Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987. 11 Uflönd Dulaifullt hvarf sönnunargagna BaMur Róbenssan, DV, Genúa; Níu árum eftir ránið og morðið á Aldo Moro, formanni kristilegra demókrata, em réttarhöldin enn í gangi. En mörg sönnunargagnanna, sem fimdust eftir handtöku mannræningj- anna, hafa nú horfið. Meðal þess sem horfið hefúr em myrylbandaupptökur sem sýndu viðtal Rauðu herdeildanna við Moro áður en liðsmenn þeirra drápu hann. Einn- ig hafa horfið fleiri áríðandi myndbönd sem fundust á heimili eins af foringjum Rauðu herdeildanna. Kassettur með símtölum liðsmanna Rauðu herdeildanna til fjölskyldu Moros hafa sömuleiðis horfið og síðast en ekki síst myndir sem teknar vom af mannráninu sjálfu en á þeim sáust greinilega andlit þeirra er frömdu rá- nið. Sósíalistar hafa krafist nýrra réttar- halda en kristilegir demókratar em andvígir nýjum réttarhöldum. Velta menn því fyrir sér hvort stjómmála- menn viti eitthvað meira um málið en almenningur. Rusl til Napólí frá Bandaríkjunum BaMur Róbertssan, DV, Genúa; Tvær og hálf milljón tonna af msli eiga að koma til Napólí frá Bandaríkj- unum næstu fimm árin. Ruslið á að grafa í jörðu til framleiðslu á jarðgasi. Vandamál hafa komið upp vegna þessa innflutnings. Eitt er að enginn hefur gefið leyfi til að flytja inn ruslið til borgarinnar. Annað er hvað gera eigi við jarðgasið því ekki er hægt að vinna það eða nota í Napólí. Vilja skerða völd Werners Gurmlaugur A Jónsson, DV, Lundú í kjölfar gagnrýni sem Lars Wemer, formaður vinstri flokks kommúnist- anna í Svíþjóð, hefur mátt þola frá flokksmönnum að undanfömu verða völd hans nú skert. Kosninganefnd flokksins leggur til að á landsþinginu í sumar verði valdir þrír varaformenn sem aðstoði Wemer við flokksstjómina. Þau þrjú sem Samkvæmt skoðanakönnunum fer fylgi vinstri flokks kommúnistanna í Sviþjóð minnkandi. Formaður flokksins, Lars Werner, hefur sætt harðri gagnrýni. kosninganefiidin leggur til að verði varaformenn éru einmitt þau sem harðast hafa gagnrýnt Wemer að und- anfömu. Þeirra á meðal er Jöm Svensson, þingmaður fiá Skáni, sem komst í heimsfréttimar í vetur þegar hann hélt því fram við umræður í sænska þinginu að það væru Bandaríkjamenn sem stæðu á bak við morðið á Olof Palme. Hinir varaformennimir tveir eru konur og er þar með komið á móts við síaukna gagnrýni þess efnis að konur hafi átt erfitt uppdráttar innan flokksins. Ýmsir höfðu spáð því að Wemer, sem hefur verið formaður síðan 1975, yrði sparkað á landsþinginu í sumar vegna minnkandi fylgis flokks hans samkvæmt skoðanakönnunum. En þarna virðist fundin málamiðlun sem hefur í för með sér að Wemer fær að sitja áfram en með skert völd. Wemer bar sig vel á fúndi með fréttamönnum í gær. Sagðist hann sjálfur álita að of mikið mæddi á for- mönnum flokkanna. Kvaðst hann fylgjandi aukinni valddreifingu en benti jafnframt á að hér væri enn sem komið er aðeins um tillögu að ræða. Robert Owen, fyrrum tengiliður Oliver i gær. Norfh ofursta við kontraskæruliða, ber vitni fyrir rannsóknarnefnd þingsins Simamynd Reuter Bankanúmerin glötuðust í innbroti Robert Owen, fyTrum helsti tengilið- ur Oliver North ofursta við kontra- skæruliða, skýrði rannsóknamefnd bandaríska þingsins frá því í gær að hann hefði lýst áhyggjum sínum við North vfir því hvert fjármunir þeir sem sendir voru kontraskændiðimi færu í raun. „Peningamfr fara eitthvað," sagði Owen. „Eg er ekki að segja að þeim sé stungið í vasa einhvers en það em spumingar sem þarf að svara." Owen skýrði þá frá því að í febrúar á síðasta ári hefði verið brotist inn í hótelherbergi í Washington þar sem stolið hefði verið skýrelu frá leyniþjón- ustunni úr farangri John Singlaub hershöfðingja sem er einn af leiðtogum andkommúnistahreyfinga og hefúr starfað mikið að fjársöfnun og öðrum stuðningi við kontraskæmliða. ■ I skýrslu þessari var að finna neikvæðar upplýsingar um tvo leiðtoga kontra- skæmliða. þá bræður Adolfo og Mario Calero. svo og númer á bankareikn- ingum í Sviss og löndum á Karíbahafi. Owen varaði North við því í mars 1986 að sumir leiðtoga kontrahreyf- ingarinnar ættu reikninga í srissnesk- iun bönkum og alþjóðlegum Llovd- banka. Meðal annars sagði Owen þá að Calero bræðumir. sem vom yfir- menn birgðakaupa hjá kontraskæm- liðum. ættu bankareikninga í Sviss. Þeir hafa neitað. Owen sagðist í gær gera sér grein fr-rir að hann sæti uppi með sökina í íranmálinu þó svo að hann hefði að- eins framfylgt skipunum yfirmanns sins. Segir Thatcher standa í vegi fyrir framförum Neil Kinnock, leiðtogi Verkamannaflokksins. Símamynd Reuter Neil Kinnock, leiðtogi breska Verkamannaflokksins. sakaði í gær Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta og leiðtoga ílialdsmanna, uni að standa í vegi fyrir framfönmi og vinna gegn þeim. A fréttamannafundi, þar sem Kinnock lagði fram stefnuskrá flokks síns í komandi kosningum. sagði hann að stefriumið Thatcher hefðu verið dregin upp úr gröf þeirri sem framfarir grófu þau í fyrir fimmtíu árum. Búist er við harðri kosningabaráttu á Bretlandi á komandi vikum en geng- ið verður að kjörborðum þann 11. júní. Kosningabaráttan hófst opinberlega fyrr í þessari viku og með fullyrðingum sínum í gær kastaði Kinnock fyrstu hnútunum. Búast má við að fleiri fylgi. Kinnock hefur ófögur orð um það ástand sem skapast hefúr á Bretlandi í átta ára stjómartíð Thatcher. Segir hann landið aftur horfið til þess fá- tæktarástands sem lýst er í ritverkum Charles Dickens. Margaret Thatcher, leiðtogi íhaldsmanna. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.