Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 23. MARS 1987. 51 Sviðsljós Marilyn Monroe: Síðustu stundir ..... V; SkjáHandi af kulda í ullarpeysu og teppi - þá þegar langt leidd af ofneyslu vímuefna. sem fyrirsæta Kyntákn allra tíma - Marilyn Monroe - hræddist öldrun og ein- manaleika meira en allt annað. Hún svaf í bijóstahaldara af hræðslu við að bijóstin gætu orðið slappari af því að vera ekki haldið í fostum skorðum en gekk um alla íbúðina nakin að öðru leyti. Þegar hún þurfti að gang- ast undir skurðaðgerð fékk læknirinn handskrifað bréf frá Marilyn þar sem hún bað hann í guðanna bænum að hafa skurðinn eins lítinn og mögulegt væri - hún þyldi ekki að horfa á ör annarra, hvað þá sín eigin. Þessi skilaboð hafði hún svo límt vandlega á magann á sér til þess að þau færu örugglega ekki framhjá skurðlækn- inum. Ástæðan fyrir óstundvísi leikkon- unnar var tvíþætt. í fyrsta lagi var hún sjaldan án vímuefna þannig að tímaskynið var verulega brenglað og einnig kom til sú staðreynd að útlitið var ævinlega mikill áhyggjuvaldur. Hún átti til að standa í síendurtekn- um hárþvotti fyrir stefhumót og endurgera andhtsforðunina aftur og aftur. Þrátt fyrir að þama færi konan sem lét hafa það eftir sér að líkaminn væri sinn besti vinur og þekkt var um heim ahan fyrir fegurð var óör- yggið svo mikið að hún var aldrei viss um að úthtið væri í sómasamlegu lagi. Öryggisleysið frá bamæskunni og stöðug leit að ástúð frá hendi annarra hafði sett svo djúp mörk á Marilyn að henni entist ekki ævi til þess að finna hinn eftirsóknarverða innri frið. Marilyn hafði alla ævi bamslega þörf fyrir að ganga um nakin eða fáklædd - næstum hvar sem var - og virtfst alltaf vera að biðja nær- stadda um að sýna sér biíðu og athygli. Frá Ólafi Arnarsyni, fréttaritara DV í New York: íslendingar í New York Þorrablót íslendingafélagsins í New York var haldið laugardaginn 7. mars síðastliðinn á Penta hótelinu í hjarta borgarinnar. Fjöldi manns var saman kominn og þorramatur framreiddur af Gísla Thoroddsen. Hljómsveitin Ópera sá um tónlist en svo illa vildi til að meðan hljómsveit- in lék undir borðum brann yfir straumbreytir þannig að nokkurt hlé varð á tónlistarflutningi. Það kom ekki svo mikið að sök því að tríó, sem leika átti að borðhaldi loknu, hljóp í skarðið og lék íslensk þjóðlög. Tríóið skipuðu Áshildur Haralds- dóttir sem lék á flautu, Bryndís Pálsdóttir á fiðlu og Svava Bern- harðsdóttir á víólu. Þær stunda allar tónlistarnám í New York. Að því loknu flutti Hans G. And- ersen, sendiherra íslands hjá Sam- einuðu þjóðunum, stutt ávarp. Því næst afhenti Birna Hreiðarsdóttir, formaður íslendingafélagsins, Sig- urði Helgasyni, stjórnarformanni Flugleiða, heiðursskjal frá íslend- ingafélaginu sem nýlega samþykkti að gera Sigurð að heiðursfélaga. Sig- urður var hér á árum áður búsettur í New York og var lengi formaður íslendingafélagsins. Að öðrum ólöst- uðum er óhætt að fullyrða að hann sé faðir Islendingafélagsins í New York. Næst var málverkauppboð en frú Ásthildur Andersen sendiherrafrú var svo vinsamleg að gefa félaginu málverk sem boðið var upp. Upp- boðinu stjómaði Kristján Ragnars- son læknir og fórst honum það glæsilega úr hendi. Það vom hjónin Elín og Einar Hansson sem hrepptu hnossið. Einnig var happdrætti með vegleg- um vinningum, m.a. tveimur Islands- ferðum. Þegar hér var komið sögu var mannskapurinn kominn í partístuð og var mikið dansað og sungið, fram til klukkan eitt eftir miðnætti en þá var ballinu lokið. Formaður íslendlngafélagsins i New York, Birna Hreiðarsdóttir, talaði til veislugesta á hátíðinni og afhenti Sigurði Helgasyni heiðursskjal fyrlr hönd íslendingafélagsins. Kalli prins steig trylltan dans Diönulaus á diskóteki i Klosters nýverið. Það er ekki gott afspurnar þegar um harðgifta prinsa er að raeða og rúllandi Travoltastælar Kalla á gólfinu frystu flesta gestanna á staðnum. Þessi annars virðulegi og gegnumbreski sjentilmaður var að reyna að heilla tvítuga blondínu upp úr skónum og notaði sér til uppörvunar nokkr- ar kampavínsflöskur - sem voru teygaðar af stút. Bretar velta nú áhyggjufullir fyrir sér hvort erfðaprinsinn renni óðfluga inn í fertugskrísuna með tilheyrandi gráum fiðringi og er í ráði að plokka flugfjaðrirnar af prinsin- um eigi síðar en í gær með öllum mögulegum ráðum. Di mun vera í þunglyndiskasti heima í höllu drottningar. Michael Jackson er í splunkunýju hræðslukasti. Nú óttast hann allra mest að fá skalla og til þess að koma í veg fyrir að sá hryllingur breytist í gallharðan raunveruleika hefur kappinn ráðið til sín nuddara sem hamast á hársverði söngv- arans minnst einu sinni á dag. Þar er ekki hægt um vik því mikill lubbi situr ennþá fastur á því toppstykkinu og ekkert smá- verk að elta uppi hverja og eina einustu hársrót til frekari með- höndlunar. Mary Tyler Moore gefst ekki svo auðveldlega upp í lífsbaráttunni. Hún á að baki tvö hjónabönd sem fóru í va- skinn, einkabarnið Richard framdi sjálfsmorð og síðar missti hún líka fóstur þegar bæta átti upp sonarmissinn með nýjum barneignum. Mary festist í víta- hring ofdrykkju og lyfjaáts en fór inn á meðferðarstofnun Betty Ford þar sem hægt var að hjálpa henni verulega. Núna er hún hamingjusamlega gift og er eiginmaðurinn hinn fimmtán árum yngri hjartalæknir - Ro- bert Levine. Alvarleg sykursýki hefur einnig herjað á þessa bráðhressu leikkonu en hún lætur ekki undan á þeim víg- stöðvum heldur, fær insúlínsp- rautur tvisvar á dag og stendur í ströngu við uppsetningu sviðs- verka alla daga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.