Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Page 3
MÁNUDAGUR 23. MARS 1987.
3
I>V
Fréttir
ALSTIGAR
ALLAR GERÐIR
SÉRSMÍÐUM
BRUNASTIGA O.FL.
Kaplahrauni 7, S 651960
Tveir Vestur-Þjóðverjar nær dauða en Ivfi á hálendinu:
Ég sá ekki hend-
umar á mér
Jón G. Hánkssan, DV, Akureyii
„Ég félck snjóblindu af verstu gerð,
það var allt grátt og ég sá ekki hend-
umar á mér. En það var ekki allt því
snjóblindunni fylgdi mikilll sviði í
augum, líkt og í þeim logaði eldur,“
sagði Vestur-Þjóðveijinn Gerhard
Dambeck í viðtali við DV.
Dambeck, 44 ára dómari, og félagi
hans og samlandi, Otto Keck, 49 ára
listmálari, komust til Akureyrar á
föstudagskvöldið eftir að hafa verið
nær dauða en lífi á hálendinu í tíu
daga. Einstaklingar voru famir að
leita að þeim úr lofti á fimmtudag og
hjálparsveitir í Eyjafirði voru komnar
í viðbragðsstöðu.
Margreyndir fjallagarpar
Þeir félagar em margreyndir fjalla-
garpar og jöklamenn. Þeir h'afa oft-
sinnis verið í Ölpunum, verið á
Grænlandi, bæði að sumri og vetri,
eins hafa þeir gengið inni í óbyggðum
Lappa í Norður-Svíþjóð.
En það var ekki fyrr en þeir komu
til íslands og mættu norðlensku stór-
hríðinni og fi-ostinu á hálendinu að
þeir urðr fyrst alvarlega hræddir um
að deyja.
„Þegar við gengum á móti stormin-
um allir hrímaðir í andliti vorum við
hræddir um að deyja. Þá hugsun gát-
um við ekki forðast," sagði Gerhart
Dambeck.
Þeir lögðu í hann tíunda mars frá
Eyjafirði. Ætlunin var að ganga yfir
hálendið. Á miðvikudag hrepptu þeir
storm sem fór vaxandi. Þeir slógu upp
tjaldi og í því hírðust þeir fram að
föstudagsmorgni þrettánda mars.
Rosalega kalt
„Veður var stillt um morguninn og
við héldum ferðinni áfram. Okkur
miðaði ágætlega, en seinnipartinn ýfði
storminn aftur og nú var hann miklu
verri en áður. Það var rosalega kalt
og á okkur kom tveggja sentímetra
hrím í andliti. Það var þá sem ég fékk
snjóblinduna," sagði Gerhart.
Otto sló einn upp tjaldinu. Þeir voru
rétt hjá sæluhúsinu við Lágafell en
fundu það ekki vegna hríðar og
storms. Þeir höfðust við í tjaldinu fram
á sunnudag.
„Otto lagði reyndar einn af stað til
að leita að skálanum á laugardags-
, morguninn. Ég hélt kyrru fyrir, enda
enn þjakaður af snjóblindunni, ég var
þó farinn að greina opið á tjaldinu."
Á sunnudeginum fimmtánda mars
lögðu þeir aftur að stað. Þeir villtust
og síðar kom á daginn að kompás
Ottós var bilaður, og sýndi mikla
skekkju. Þá voru þeir komnir að
Sprengisandi.
Þar fundu þeir skýli sem þeir höfð-
ust við í í þrjá sólarhringa, jafnframt
ákváðu þeir að hætta förinni og snúa
við til Akureyrar.
Bundum reipi á milli okkar
„Við bundum reipi á milli okkar og
örkuðum á móti storminum sem stóð
beint í fangið úr norðri. Svo mikið var
kófið að ég sá aðeins á nálina á komp-
ásnum. Um kvöldið reistum við tjaldið
í gríðarlegu frosti. Á fimmtudaginn
miðaði okkur ágætlega áfram og kom-
um til byggða seinnipartinn á föstu-
daginn."
Gerhart og Otto sögðust vilja þakka
öllum sem voru famir að huga að þeim
og þá ekki sízt fólkinu á bænum
Saurbæ, sem er niður af Sölvárdal, en
þangað komu-þeir á föstudaginn. „Sá
kaffisopi sem við fengum þar var góð-
ur.“
Fyrsta verk Ottós þegar hann kom
til Akureyrar á föstudagskvöldið var
að hringja til Þýskalands í konuna
sína sem reyndar á afinæli í dag, 23.
mars.
Vestur-Þjóðverjarnir Gerhart Dambeck og Otto Keck á Akureyri eftir tiu
daga hrakninga á hálendinu. DV-mynd JGH
10 ARA ÁBYRGÐ
Baðherbergi með„stælu
BOKÉ baðinnréttingarnar bera góðri
hönnun og vandvirkni fagurt vitni.
Það þarf enga fagmenn til að setja
upp BOKÉ innréttingarnar, það nálgast
að vera barnaleikur. Svo auðvelt er það.
Boké- '
BOKE eru einingainnréttingar, alls
um 28 hlutir sem raða má saman á þann
hátt sem rými og þinn persónulegi
smekkur leyfa. Þú getur valið um fjórar
gerðir speglaskápa, svo eitthvað sé
nefnt.
Já BOKE er baðherbergi með „stæl“
þú veist hvað liggur að baki orðinu um
leið og þú sérð BOKÉ innréttingarnar
okkar.
KÓPAVOGI
SÍMI 41000
HAFNARFIRÐI
SÍMI 54411
I