Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Blaðsíða 32
48
MÁNUDAGUR 23. MARS 1987.
%
Andlát
Vilborg Þ. Guðmundsdóttir lést
11. mars sl. Hún fæddist að Fjalli á
Skeiðum þann 15. nóvember árið
1900. Dóttir hjónanna Guðríðar Erl-
ingsdóttur og Guðmundar Ófeigs-
sonar. Hún giftist Friðfmni
Vilhjálmssyni, en hann lést árið 1975.
Þau hiónin eignuðust eina dóttur.
Utfór Vilborgar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Útför Ragnars Veturliðasonar fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudag-
inn 24. mars kl. 15.
Málfríður Huld Gísladóttir, Há-
teigsvegi 20, andaðist í Landspítal-
anum fimmtudaginn 19. marg.
Jón Oddsson, Brautarholti 22, lést
í Borgarspítalanum 14. mars. Jarðar-
förin hefur farið fram í kyrrþey.
Ingibjörg Jónsdóttir, Hlíðar-
hvammi 7, Kópavogi, lést í Landa-
kotsspítala 8. þ.m. Bálför hefur farið
fram að ósk hinnar látnu.
Anna Ólafsdóttir frá Gunnhildar-
gerði, Hátúni 10, lést í Borgarspítal-
anum 10. mars.
Hildur Þuríður Bóasdóttir andað-
ist að morgni 20. mars.
Hrefna Kristjánsdóttir frá Ein-
holti, Hornafirði, verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu í dag 23. mars
kl. 13.30.
Ólafur Petersen, Snorrabraut 58,
lést 6. mars. Jarðarförin hefur farið
fram.
Tilkyimingaj
Bann við veiðum um páska
og rækjuveiðum árið 1987
Ráðuneytið hefur ákveðið eftirfar-
andi reglur um stöðvun veiða um
páska:
1. Bátum minni en 10 brl. eru óheim-
ilar allar fiskveiðar aðrar en
grásleppuveiðar frá kl. 20.00 11.
apríl til kl. 10.00 árdegis 21. apríl
1987.
2. Allar þorsknetaveiðar eru bannað-
ar frá kl. 20.00 14. apríl til kl. 10.00
árdegis 21. apríl 1987.
Jafnframt hefur ráðuneytið ákveð-
ið stöðvun rækjuveiða utan viðmið-
unarlínu (úthafsrækjuveiðar)
eftirgreind tímabil, að báðum dögum
meðtöldum:
1. 12.-21. apríl 1987.
2. 26. júlí-4. ágúst 1987.
3. 22.-31. desember 1987.
Frá stjórn Foreldrafélags
Laugarnesskóla
Stjórn Foreldrafélags Laugamesskóla lýs-
ir yfir stuðningi við kjarabaráttu kennara,
og vonar að nú semjist þannig að kennara-
starfið verði aftur eins eftirsóknarvert og
áður var. Við hvetjum samningsaðila til
að leysa þessa kjaradeilu sem fyrst svo
böm okkar fái notið kennslu vel launaðra
og ánægðra kennara.
Bann við togveiðum austur
af Hvalbak
Undanfarið hafa skyndilokanir verið
alltíðar á Austfjarðamiðum. Hlutur smá-
þorsks (undir 55 cm) í afla togara á þessu
svæði hefur verið mjög mikill. Á þessum
slóðum og víðar em nú að vaxa upp ár-
gangar þorsks frá ámnum 1983 og 1984.
Stærðardreifing þessa fisks er á þann veg
að allur árgangur 1984 er enn undir við-
miðunarmörkum (55 cm) og hluti árgangs
1983.
Hafrannsóknastofnunin hefur því lagt
til að veiðar á þessum slóðum verði bann-
aðar og hefur ráðuneytið gefið út reglu-
gerð þar sem allar togveiðar em bannaðar
á svæði sem afmarkast af línum sem dregn-
ar eru á milli eftirgreindra punkta:
1. 64°4659.7 N - 12°4339.9 V
2. 64°4407.2 N - 11°5354.7 V
3. 64°3156.7 N 12°0549.3 V
4. 64°2104.7 N - 12°4919.4 V
5. 64°3517.7 N - 12°5549.0 V
Bann þetta gildir frá kl. 22.00 12. mars
til og með 15. maí 1987.
Fiskurinn á þessu svæði virðist vera á
talsverðri hreyfingu. Því er stefnt að því
að kanna svæðið að nýju á tímabilinu.
..
Eg dansa við þig ...
Leikandi fjömg danssýning fer nú að sjá
dagsins ljós í Þjóðleikhúsinu. Sýning þessi
samanstendur af 22 mismunandi dansat-
riðum við tónlist sem byggir á 46 vinsælum
lægurlögum í nýrri útsendingu. Höfundur
tónlistar er Samuelina Tahija. Egill Ólafs-
son leikur á píanó, syngur og talar og
ásamt honum syngur Jóhanna Linnet en
annar hljóðfæraleikur er fluttur af segul-
bandi frá upprunalegu sýningunni í
Þýskalandi. Það er íslenski dansflokkur-
inn ásamt gestadönsumm sem ber hitann
og þungann af sýningunni. Gestadansar-
arnir eru tveir aðaldansara Kölnaróper-
unnar, Nýsjálendingurinn Athol Farmer
og Frakkinn Philip Talard. Einnir 6 ís-
lenskir karldansarar bætast einnig í
hópinn. Listdansarinn Jochen Ulrich er
bæði höfundur dansa, leikmyndar og bún-
inga en Ásmundur Karlsson lýsir sýning-
una. Frumsýningin verður miðvikudaginn
25. mars og önnur sýning verður sunnu-
daginn 29. mars.
Námsbraut fyrir starfandi
verkstjóra í frystihúsum
Nýlega íauk fyrsta hluta nýrrar náms-
brautar við Samvinnuskólann á Bifröst,
en hún er sérstaklega ætluð starfandi
verkstjómm í frystihúsum. Næsti hluti
námsbrautarinnar fer fram í maímánuði
nk. og verður einnig vikulangur. Auk
þessarar námsbrautar hófst nú í vetur
einnig sérstök námsbraut fyrir starfandi
verslunarstjóra við Samvinnuskólann og
skiptist hún í þrjá vikulanga hluta. Næsta
haust mun væntanlega ný námsbraut fyrir
starfandi tölvustjóra bætast við. Auk þess-
ara námsbrauta veitir Samvinnuskólinn
um 1.000 samvinnustarfsmönnum nám-
skeiðafræðslu á hverju ári, og í rekstrar-
menntadeild skólans á Bifröst eru um 70
nemendur ár hvert sem stefna að sam-
vinnuskólaprófi hliðstæðu stúdentsprófi.
Á myndinni er fyrri hluti námsbrautar
fyrir verkstjóra í fiskvinnslu.
Um helgim
Fanný Jónmundsdóttir verslunareignadi
Fleiri
Ég held mikið upp á gamla
Reykjavíkurradíóið og fannst gaman
að þættinum þar sem fráfarandi
þingmenn, Sigríður Dúna og Helgi
Seljan, voru spurð að því hvemig
þeim fyndist það að vera hætt þing-
mennsku.
Fréttimar einkenndust af Alberts-
málinu og fannst mér Bylgjan standa
sig vel í fréttaflutningi af því en aft-
ur á móti var meira um æsifrétta-
flutning á rás 2.
Sjónvarpið fannst mér mjög lélegt
um helgina, því miður á ég ekki af-
ruglara en ég verð sennilega að
spandera í hann, sérstaklega þar sem
Stöð 2 fer að sýna eina bestu mynd
sem Marilyn Monroe hefúr leikið í.
gamanmyndir
Þáttaröðin Mike Hammer finnst
mér vera alveg fyrir neðan allar
hellur, samansafh af ofbeldi, gúmmí-
skvísum og lélegum húmor sem ég
hef ekkert gaman af.
Á sunnudagsmorgnum hlusta ég
alltaf á þáttinn hans Ólafs Ragnars-
sonar, Þjóðtrú og þjóðlíf, sem er
mjög áhugaverður og skemmtilegur
þáttur og fjallaði Ólafúr síðast um
þjóðtrú og hjátrú Islendinga fyrr og
nú. Síðan hlustaði ég á messuna eins
og vanalega.
Ég er lítið gefin fyrir ofbeldis-
myndir og finnst að sjónvarpið ætti
að sýna meira af góðum gaman-
myndum, fólk hefur gott af því að
hlæja.
70 ára afmæli á í dag, 23. mars, Ólaf-
ur H. Guðbjartsson, Breiðagerði
15. Hann og kona hans, Sólrún Jóns-
dóttir, taka á móti gestum að
Síðumúla 35, Drangey, kl. 16-19 i
dag.
Hópferð á tónleika með Lionel
Richie
Eins og menn rekur eflaust minni til stofn-
aði Bylgjan konsertklúbb í febrúar sl. í
þeim tilgangi að efna til hópferða á tón-
leika frægra listamanna erlendis. Fyrsta
ferðin var farin í lok febrúar á tónleika
með Paul Simon. Nú er ákveðið að fara á
tónleika með bandaríska söngvaranum
Lionel Richie. Tónleikamir verða í Brem-
en þann 8. apríl, en flogið verður með
Amarflugi til Hamborgar 5. apríl og til
baka 9. apríl. Gist verður í Hamborg. Fyr-
ir þá sem e.t.v. hafa styttri tíma til umráða,
’ er mögulegt að komast út til Amsterdam
7. april og heim frá Hamborg þann 9. All-
ar upplýsingar varðandi ferðina eru
veittar í síma 11664, og er rétt að benda
fólki á að nauðsynlegt er að ákveða þátt-
töku fljótt. Síðast komust færri með en
vildu.
70 ára verður í dag, 23. mars, örnólf-
ur M. örnólfsson, rafvirkjameistari
frá Suðureyri, Gautlandi 1. Hann og
kona hans, Stefanía Guðmundsdóttir
frá ísafirði, taka á móti gestum í dag
kl. 17-22 í Skipholti 70.
f t , fi . r. .JSt / t t t M ?
Frestun á lokun svæðis á Sel-
vogsbanka
Um allmörg ár hafa allar veiðar verið
bannaðar frá 20. mars á svæði á Selvogs-
banka sem sjómenn kalla „frímerkið".
Bann þetta hefur verið sett í því skyni að
vernda hrygningu þorsks. í athugun, sem
Hafrannsóknastofnunin hefur gengist fyr-
ir á þessu svæði nú í vikunni hefur komið
í ljós að óverulegur þorskur er á svæðinu,
en hins vegar alfmikið af karfa. Ráðuneyt-
ið hefur því ákveðið að fresta lokun
svæðisins og tekur hún gildi frá og með
28. mars 1987.
Meistaramót Sjálfsbjargar í
skák
hefst þriðjudagskvöldið 31. mars nk. kl.
19.30. Tefldar verða tvær umferðir á kvöldi
og er umhugsunartími hálftími á skák.
Telft verður í rauða salnum, 1. hæð Sjálfs-
bjargarhússins, Hátúni 12. Skráning til
þátttöku fer fram á skrifstofu félagsins,
sími 17868, og hjá Taflnefndinni og þarf
henni að vera lokið fyrir 25. mars nk.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður
Bjömsson í síma 29133.
Bækur
Regnbogabækur
Bókaforiagið Svart á hvxtu hefur nú hafið
útgáfu nýs bókaflokks er nefnist Regn-
bogabækur. Þessi bókaflokkur verður um
margt ólíkxir hefðbundinni bókaútgáfu hér
á landi. Hér um að ræða þýddar erlendar
bækur sem njóta mikilla vinsælda erlendis
á hverjum tíma og ætlunin að gefa þær
út samtímis hér á Islandi. Fyrsta bókin í
þessum bókaflokki er nú komin út, en hún
nefnist Brjóstsviði og er eftir bandaríska
rithöfundinn Noru Ephron. Þessum nýju
bókum verður dreift í allar smásöluvérsl-
anir, stórmarkaði, ferðamiðstöðvar o.s.frv.
og er ætlunin að gafa út 1 bók í mánuði.
BÓKAVARÐAN
— CAMLAR BÆKUI OG NYJAK —
VATNSSTlG 4 - REYKJAVlK - SlMI 29720
fSLAND
Stærsta bókaskrá Bókvörð-
unnar
Bókvarðan, sem rekur bókaverslun með
gamlar og nýjar bækur að Vatnsstíg 4 í
Reykjavík hefur sent frá sér stærstu bók-
söluskrá fyrirtækisins til þessa. Alls er
skráin yfir 50 bls. og þar eru kynntir yfir
1500 titlar íslenskra og erlendra bóka í
mörgun flokkum: Héraðasaga og ætt-
fræði, íslensk og norræn fræði, orðabækur,
Saga heims og menningar, náttúrufræði,
kvæði, sögur, leikrit, trúarbrögð og guð-
speki, erlendar skáldsögur og „reyfarar"
frá gömlum og nýjum tímum. Verð gam-
alla bóka er afar breytilegt, en í þessari
skrá er verðið frá 75 krónum og upp í
nokkra tugi þúsunda fyrir heil tímarit inn-
bundin. Bókaskrá Bókvörðunnar geta
allir fengið senda, sem þess óska utan
Stór-Reykjavíkursvæðisins, en aðrir geta
vitjað skrárinnar að Vatnsstíg 4.
Tímaritið um fjölmiðla
Fyrsta hefti Timarits Máls og menningar
1987 er komið út. Aðalefni þess eru fjórar
greinar um fjölmiðla, einkum útvarp og
sjónvarp, nú þegar ríkisreknir ljósvaka-
miðlar standa á tímamótum, ekki aðeins
hér á landi heldur í grannlöndum okkar
líka. Tímaritið er 128 bls., prentað í Odda.
Kápu hannaði Teikn. Ritstjóri er Silja
Aðalsteinsdóttir.
A&næli
K4ÁLS OC MENNI.NGAR 1 • 8
rjouwöuw
ivatjjöm 0.wtii4»on
EifMif Ou*«onaM<s)
JfWOX**
A*t*
u«g*f*4 o<*bn<*