Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1987, Blaðsíða 36
36
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Liz Taylor
harðneitar að giftast George
Hamilton. Hún segist ekki
sjá nokkra einustu ástæðu
til þess að gera gaurinn að
sínum áttunda eiginmanni
og er harðánægð með nú-
verandi ástand. George er
líka ákaflega upptekinn af
syni sínum og Alönu Stew-
art - Ashley Hamilton - sem
býr hjá föður sínum um
þessar mundir. Því halda tur-
tildúfurnar tvær kunnings-
skapnum á tilhugalífsplan-
inu og verða gersamlega
heyrnarlaus þegar brúð-
kaupsklukkum er klingt í
næsta nágrenni.
Isabella
Rossellini
úr Dynastyþáttunum á von
á barni í október. Því er nú
spurningin hvort gera þurfi
Sammy Jo í þáttaröðinni
vanfæra líka svo dæmið
gangi upp á vinnustað. í
raunveruleikanum er faðir til
staðar nú þegar en eitthvað
mun snúið aðfinna hentug-
an slíkan í sjónvarpssáp-
unni. Málið er í athugun og
á meðan velta aðdáendur
því fyrir sér hvort barnung-
inn muni bjarga storma-
sömu hjónabandi hinnar
verðandi móður við rokkar-
ann Tommy Lee. Það eru
engir silkihanskar sem bíða
þessa nýja borgara í Banda-
ríkjunum þegar hann loksins
kemur I heiminn.
er mótleikari Ryans O'Neal
í nýrri kvikmynd sem unnið
er að í Ameríku. Á meðan
situr Farrah Fawcett Majors
heima og gætir bús og barna
enda átti Ryan slíka þjón-
ustu inni hjá sinni heittelsk-
uðu. Hann var sjálfur einn
heima með afkvæmi og af-
þurrkunarklúta meðan
Farrah sinnti kvikmyndaleik
í Frans í fyrrasumar svo kom-
inn var tími til að skipta um
hlutverk. Lífsgæðunum er
hnífjafnt skipt á þeim bæn-
um.
Heather
Locklear
Ungir
°g
gamlir
jass-
geggj-
arar
Sunnudagskvöldin ættu að geta
verið sannkallaðar sælustundir fyrir
jassgeggjara á öllum aldri því Duus-
hús hefur tekið upp þá nýbreytni að
tileinka þau jassinum á næstunni.
Ljósmyndari DV - BG - var á staðn-
um fyrsta kvöldið og tók þá með-
fylgjandi myndir af gestum og
gangandi.
Jassumfjöllun án Jóns Múla væri sem skyr án rjóma. Hann lét sig ekki vanta á svæðið.
Sumir eru í þungum þönkum
Griffin að svara til saka vegna dauða besta vinar síns - Gian Carlo Coppola.
Fadir og sonur
sameinaðir
„Velkomnir í fjölskyldumartröð-
ina,“ sagði Ryan O’Neal við gesti
sína fyrir skömmu og átti þá við
vandamálið sem sonur hans Griffin
stendur nú frammi fyrir. Vímuefna-
neysla hefur komið honum á kaldan
klaka og endaði gangan með því að
félagi hans úr hildarleiknum - Gian
Carlo Coppola - lét lífið.
Þeir Gian og Griffin keyrðu smábát
á ofsahraða og báðir undir áhrifum
áfengis og annarra lyfja. Þessu lauk
svo með því að Griffin ók bátnum á
stálvír með þeim afleiðingum að
Gian lét samstundis lífið. Vitni báru
að Griffin hefði verið undir stýri en
hann þrætti fyrir það við réttar-
höldin. Að lokum féll hann þó saman
og játaði allt en sagðist ekki hefði
getað hugsað sér að faðir hans kæm-
ist að því að hann ætti sök á dauða
Gians. Enda hefði aldrei verið ætlun-
in að vinna þessum besta vini sínum
mein og sagðist Griffin vildi gefa allt
fyrir að hafa frekar verið sá þeirra
sem fékk að deyja.
Ryan tók sönsum
Faðir hans, Ryan ONeal, hefur átt
í miklum útistöðum við hann síðustu
árin og segja kunnugir þetta eiga
rætur að rekja til þess að Griffin
fannst Ryan ekki sjá neitt annað en
Tatum alla þeirra barnæsku. Innan
fjölskyldunnar er það þó viðtekin
skoðun að Griffin hafi mesta leik-
hæfileikana og mikils var af honum
vænst þegar hann var í æsku. Griffin
dáðist mikið að föður sínum og
reyndi allt til þess að líkjast Ryan
en mistókst herfilega í hvert einasta
skipti sem hann reyndi.
Eftir að vímuefnin komu til sög-
unnar versnaði sambandið til muna.
Griffin fór í meðferð fyrir nokkrum
árum en lauk ekki dvölinni á stofn-
uninni. Nú segist hann ætla að fara
inn aftur um leið og hann er laus
úr fangelsi. Talið er að hann verði
dæmdur fyrir manndráp af gáleysi.
Að lokinni þessari meðferð segist
Griffin ætla að leggja alla leikara-
draumana á hilluna en langar til
þess að verða alkóhólráðgjafi í fram-
tíðinni. Þar segist hann hafa af
reynslu að miðla til annarra sem
vonandi hjálpi þeim til að lenda ekki
í sömu súpunni og hann sjálfur.
... en Ijóst er að áhugamenn fyrirfinnast á öllum aldri.
Ellefta bodorðid
Eldgömlu boðorðin tiu koma ekki í veg fyrir að bifreiðastjórar leggi bil-
um sinum ólöglega hjá Dómkirkjunni í Reykjavík og stunda þá iðju jafnt
pólitíkusar sem pönkarar. Sama vandamál þekkist við dómkirkjuna í
Torrance í Kaliforníu og þvi ákvað hinn þjónandi prestur þar að bæta
úr málum. Hann lét gera skilti með ellefta boðorðinu og setti það niður
i nágrenni guðshússins. „Þú skalt ekki leggja" er setning dagsins og
þrátt fyrir að ekki sé merkið beinlínis tákn að handan hefur það þjónað
sinum tilgangi syðra - og ef til vill er þarna nothæf lausn fyrir mið-
bæjarlögregluna i Reykjavik!