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1987, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 21. MARS 1987.
Fréttir
Þorsteinn er enginn
skriftafaðir minn
- segir Albert Guðmundsson sem væntanlegur er heim frá Kaupmannahöfn í dag
„Þorsteinn Pálsson er enginn
skrifitafaðir minn,“ sagði Albert Guð-
mundsson iðnaðarráðherra er DV náði
símasambandi við hann á hóteli í
Kaupmannahöfn í gær. Albert er
væntanlegur heim til íslands í dag.
Albert var spurður hvað honum
þætti um þau vinnubrögð Þorsteins
að dreifa upplýsingum um skattamál
hans á blaðamannafundi:
„Ég vil ekkert um það segja. Ég er
búinn að heyra svo margt hingað og
þangað í molum að ég veit bara ekki
nógu mikið til að geta svarað þessu.
Ég held að ég verði bara að bíða þang-
að til ég kem heim og sjá hvað hann
hefur sagt og tala við hann.“
Telurðu að þú verðir flæmdur af
framboðslistanum í Reykjavík?
„Ég tel það alls ekki. Hver á að
flæma mig af listanum?“
Ekki Þorsteins að reka menn
eða ráða
- Var sá möguleiki nefhdur eða rædd-
ur á einkafundi ykkar Þorsteins að
þú segðir af þér?
„Nei. Þorsteinn hefur ekkert nefnt
það við mig enda er það ekki hans að
reka menn eða ráða. Það eru kjósend-
ur sem kjósa á listana. En einkavið-
ræður okkar Þorsteins eru ekki til
þess að láta út í blöðin. Það væri þá
ekki mikið um einkaviðræður okkar
á milli ef svo væri. Við tölum oft í
trúnaði."
- Berð þú fullt traust til Þorsteins sem
formanns?
„Ég ber fullt traust til hans. Ég hef
enga ástæðu til annars.“
- Vissir þú á sínum tíma af þessum
greiðslum frá Hafskipi til heildversl-
unar Alberts Guðmundssonar?
„Ekki fyrr en eftir á. Ég vissi það
„Mönnum er gefinn kostur á að
kynna sér rannsókn okkar ef við telj-
um að rannsóknin leiði hugsanlega til
skattahækkana. Þegar svör þessara
manna koma er tekin afstaða til sjálfr-
ar hækkunarinnar eða hvort rann-
sókn er felld niður, komi fullnægjandi
svör,“ sagði Guðmundur Guðbjama-
son skattrannsóknarstjóri er DV
spurði um hvemig meðferð skattamála
væri hjá embættinu.
„Ef við teljum að hækka eigi skatt-
ana em skattamir hækkaðir og yfir-
leitt er það ríkisskattstjóri sem
að fyrirtækið hafði afslátt frá Haf-
skipi.“
- Þú tókst þá ekki við þeim sjálfur?
Framseldi aðra ávísunina
„Önnur greiðslan kom á ávísun á
framkvæmir það. Síðan fær aðilinn
kærufrest. Að loknum þeim kæmfresti
kemur aftur annar kærufrestur til rík-
isskattanefndar."
- Hvað með viðurlög á þessu stigi?
„Við getum beitt þvi sem við köllum
álagi en teljum við málið vera meira
umleikis kemur tvennt til: Annars
vegar að senda málið til ríkisskatta-
nefndar að loknum þessum kæmfrest-
um og þá til skattsektarmeðferðar.
Teljum við málið alvarlegra og það sé
brot á fleiri ákvæðum í þessu sam-
bandi fer málið til rannsóknar hjá
mig og ég framseldi hana. Heyrðu. Það
komu tvær krossaðar ávísanir nýlega
frá Reykjavíkurborg á mig, addressað-
ar heim til mín fyrir reikninga sem
vom stílaðir á Reykjavíkurborg af
heildsölunni á Grundarstíg 12. Og
rannsóknarlögreglu ríkisins með það
í huga að það fari fyrir dómstóla."
- Hvar setjið þið mörkin? Miðið þið
við ákveðna fjárhæð eða eðli málsins?
,fJá. Fjárhæð og eðli brotsins. Það
er margt skoðað i þessu sambandi.
Skattaðili hefur alltaf möguleika á því
á þessu stigi málsins að vísa því til
dómstólanna en óska ekki eftir með-
ferð ríkisskattanefndar. En flest málin
fara fyrir skattsekt."
- Við hvaða fjárhæð miðið þið?
„Ég get ekki gefið upp neina tölu
um það. Þetta er metið í hverju til-
auðvitað verð ég að framselja það. Það
er bara viðskiptamáti, að framselja
ávísanir til þeirra sem eiga að fá þær.“
- Ef sú staða kæmi upp á þú yrðir
ekki í efsta sæti, yrðir flæmdur af list-
anum, kæmi þá sérframboð til greina?
„Þessi spuming er bara ekki tíma-
bær. Ég skil ekki hvað er að ske heima
ef þessi spuming er tímabær."
- Er búið að ákveða fund ykkar Þor-
steins?
„Nei, nei, nei.“
- Ætlarðu að ræða við hann strax eft-
ir heimkomu?
Ætla að átta mig á því hvað
er að ske heima
„Ég ætla nú átta mig á því hvað er
að ske þama. Ég veit ekki hvenær ég
ræði við Þorstein. Við ræðum alltaf
saman öðm hvom.“
- Heldurðu að það verði um helgina
eða eftir helgi?
„Ég á ekkert von á því að það verði
um helgina. Það veit ég ekkert um.“
- í viðtali við útvarpsstöðina Bylgj-
una spyrð þú hvemig standi á því að
þessi rannsókn á fynrtæki þínu leki
út frá skattrannsóknarstjóra.
„Hvemig stendur á því að það lekur
ekki fleira? Það em margir tugir ein-
staklinga og fyrirtækja sem fá athuga-
semdir við skattaframtöl á hverju
einasta ári. Og skattstjóri er alltaf að
leiðrétta framtöl. Af hveiju lekur þessi
eina leiðrétting út en ekki allar hinar?
- Nú var það Þorsteinn Pálsson sem
skýrði frá þessu máli á sérstökum
blaðamannafundi. Finnst þér það eðli-
legt af honum?
„Það veit ég ekkert um. Ég þarf að
bæði að heyra það sem hann sagði og
tala við hann á eftir. Ég vil ekkert
kommentera neitt á það.“ -KMU
viki. Og ef það em jafnhliða fleiri brot
framin og það er kannski verið að
rannsaka þau hjá rannsóknarlögregl-
unni er venjan að þetta fari þangað,
ef við á annað borð teljum ástæðu til
að beita sektum," sagði skattrann-
sóknarstjóri.
Hann sagði að á síðasta ári hefðu
366 mál verið tekin til skoðunar hjá
rannsóknardeildinni. Fyrir utan það
vom allmiklar formskoðanir á bók-
haldi og yfir 800 mál reyndar skoðuð.
Af þeim fóm 103 rannsóknir í skatta-
hækkun, söluskattshækkun eða tekju-
og eignarskattshækkun. -KMU
FulKrúaráðið:
Getur breytt
listanum
með skömmum
fyrirvara
„Fulltrúaráðið getur breytt lista.
Það hefur að sjálfsögðu vald til
þess að endurskoða afstöðu sína
þegar þær aðstæður skapast,"
sagði Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson, framkvæmdastjóri full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík hefur ekki verið
lagður inn. „Ég hef ekki séð að
landskjörstjóm hafi auglýst neina
móttöku á listum," sagði Gunn-
laugur Sævar. Framboðsfrestur
rennur út á miðnætti föstudagsins
27. mars.
„Það em engin ákvæði um það
í reglum fulltrúaráðsins að það
þurfi að boða fundi með einhverj-
um ákveðnum fyrirvara eða
hvemig eigi að gera það. Á þessum
fjölmiðlatímum er hægt að boða
fulltrúaráðið saman með mjög
skömmum fyrirvara," sagði Gunn-
laugur.
I fulltrúaráðinu em rúmlega eitt
þúsund manns. Einfaldur meiri-
hluti nægir til að breyta listanum.
-KMU
Ingi Björn Albertsson forstjóri við
dyr heildverslunar Alberts Guð-
mundssonar í gær. DV-mynd BG
Ingi Björn
kveðst bera
ábyrgðina
Ingi Bjöm, sonur Alberts Guð-
mundssonar, segist taka á sig alla
ábyrgð á mistökum sem orðið hafi við
framtal á greiðslum frá Hafskipi enda
hafi hann verið forstjóri heildverslun-
ar Alberts Guðmundssonar í meira en
áratug, frá því að faðir hans tók sæti
á Alþingi.
Ingi Bjöm Albertsson segir að mis-
tökin hafi orðið vegna þess að fylgi-
skjöl með greiðslunum hafi vantað.
Þau hafi ekki borist þrátt fyrir beiðni
þar að lútandi. Greiðslumar hafi því
einfaldlega dottið úr umferð og hrein-
lega gleymst.
Heildverslun Alberts Guðmundsson-
ar, sem er til húsa að Gmndarstíg 12,
flytur meðal annars inn kranabíla og
varahluti í þá, öryggishurðir og pen-
ingaskápa fyrir banka, sælgæti, áfengi
og tóbak, að sögn Inga Bjöms. -KMU
Meðferö mála hjá skattrannsóknarstjóra:
Skattar 103 hækkaðir í fyrra
Skattrannsóknarstjóri um verttar upplýsingar um skattamál Alberts Guðmundssonar:
Ráðherrann getur krafist upplýsinga
- fleiri en Albert töldu afslættina ekki fram
„Fjármálaráðherra er yfirmaður
skattamála í landinu," sagði Guð-
mundur Guðbjamason skattrann-
sóknarstjóri er DV spurði hvort
fjármálaráðherra hefði meiri heimild
en aðrir til að fá upplýsingar um
rannsókn á skattframtölum manna.
„I 105. grein skattalaganna, sem
fjallar um eftirlit fjármálaráðherra,
segir: „Fjármálaráðherra hefur eftir-
lit með því að skattstjórar, skatt-
rannsóknarstjóri og ríkisskattstjóri
ræki skyldur sínar. Hann hefur rétt
til að fá til athugunar skattframtöl
og gögn varðandi þau og krefja
framangreinda aðila skýringa á öllu
því er framkvæmd laga þessara
varðar.“
Þannig að þessi lagaheimild liggur
fyrir. Og eins og kom fram hjá ráð-
herra í gær er það ekki venja
ráðherra að skipta sér af gangi mála
héma. En eins og þetta mál var kom-
ið þama í fjölmiðla taldi hann sér
rétt og skylt að afla upplýsinga
sagði Guðmundur.
- Verða gefnar upp sömu upplýs-
ingar um aðra aðila sem tengjast
þessu máli?
„Nei. Þessi rannsókn er i gangi.
Það var allstór hópur aðila skoðaður
vegna sams konar upplýsinga."
- Hversu stór hópur?
„Ég held að ég sé ekki kominn til
með að greina frá því á þessu stigi
málsins."
- Hversu margir hafa ekki gefið
þetta upp? Er þetta einsdæmi með
Albert?
„Það er ekki einsdæmi með Al-
bert. Það er nokkur hópur aðila af
þessum sem er í frekari skoðun
vegna þess sama að það kom ekki
fram í bókhaldi."
- Stór hluti þeirra?
„Nei.“
- Helmingur?
„Nei.“
- Fjórðungur?
„Ég held að ég sé ekkert að greina
nánar frá þvi. En það er rétt að það
komi fram að þetta er hluti rann-
sóknar og hluti af þessum aðilum er
í frekari skoðun vegna þess að þetta
sama kom upp á,“ sagði skattrann-
sóknarstjóri.
Hann upplýsti enn fremur að rann-
sóknin næði yfir þriggja ára tímabil.
Um væri að ræða bæði hærri og
lægri fjárhaeðir en í dæmi Alberts.
-KMU