Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1987, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987.
21
Iþróttir
•Sævar Leifsson.
„Þetta skýrist á næstu dögum en ég tel það
nokkuð öruggt að ég leiki með Víði nú í sum-
ar í 1. deild,“ sagði Sævar Leilsson í samtali
við DV í gærkvöldi. Sævar hefur allan sinn
feril leikið með KR en ætlar nú að breyta til
enda fékk hann ekki mörg tækifæri með
KR-liðinu síðasta sumar. „Það leggst bara
ágætlega í mig að leika með Víði annars
væri ég varla að skipta. Það er verið að út-
vega mér íbúð í Garðinum núna og ég geri
ráð íyrir að fara fljótlega suður eftir,“ sagði
Sævar sem hefur leikið 26 meistarflokksleiki
með KR en hann leikur í stöðu bakvarðar.
Sævar er 22 ára.
Víðismenn hafa orðið fyrir nokkurri blóð-
töku frá því í fyrra en bæði Mark Duffield
og Helgi Bentsson eru famir frá félaginu.
Haukur Hafsteinsson mun þjálfa liðið í sum-
ar. Þess má geta að um síðustu helgi léku
Víðismenn gegn Selfossi í stóru bikarkeppn-
inni og sigruðu 5-3. -SMJ
Stuttgart í úrslit
Stuttgart Kicker, sem leikur í 2. deildinni
v-þýsku, tryggði sér í gær rétt til þess að leika
til úrslita í v-þýsku bikarkeppninm. Stuttgart
Kicker sigraði Fortuna Dússeldorf næsta auð-
veldlega, 3-0.
Það þurfti að stöðva leikinn í fimm mínútur
eftir að Dirk Kurtenbach hafði skorað þriðja
mark Stuttgart því að stuðningsmenn
Dússeldorf þustu þá inn á völlinn. Frank Els-
er og Kazimierz Kmiecik skoruðu hin mörk
Stuttgart sem mætir Hamburger SV í úrslita-
leik í V-Berlín 20. júní.
• Þá sigraði Bayer Uerdingen Homburg,
2-1, í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi.
-SMJ
Bordeaux skoraði
ekki í bikamum
Leikið var í annarri umferð frönsku bikar-
keppninnar í gærkvöldi. Leikið er heima og
heiman og voru þetta fyrri viðureignir þessar-
ar umferðar.
Það bar helst til tíðinda að bikarmeistaram-
ir, Bordeaux, gerðu markalaust jafntefli gegn
annarrar deildar liðinu Gueugnon.
Þá náði Marseille aðeins að gera eitt mark
á heimavelli sínum gegn Cannes. Alan Gir-
esse gerði markið.
Liðið vann þó leikinn því Cannes náði ekki
að svara fyrir sig.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
Monaco - Nice....................2-0
Rennes - Laval..................1-1
St. Etienne - Martigues..........1-0
Marseille - Cannes...............1-0
Lille - Bastia..................2-1
ParisSG - Strasbourg........... 0-0
Toulouse - Caen..................1-0
Gueugnon - Bordeaux..............0-0
Rouen - Lens.....................0-0
UckVannes - Brest...............1-1
BaumeLesDames - Auxerre.........0-5
Mulhouse - Reims.................0-2
Ales - Thonon....................1-0
Angers - Lyon....................2-3
Loison - Perigueux............. 3-1
LaRoche - Tours..................0-0
Jón Baldvin verður með
hörkufund í veitingahúsinu
Uxinn í Glæsibæ
Álfheimum 74, kl. 21.00
í kvöld.
Allir velkomnir
Valdatafl í Valhöll