Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 23. MARS 1987.
Spumingin
Ertu ánægður með laun-
in þín?
Guðsteinn Ingimarsson sölumaður:
Já, ég myndi segja það. Ég er sjálfur
tveggja barna faðir og lágmarkslaun
til að framfleyta t.d. fjögurra manna
fjölskyldu eru 75 þús. kr. á mánuði.
Eg vona bara að kjarabaráttan hjá
þessum stéttum, sem nú standa í
ströngu, gangi upp, það er löngu orð-
ið tímabært að þetta umtalaða
góðæri fari að skila sér til sem
flestra.
Jenný Þorláksdóttir öryrki: Ég get
ekki unnið þar sem ég er öryrki en
örorkubæturnar mættu vera mun
hærri. Auðvitað ættu örorkubætur
að vera jafnháar lágmarkslaunum
hverju sinni sem ég teldi að ættu að
vera svona eitthvað á bilinu 36-38
þús. kr. á mánuði.
Guðbergur Álfur Nielsen sjómaður:
Auðvitað er ég ánægður enda er ég
sparsamur. Ef fólk veitir sér ekki of
mikið og sleppir þessum utanlands-
reisum þá á fólk að geta lifað alveg
sæmilega af launum sínum. Fólk get-
ur ekki alltaf heimtað hærri laun,
það hljóta að vera einhver takmörk
fyrir þessari eilífu kjarabaráttu. Fólk
á bara að draga saman seglin og
eyða minna, peningar eru ekki allt,
ekki satt?
Hrefna Kristjánsdóttir skrifstofu-
stúlka: Nei, engan veginn enda
finnst mér að lágmarkslaunin eigi
allavega að vera um 40 þús. kr. á
mánuði. Þetta góðæri hlýtur að fara
að skila sér til allra landsmanna svo
það er bara að bíða og sjá.
Óskar Sigurðsson framkvæmda-
stjóri: Já, ég held ég megi segja að
ég sé alveg ágætlega sáttur við þau.
Annars finnst mér að laun eigi að
fara voða mikið eftir því hversu vel
fólk er menntað eða hvaða þekkingu
það hefur.
Lesendur
Styðjum
kennara
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir skrifar:
Ég skrifa út af verkfalli kennara.
Ég hafði nefnilega vonast eftir kröft-
ugum viðbrögðum hjá foreldrum þar
sem þeir styddu kennara í hags-
munabaráttu sinni. Við megum ekki
gleyma því að skóla- og uppeldismál
eru hagsmunamál allra landsmanna.
Erum við tilbúin að horfa á eftir
reyndum, hæfum og áhugasömum
kennurum ganga út úr skólunum og
leita sér að öðrum störfum vegna
vanmats og óaðlaðandi umræðu um
störf þeirra. Það var sorglegt að
horfa upp á þáttinn á Stöð 2 um
launamál kennara. Að fjármálamað-
ur sé settur í valdastól og lyklastöðu'
til að meta réttmæti krafna kennara.
Það sem honum tókst var að sýna
vankunnáttu á störfum kennara fyr-
ir alþjóð.
Ég skora á allt gott fólk í landinu
að standa fast með kennurun og
vinna að því að þeir fái laun og
mannvirðingu sem kennarastarfið á
skilið.
Röðin er komin að ráðamönnum
að sýna stefiiumótun. Almenningur
er orðinn þreyttur á stjómmála-
mönnum sem takast ekki á við
grundvallaratriði islensks þjóðlífs.
Það hlýtur að koma í ljós í komandi
kosningum ef eitthvað verður ekki
að gert.
Erum við tilbúin að horfa á eftir reyndum, hæfum og áhugasömum kennur-
um ganga út úr skólunum og leita sér að öðrum störfum vegna vanmats
og óaðlaðandi umræðu um störf þeirra.
„Mér finnst að sjónvarpið megi sýna meira af hinni æðislegu söngkonu,
Cyndi Lauper.“
RÚV:
Tónleika með
Cyndi Lauper!
Gunna hringdi:
Halló! Væri nú ekki hægt svona til
tilbreytingar að sýna meira með Cyndi
Lauper í sjónvarpinu? Það væri alveg
tilvalið að þátturinn Smellir gæfi þess-
ari pottþéttu söngkonu meiri gaum.
Ég veit að hún hélt nýlega tónleika
í Ástralíu og það væri ekki amalegt
ef sjónvarpið sýndi frá þeim. Ég er
alveg handviss um að ef sýnt yrði frá
þessum tónleikum frá Ástralíu myndi
þorri landsmanna sitja límdur við
kassann og hafa mikið gaman af.
H.R. hringdi: tíu sem komust í úrslit
Ég ætla að svara B.OJB. klúbbnum Pereónulega finnst mér Björgvin
sem örugglega aamanstendur af orðinn allt of þreyttur til að taka
vinahópi Björgvins Halldóresonar þátt í þessari keppni. Ég er viss um
og ætlar sér að koma honum til að þegar við verðum farin að venj-
Brussel í Eurovision söngvakeppn- ast lögunum sem hinir söngvararnir
ina. Það er alveg út í hött að reka flytja eiga meira að segja B.O.B.
svona áróður fyrir einum söngvara klúbbmeðlimir eftir að skipta um
áður en fólk hefur fengið tækifæri skoðun.
til að kynna sér almennilega lögin
Bremsuljós í
afturglugganum
J.J. skrifan þú rétt sleppur við að aka aftan á.
Ætli það sé orðið skilyrði til skoð- Þar sem ég er strætisvagnabilstjóri
unar bíla í Hafharfirði að hafa þá aé ég margt Ijótt í umferðinni,
bremsuljós í afturglugganum. Það td. ef ég gef stefhumerki á vagninum
mætti a.m.k. halda miðað við allan út í uraferðina og einhver kemur
þann fjölda G-bfla með slíkum út- flautandi og steytendi hnefann, þá
búnaði. í mínum augum er það illa er það undantekningalítið G-númer
hannaður bill sem er með það léleg- eða Y, sjaldan eða nánast aldrei R-
um bremsuljósum að þurfi slikan númer.
útbúnað. Og gott væri ef þessir Kæru Hafnfirðingar, reynið nú að
Hafnfirðingar gætu notað annan taka ykkur á. Hendið bremsuljósun-
ljósabúnað eins vel (og mikið) og um, setjið nýjar perur í stefhúljósin
bremsuljósin eða hver kannast ekki og kaupið bamabilstóla fyrir and-
við að hafa ekið á eftir Hafnfirðingi virði bremsuljósanna og látið eigir,-
og er komið var að næstu hliðargötu konur ykkar hætta að halda á
þá snarstansar Hafitfirðingurinn og ungbömum i framsætunum.
beygir skyndilega inn í götuna og
Hver klessti á?
Anna hringdi:
Við vorum að keyra Reykjanes-
brautina frá Keflavflc til Reykja-
víkur er við urðura fyrir því mikla
óláni að það var klesst á okkur en
keyrt síðan í burtu áður en við náð-
um að átta okkur á því hvað væri
að gerast.
Þetta var á mánudaginn var á
milli kl. 21 og 21.30. Ég tek það fram
að það var mjög slæmt veður og
mikil þoka þannig að það var ókleift
að greina bílinn, er auðsjáanlega
hefur verið að taka frara úr, þangað
til hann klessti á okkur. í stað þess
að stoppa og athuga hvort ekki væri
allt í lagi með okkur hefur viðkom-
andi ökumaður forðað sér hið
bráðasta í burtu og frekar farið að
hugsa um aurana sína en okkur.
Hvet ég þennan ökumann er var
svona ósvífinn að láta samvisku sína
ráða og gefa sig fram til lögreglu til
að gefa skýrsiu eða hringja í mig í
síma 74138.
Það er mjög skemmtilegt að horfa á ameríska fótboltann, alveg sérlega
spennandi og flottur íþróttaleikur.
Sjónvarpið komi með
ameríska fótboltann
Geir hringdi:
Ég vil styðja þá góðu hugmynd er
koma frm í DV 16. mars sem Sverrir
Ólafsson skrifar um að sýna fiá
ameríska fótboltanum á Stöð 2 eða
í ríkisjónvarpinu.
Þessi íþrótt er mjög skemmtileg
að horfa á, alveg sérlega spennandi
og flott að sjá. Ég veit um marga sem
eru alveg óðir í það að sjá leiki frá
NFL. (National Football Leak). Það
er harka í þessum leik og mikið um
útsmognar tæklingar og flott mörk
eða (toughdowns) eins og það heitir.
Ég vona að Stöð 2 eða ríkissjón-
varpið lesi greinamar um þetta mál
og sjái sér fært að sýna leiki fiá
þessari íþrótt.
Ég bíð spenntur eftir framvindu
mála.
Dökkhærðir verri
en Ijóshærðir?
Bryndís skrifar:
Mig langar að leggja orð í belg vegna
ess sem ég álít lélega blaðamennsku.
DV fyrir nokkru var viðtal við meint-
an bamanauðgara og er það nú ekki
ætlunin að dæma um það hvort hann
sé sekur eða saklaus.
En ástæðan fyrir því að ég skrifa
þessar línur em skrif blaðamannsins
um úthtslýsingu á þessum manni. Þar
segir: „Það var ekki að sjá að þama
færi dæmdur bamanauðgari, vissu-
lega er Kristinn dökkur yfirlitum, en
hann virtist í fullkomnu jafhvægi."
Er það virkilega enn þann dag í dag
svo að fólk haldi að það fari eftir út-
litá hveijir fremji glæpi og hveijir
ekki? Að þeir sem em dökkhærðir og
hvassir á brún séu frekar álitnir
glæpamenn helduf en hinfr sem em
ljóshærðir og bjartir yfirlitum? Maður
skyldi ætla það að þeir sem væm lærð-
ir blaðamenn létu alls ekki hafa eftir
sér svona þvælu á prenti og ég vona
að úr því verði bætt.