Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987.
Fréttir
Viðræður Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks:
Búvörusamningurinn
stærsta hindmnin
Samningurinn sem ríkisstjómin
gerði við Stéttarsamband bænda um
verðábyrgð á landbúnaðarvörum
næstu fjögur árin verður ein stærsta
hindrun í hugsanlegum stjómarmynd-
unarviðræðum Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks. Í könnunarviðræðum
þessara flokka ívrir helgi kom fram
mikill skoðanamunur í þessu máli.
Jón Helgason landbúnaðarráðherra
undirritaði fyrir hönd ríkisstjómar-
innar þennan umdeilda samning
daginn eftir að Alþingi var slitið í
mars. Alþýðuflokksmenn leggja nú
fram þá kröfu að samningurinn verði
rækilega endurskoðaður. Sjálfstæðis-
menn virðast vera tregir til slíks.
Hörðustu andstæðingar samnings-
ins hafa kallað hann þjófnað aldarinn-
ar. Samkvæmt honum ábyrgist
ríkissjóður að bændur fái fullt verð
fyrir afurðir sínar fram til ársins 1992.
Ríkið ábyrgist að fyrir mjólkina og
kindakjötið fái bændur sjö milljarða á
hveiju ári á núvirði eða sem nemur
28 milljörðum á samningstímanum.
Alþýðuflokksmenn meta að þessi
samningur geti kostað tvo til þrjá
milljarða á fjárlögum á ári. Telja þeir
að samningurinn bindi hendur næstu
ríkisstjómar svo að án riftunar hans
verði erfitt að koma fram einhverjum
umbótum að ráði á öðrum sviðum.
-KMU
Hið íslenska kennarafélag:
Wincie
formaður
Wincie Jóhannsdóttir hefur ver-
ið kjörin formaður HÍK og tekur
hún við störfum á þingi félagsins
sem haldið verður í haust.
Fráfarandi formaður HÍK,
Kristján Thorlacius, gaf ekki kost
á sér til endurkjörs en hann hefur
verið formaður undanfarin fimm
ár. Auk Wincie Jóhannsdóttur
vom tveir frambjóðendur til for-
manns HÍK, þeir Gunnlaugur
Ástgeirsson og Gísli Ólafur Péturs-
son. í atkvæðagreiðslu hlaut
Wincie 213 atkvæði, Gunnlaugur
97 og Gísli 87 atkvæði.
Samkvæmt heimildum DV mun
hinn nýkjömi formaður vera fylgj-
andi sameiningu KÍ og HÍK en það
mál hefur verið nokkurt deiluefhi
innan félagsins undanfarið.
-ój
Foldaskóli i Grafarvogi er að springa utan af nemendum og þykir Ijóst að ekkert rúm verður fyrir 8. bekk þar
næsta vetur. Af þessu filefni mætti Davíð Oddsson borgarstjóri á borgarafund hjá foreldrum í hverfinu og spunn-
ust miklar umræður um ástandið. Borgarstjóri lofaði að öðrum áfanga skólabyggingarinnar yrði lokið fyrir haustið
1988 en þar til yrði nemendum 8. bekkjar ekið í aðra skóla og lausri skólastofu komið fyrir á skólalóðinni.
DV-mynd BG
Þeim er sprauta amfeta-
míni í æð fer fjölgandi
Samfara aukningu amfetamíns á
fikniefiiamarkaðinum hérlendis und-
^jifarin ár hefur þeim sem sprauta
amfetamíni í æð farið fjölgandi ag
sama skapi. Ef athugaðar eru tölur frá
SÁÁ kemur í ljós að árið 1985 höfðu
50 þeirra sem komu í meðferð á Vogi
sprautað sig í æð með þessu fíkniefni
en árið eftir, 1986, voru þeir 116 talsins.
Þetta kom fram í máli Þórarins Tyrf-
ingssonar, yfirlæknis á Vogi, í erindi
sem hann hélt á námsstefnu þeirri er
nú stendur yfir á vegum Blaðamanna-
félagsins og „fíknivamanefndar“.
Þórarinn ijallaði í erindi sínu um
ijölda fíkniefhaneytenda á meðferðar-
stofnun SÁÁ.
Þórarinn sagði að þótt segja mætti
að vímuefnaneysla, önnur en áfengis-
neysla, hefði farið vaxandi í hópi
þeirra einstaklinga sem leitað hefðu
meðferðar frá því SÁA tók til starfa
og fram'á þetta ár væri áfengið enn
það vímuefhi sem hrekti flesta í með-
ferð.
Af einstökum öðrum vímuefhum er
misnotkun róandi lyQa líklega ívið
meira vandamál á meðferðarstofhun-
um SÁÁ en kannabisefni og er
misnotkun þessi áberandi meiri hjá
konum en körlum og mest hjá konum
er koma í endurmeðferð, eða á bilinu
40-50% af þeim.
Á námsstefnunni í gær flutti, auk
Þórarins, Jóhannes Bergsveinsson er-
indi um fjölda fikniefnaneytenda á
meðferðarstofhunum ríkisins. Þar er
sömu sögu að segja um skiptingu milli
vimuefna hjá þeim er leita meðferðar,
áfengi er stærsta vandamálið og ró-
andi lyf meira vandamál en kannabis.
Eftir erindi þeirra fjölluðu þau Hulda
Guðmundsdóttir og Birgir Ásgeirsson
um meðferð ungra ávana- og fíkniefna-
neytenda, G. Ragna Ragnarsdóttir um
fangelsismál og þau Edda Ólafsdóttir
og Ólafur Oddsson um félagslegar for-
sendur með tilliti til áhættuhópa.
-FRI
Þorsteinn iðinn við kolann:
Rætt við Borgara-
flokk í dag
Þorsteinn Pálsson er nú að ljúka
könnunarviðræðum vegna hugsan-
legrar stjómarmyndunar.
I gær ræddu hann og Friðrik Soph-
usson lengi dags við fulltrúa Kvenna-
listans. Samkvæmt heimildum DV
urðu þær viðræður frekar til að auka
líkumar á því að Sjálfstæðisflokkur-
inn gangi til formlegra stjómarmynd-
unarviðræðna við Kvennalista og
Alþýðuflokk.
Kl. 11 í morgun hófst síðan fundur
Þorsteins og Friðriks með fulltrúum
Borgaraflokksins, þeim Albert Guð-
mundssyni og Júlíusi Sólnes. Stóð
hann enn þegar blaðið fór í prentun
en ekki er búist við neinum niðurstöð-
um af þeim fundi.
Þegar þessum könnunarviðræðum
verður lokið er næsta skref sjálfstæðis-
manna að taka ákvörðun um það
hvort hafnar skuli formlegar stjómar-
myndunarviðræður eða umboðinu til
stjómarmyndunar skilað til forseta.
Þetta verður rætt á þingflokksfundi
Sjálfstæðisflokksins seinni partinn í
dag. Búist er við að ákvörðun muni
liggja fyrir í síðasta lagi í fyrramálið.
Nokkuð óljóst er að hvaða niður-
stöðu sjálfstæðismenn munu komast
en þó bendir ýmislegt til þess að óskað
verði formlegra viðræðna um stjómar-
myndun við Alþýðuflokk og Kvenna-
lista.
-ES
Jón G. Haulœsan, DV, Aknreyri;
Fyrirtækið Marska á Skagaströnd
er að undirbúa útflutning í stórum
stíl á pönnukökum, fylltum rækjum
og ýsu, til Danmerkur, að sögn Heim-
is Fjeldsted framkvæmdastjóra. Fyrir-
tækið hefur verið með prufhsendingar
í u.þ.b. tíu mánuði og segja þeir
Marskamenn að enginn vandi sé að
selja til Danmerkur.
„Við erum fyrst og fremst að stíla
inn á stóra eldhúsamarkaðinn, hótel
og mötuneyti," sagði Heimir við DV í
morgun. „Það er nægur markaður í
Danmörku."
Innanlands hefur Marska selt svo-
kallaðar sjávarréttabökur og skelja-
gmtín. „Það vom Bretar hjá okkur í
fyrradag og þeir vilja ólmir fá prufur
frá okkur út. Þeim líst mjög vel á
þetta,“ sagði Heimir.
Afkastageta fyrir útflutning er enn
sem komið er ekki fyrir hendi hjá
Marska og eru þeir því að láta smíða
tæki til að geta hafið útflutning af
fullum krafti.
Þorsteinn Pálsson, Kristin Einarsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Danfríöur K.
Skarphéðinsdóttir og Friðrik Sophusson gáfu sér tima til að lita aðeins upp
úr þjóðmálaskjölunum í könnunarviðræðunum í gær. Fundurinn var langur
og strangur, stóð með hléum frá 11 til 20. DV-mynd Brynjar Gauti
Kosningaauglýsingin sem aidrei birtist:
Borgaraflokkurinn hætti
við að stefna Stöð 2
- þar sem málið hefði orðið erfítt pólitískt
Fyrr í vikunni fékk DV það stað-
fest hjá Guðmundi Ágústssyni og
Helenu Albertsdóttur að Borgara-
flokkurinn ætlaði að stefna Stöð 2
vegna óbirtrar auglýsingar.
Saga málsins er sú að Borgara-
flokkurinn keypti með tíu daga
fyrirvara birtingu á auglýsingu á
Stöð 2, Auglýsinguna átti að sýna á
eftir fréttaþætti kvöldið fyrir kjör-
dag. Auglýsingunni átti Borgara-
flokkurinn að skila til Stöðvar 2 á
miðvikudegi i sömu viku. Auglýsing-
in kom ekki til Stöðvar 2 fyrr en á
föstudegi. Aðilum ber ekki saman
klukkan hvað á föstudeginum aug-
lýsingin barst í hendur manna á Stöð
2.
Guðmundur Ágústsson segir að
Borgaraflokkurinn hafi skilað aug-
lýsingunni klukkan hálfníu um
morguninn en Sighvatur Blöndahl,
markaðsstjóri Stöðvar 2, segir að
auglýsingin hafi ekki borist til
Stöðvar 2 fyrr en um miðjan dag og
þá hafi verið of seint að klippa aug-
lýsinguna inn í auglýsingatíma
kvöldsins.
Vinna við gerð auglýsingarinnar
kostaði 160 þúsund krónur. Þá upp-
hæð ætlaði Borgaraflokkurinn að
krefja Stöð 2 um greiðslu á þar sem
þeir telja að Stöð 2 hafi svikið sig
um birtingu á auglýsingunni.
Guðmundur Ágústsson segir að
aldrei hafi borist viðvörun frá Stöð
2 um að þeir væru að brenna inni á
tíma. Sighvatur Blöndahl segir hins
vegar að það sjái hver sem vilji að
sárt hafi verið fyrir Stöð 2 að geta
ekki birt umrædda auglýsingu þar
sem hún hefði verið sjö mínútna löng
og birting hennar hefði kostað 378
þúsund krónur. Guðmundur Ágústs-
son segir hins vegar að auglýsingin
hafi verið tíu mínútna löng.
Þegar Guðmundur Ágústsson var
inntur eftir því hvers vegna Borgara-
flokkurinn hefði hætt við að stefha
Stöð 2 sagði Guðmundur að það
væri af þeirri ástæðu að þetta hefði
orðið erfitt mál pólitískt en alls ekki
faglega erfitt.
-sme
Marska á Skagaströnd:
Flytur út pönnukökur