Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Side 4
MÁNUDAGUR 23. MARS 1987.
Nú eru þeir einn ganginn enn að
hamast ó Albert. Þeim virðist seint
ætla að linna þessum ofsóknum á
iðnaðarráðherra. Þær ganga jafnvel
í erfðir frá einum formanninum til
annars í Sjálfstæðisflokknum. Þau
eru orðin of mörg ádeilumálin og
árásimar á hendur Albert til að
hægt sé að hafa á þeim tölu en eitt
er vist að alltaf hefur Albert staðið
með pálmann í höndunum þegar upp
er staðið. Og svo mun enn verða nú
ef Dagfari þekkir knattspymuhetj-
una rétt.
Af einhverjum óútskýrðum hvöt-
um hefur Þorsteinn Pálsson séð
ástæðu til að grennslast sérstaklega
fyrir um skattframtöl fyrirrennara
síns í fjármólaráðherrastólnum.
Ekki er vitað til þess að ráðherrar
hafi lagt það í vana sinn að hnýsast
í prívatframtöl annarra manna og
það er heldur ekki vitað að Albert
þurfi að gera Þorsteini grein fyrir
framtali sínu þótt sá síðamefndi sé
orðinn formaður í flokknum. Þessi
hnýsni vekur miklu fremur upp
spumingu hvort Þorsteinn sé starfi
sínu vaxinn fremur en Albert.
Stundar hann njósnastarfsemi um
flokksbræður sína?
Menn em að gera veður út af því
þótt einhver tékki frá Hafskip hafi
Hvaða læti eru þetta?
ekki verið talinn fram. Hvemig á
Albert að muna eftir öllum tékkum
sem honum berast? Sonur hans hefur
rekið heildverslunina og sér um öll
fjármál fyrirtækisins. Albert hefur
ekkert með þau að gera. Ef honum
hefur borist tékki, sem enginn hefúr
lagt sönnur á, segir Albert, þá er það
ekki honum að kenna ef hann hefúr
gleymt að telja tékkann fram. Það
er Inga Bimi að kenna og svo bók-
haldinu hjá Hafskip sem ekki lagði
fram fylgiskjöl. Hvemig eiga menn
að telja fram tékka ef engin fylgi-
skjöl liggja fyrir? Það er heldur ekki
Albert að kenna að hann skuli hafa
sama nafnnúmer og heildverslunin
þannig að þessu tvennu sé ruglað
saman. Hann á jú fyrirtækið en hef-
ur ekkert með það að gera. Hann
ber ábyrgð á fyrirtækinu en ber enga
óbyrgð á fjármálum þess eða fram-
tölum. Það sér Ingi Bjöm um. Ef
menn mgla saman einu og sama
nafnúmerinu þá er það þeirra vanda-
mál en ekki Alberts. Hann hefúr
ekki beðið um það að bæði hann og
heildverslunin beri sama númerið.
Og svo er annað. Ef menn telja
þetta svindl, hvað þá með öll hin
fyrirtækin sem em í rannsókn fyrir
meint misferli í skattframtölum?
Enginn minnist á þau. Af hveiju
má Albert ekki gera mistök í skatt-
framtali úr því aðrir komast upp með
það? Er það kannski saknæmt að
eiga business ef maður er í pólitík?
Þorsteinn vill að Albert segi af
sér. En hvemig á Albert að segja
af sér þegar fólkið hefur kosið hann?
Það er fólkið sem hefúr ákveðið að
Albert sé efstur á listanum, ekki
Þorsteinn, ekki Albert. Á hann að
svíkja þetta fólk, bara af því einu
að formaðurinn hefúr fundið tékka
sem gleymdist að telja fram? Er
kannski enginn í framboði í næstu
alþingiskosningum sem hefur gleymt
að telja fram? Nei, Albert ætlar að
sitja sem fastast hvað sem hver segir
og jafiivel þótt formaðurinn líti þetta
alvarlegum augum. Hann ætlar að
sýna fram á það í næstu kosningum
að kjósendur kunna að meta verð-
leika sína og gerir ekkert með það
þótt fjármálaráðherra gleymi að
telja fram tékka sem hann á hyort
sem er ekkert í. Það er fyrirtækið
sem ótti tékkann og fyrirtækið er
honum óviðkomandi. Hann á það
að vísu, hann ber ábyrgð á því, en
allir vita, og Morgunblaðið líka, að
hann hefúr ekki nólægt rekstri þess
komið í mörg, mörg ár og veit ekk-
ert um fjármál þess. Albert hefúr
tekið á móti fjölmörgum tékkum,
bæði frá Hafskip og borginni og öðr-
um viðskiptavinum og hvemig á
hann að muna hvað hann gerir við
alla þessa tékka sem hann á ekkert í?
Það er samdóma álit almennings
að Albert sé saklaus. Ekki kannski
alveg en næstum því og það er frá-
leitt að elta menn fyrir smávægileg
mistök sem verða hjá öllum þeim
sem hafa mörgum hnöppum að
hneppa. Eiginlega'er það Þorsteinn
en ekki Albert sem er syndaselurinn
í þessu máli. Honum væri nær að
segja af sér fyrir að læðast svona
aftan að Albert fjarstöddum og reyna
að bola honum i burtu. Dagfari
Stjómmál
í dag mælir Dagfaxi
Fjölmennur fundur „hulduhersins4 í gær:
Albert hótar sérframboði
- verði hann settur út af framboðslistanum
Liðsmenn „hulduhersins" við upphaf fundarins í gær.
Albert Guðmundsson lýsti því yfir á
fjölmennum fundi með „hulduhem-
um“ svokallaða að ftnna yrði lausn á
þeim málum sem upp væm komin inn-
an Sjálfstæðisflokksins þannig að
enginn yrði niðurlægður, hvorki hann
né Þorsteinn Pálsson, formaður
flokksins. Albert sagði að ef sér yrði
vikið af framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins, eða úr flokknum, þyrfti
hann á fulltingi stuðningsmanna
sinna að halda. Sagðist hann myndu
berjast innan flokksins, eða ó sérlista,
ef til brottvikningar hans kæmi. Þess-
ar upplýsingar fékk DV hjá einum
fundarmanna.
f ávarpi sínu til fundarins rakti Al-
bert gang mála undanfama daga og
að sögn heimildarmanns DV sagði
hann að það þyrfti sterk bein til að
þola þær árósir sem hann hefði orðið
fyrir undanfarið. Einhvem tímann
kæmi að því að menn brotnuðu undan
álaginu en Albert sagði að að því
væri ekki komið hjá sér. Hvatti hann
fúndarmenn til að styðja við bakið á
sér í baráttu þeirri sem fyrir höndum
væri innan flokksins og sagði hann
gott til þess að vita hve marga stuðn-
ingsmenn hann ætti.
Margir tóku til máls á fundinum og
lýstu yfir eindregnum stuðningi við
Albert Guðmundsson og jafnframt
kom fram mikil gremja í garð Þor-
steins Pálssonar yfir blaðamanna-
fundinum um mál Alberts sem hann
hélt á fimmtudag. Létu menn stór orð
falla og lýstu framkomu Þorsteins sem
„klámhöggi", „vélabrögðum" og höfðu
sumir við orð að réttast væri að fella
Þorstein úr formannssæti. Það kom
meðal annars fram að Þorsteinn mætti
ekki misskilja þá „rússnesku" kosn-
ingu sem hann fékk á landsfundinum,
þar hefði komið fram samstaða sjólf-
stæðismanna en ekki stuðningur við
Þorstein persónulega.
Það komu einnig fram hjá fundar-
mönnum, samkvæmt heimildum DV,
getsakir í þá átt að blaðamannafundur
Þorsteins hefði verið tímasettur fyrir-
fram og engin tilviljun að fundurinn
var haldinn þegar Albert var erlendis.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
talaði Ingi Bjöm Albertsson á fundin-
um og rakti meðferð afsláttargreiðslna
þeirra frá Hafskipi hf. sem heildversl-
un Alberts Guðmundssonar fékk.
Sagði Ingi Bjöm að um þijár greiðslur
hefði verið að ræða, 52ja þúsunda
króna greiðslu, 117 þúsunda og 130
Albert Guðmundsson og Brynhildur Jóhannsdóttir, eiginkona hans, á fundin-
um. DV-myndir Brynjar Gauti
þúsunda. Skattur hefði verið greiddur
af þeim tveimur fyrmefndu og hefði
117 þúsunda króna greiðslan verið
kærð inn eftir að upp komst að hún
hefði ekki verið gefin upp. 130 þúsund
króna greiðslan hefði hins vegar ekki
komið upp fyrr en við athugun skatt-
rannsóknarstjóra.
Fjölmenni var á fúndi „hulduhers-
ins“ og samkvæmt upplýsingum DV
er talið að þar hafi verið á milli 800
og 900 manns.
-ój
Albert kemur á fundinn.
4
dagar
i reyklausa
aaginn.