Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987. Andlát Siglinn Grímsdóttir frá Nykhól, Bjarmalandi 19, andaðist í Borgar- spítalanum 13. maí. Steinþóra Grímsdóttir frá Nykhól, Bjarmalandi 19, andaðist á Hrafnistu i Reykjavík 17. maí. Sólveig Jónsdóttir, Grettisgötu 6, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt mánudagsins 18. maí. Daníel Kristinsson, Einarsnesi 54, lést í Landakotsspítala 13. maí. Jarð- arförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. maí kl. 15. Emelía Sigurðardóttir, Grettis- götu 27, Reykjavík, verður jarðsung- in frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 21. maí kl. 15. Sigríður Bryndís Jónsdóttir, áður til heimilis á Leifsgötu 23, verður jarðsungin frá Áskirkju þann 21. maí kl. 10.30. Utför Þórunnar Þorvaldsdóttur, fyrrum saumakonu á Siglufirði, verður gerð frá kapellunni í Fossvogi miðvikudaginn 20. maí kl. 13.30. Útför Þuríðar Tryggvadóttur Möller, Austurbergi 38, er lést þann 11. maí sl. í Borgarspítalanum, verð- ur gerð frá Dómkirkjunni í Reykja- vík fimmtudaginn 21. maí kl. 13. Baldur Pétursson frá Hjalteyri, Hátúni 10 a, Reykjavík, lést 7. mai sl. Bálför hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna. Útför Guðlaugs Péturssonar, Bogahlíð 15, sem lést 11. mai sl., fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag- inn 21. maí kl. 13.30. Sigurður Jónsson frá Efra-Lóni á Langanesi, síðar búsettur á Lokastíg 4, Reykjavík, lést í Landakotsspítala aðfaranótt 15. maí sl. Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju 26. maí nk. kl. 13.30. Tilkyimingar TM-miðstöðin Nýtt námskeið í TM-tækninni (innhverfri íhugun) hefst með kynningarfvrirlestri á morgun, fimmtudag. kl. 20.30 í Garða- stræti 17. Fjallað verður um áhrif TM tækninnar á streitu. heilhrigði, öldrun. mannleg samskipti og fleira. Síminn er 16662. • T % íslandmót grunnskólasveita ískák1987 Stjórn skáksambands íslands hefur ákveð- ið að íslandsmót grunnskólasggita í skák 1987 fari fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Grensásvegi 44-46, Reykja- vík, dagana 28.-30. maí nk. Umferðar- taflan verður þannig: Fimmtudagur 28. maí kl. 19: 1., 2. og 3. umferð. Föstudagur 29. maí kl. 19: 4., 5. og 6. umferð. Laugar- dagur 30. maí kl. 14: 7.. 8. og 9. umferð. Þátttökutilkynningar skal senda til Skák- sambands Islands í pósthólf 1674, 121 Reykjavík, fyrir26. maí nk. Nánari upplýs- ingar er hægt að fá á skrifstofu Skáksam- bgnds Islands alla virka daga kl. 13-16 og hjá umsjónarmanni keppninnar, Ólafi H. Ólafssyni, s. 11971. Ráðstefna um hjúkrunarmál- efni Væntanleg er hingað til lands dr. Hilde- gard Peplau, prófessor í hjúkrunarfræð- um, og heldur hún fyrirlestra á ráðstefnu um hjúkrunarmálefni sem haldin verður á Hótel Loftleiðum dagana 1. -3. júní nk. á vegum hjúkrunarsviðs geðdeildar Land- spítalans. Dr. Hildegard Peplau er kanadísk. Hún var prófessor við Rutgers University í Kaliforníu en er nú komin á eftirlaun. Hún er þekktur fyrirlesari og eftir hana hafa birst fjölmargar greinar um hjúkrun. Þekktust er hún fyrir bók sína „Interper- sonal Relations in Nursing" (Samskipta- tengsl í hjúkrun), sem kom út árið 1952, en þar setur hún fram samskiptakenning- una og íjallar um notkun hennar í tengsl- um hjúkrunarfræðings - skjólstæðings. Þá er hún og þekkt fyrir skilgreiningu sína á kvíðakenningunni. Dr. Peplau heldur þrjá fyrirlestra á ráð- stefnunni: „Að tala við sjúklinga" (sjúklingaviðtöl). „Hugtök í hjúkrun" (notkun kenninga í hjúkrun). „Stefnur í hjúkrun og hjúkrunarmálefni" (skilgreining á hjúkrun). I fylgd með dr. Peplau er Nancy Reppert öndunarþjálfi og heldur hún fyrirlestur um öndunarerfiðleika hjá sjúklingum. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku. Vegabréfsáritun til Frakklands Utanríkisráðuneytið vill að marggefnu til- efni minna á að Islendingar þurfa að hafa vegabréfsáritun til Frakklands við komu þangað. Áritun fæst yfirleitt ekki á landa- mærastöðvum eða á frönskum flugvöllum. Sækja ber um áritun til franska sendiráðs- ins, Túngötu 22, 101 Reykjavík, sími (91) 17621. Opnunartími 9-12 og 13.30-17.30, mánudaga til föstudaga. Afgreiðslutími fyrir áritanir er tveir til þrír virkir dagar. Framhaldsdeild við Fósturskóla íslands Skólaárið 1987-88 verður starfrækt eins árs framhaldsdeild við Fósturskóla ís- lands. Námið er ætlað fóstrum með starfs- reynslu og einkum þeim er hyggja á forstöðu- eða ráðgjafar- og umsjónarstörf á dagvistunarheimilum fyrir börn. Þetta er í annað skipti sem Fósturskóli íslands býður upp á árlangt framhaldsnám en fyrsta framhaldsdeildin var starfrækt skólaárið 1988-84 og luku þá 24 fóstrur námi. í fyrirhugaðri framhaldsdeild verður fóstrum einnig boðið upp á nokkra sér- hæfingu á eftirfarandi sviðum: börn á sjúkrahúsum, skapandi starf. frávik og afbrigði og skóladagheimili. Námið hefst í september og lýkur í lok maí. í gærkvöldi i>v Pétur Gunnarsson rithöfundur: „Ofmjólkaðar fréttir“ Ég horfði á fréttimar með öðru auganu. Mér þykja þessar stjómar- myndunarviðræður vera orðnar ofmjólkaðar og íjölmiðlamir keppast eiginlega um að segja okkur að ekk- ert sé að gerast. Venjulega hlusta ég á morgun-, hádegis- og kvöldfrétt- ir. Mér finnast þættimir hjá Þorsteini Vilhjálmssyni á Bylgjunni vera ný- stárlegir. Hann tekur viðtöl við venjulegt fólk úti í þjóðfélaginu um það sem var „ékki í fréttum". Ég horfði á þáttinn I návígi á Stöð 2. Það var mjög merkilegur þáttur. Rætt var við Rússa um „glasnost" í Sovétríkjunum, þ.e.a.s. um þessar umbætur og umræður sem Gorbat- Pétur Gunnarsson. sjov heíur staðið fyrir í Rússlandi. Ég var hrifinn af túlkinum sem var mjög fljótur að túlka umræðumar yfir á óaðfinnanlega íslensku. Síðan horfði ég á Vestræna veröld í Ríkissjónvarpinu. Ég er mjög hrif- inn af þeim þáttum og finnst að sjónvarpið njóti sín til fúlls í þáttum á borð við þennan. Þetta er ekki beint sá árstími sem maður horfir mikið á sjónvarp eða útvarp. Maður reynir að njóta vors- ins og stendur líka í undarlegum próflestri. Aflt í einu eru bömin far- in að lesa í gegnum mann undir próf og það hefur haldið manni upptekn- um undanfarin kvöld. Ferðagetraun Stjörnuvídeós og Viron-videós I vetur efndu tvær videóleigur í Reykjavík til getraunaleiks meðal viðskiptamanna sinna. Fengu þeir í hendur afsláttarkort sem fól í sér að fimmta hver spóla sem tekin var var ókeypis. Er kortið hafði ver- ið útfyllt varð korthafi að svara einfaldri Tóiúeikar spurningu og skila svarinu í getrauna- kassa. Þar með var hann eða hún þátttak- andi í keppni um ferðavinninga frá Samvinnuferðum Landsýn að verðmæti samtals 90.000 krónum. Dráttur í þessari fyrstu keppni fór fram 1. maí sl. Hinir heppnu voru þá þau: Bjarni Þór Ólafsson, Margrét Ingibergsdóttir og María J. Þrá- insdóttir. Eru þau hér á myndinni að taka við verðlaunum. Þessi leikur mun halda áfram hjá báðum videóleigunum út þetta ár og verður næst dregið úr ferðavinning- um þann 1. janúar nk. Skólaslit og tónleikar í Söngskólanum. Fjórtánda starfsári skólans er nú að ljúka og hafa um 150 nemendur stundað nám við skólann í vetur. Prófdómari í vor var Margaret Charthew. Um 100 nemendur luku stigsprófum í söng og/eða píanóleik. Skólinn útskrifar að þessu sinni þrjá söng- kennara: Dúfu S. Einarsdóttur, Friðrik S. Kristinsson og Theodóru Þorsteinsdóttur, og tvo einsöngvara, Ásdísi Kristmunds- dóttur og Ingibjörgu Marteinsdóttur. Sex nemendur luku VIII. stigi sem er lokapróf úr almennri deild. Vortónleikar á vegum skólans verða í tónleikasal Söngskólans, Hverfisgötu 45, sem hér segir: VIII. stigs tónleikar: í dag, 20. maí, kl. 20.30 og laug- ardaginn 23. maí kl. 16. Útskriftartónleik- ar söngkennara verða sunnudaginn 24. maí kl. 16 í tónleikasal Söngskólans. Út- skriftartónleikar einsöngvara verða í Norræna húsinu mánudaginn 25. maí kl. 20.30, Ásdís Kristmundsdóttir, og þriðju- daginn 26. maí kl. 20.30, Ingibjörg Mar- teinsdóttir. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis nema á tónleikana í Norræna húsinu en þar er miðaverð kr. 200. Skóla- slit og lokatónleikar skólans verða í íslensku óperunni fimmtudaginn 28. maí, skólaslitin kl. 15 og lokatónleikarnir kl. 16. Aðgöngumiðasala er við innganginn en styrktarfélögum hafa þegar verið send- ir miðar. Að tónleikunum loknum er boðið upp á kaffiveitingar í Söngskólanum í Reykjavík, Hverfisgötu 45. 29. maí fara síðan fram inntökupróf í skólann fyrir næsta vetur. Skólastjóri Söngskólans í Reykjavík er Garðar Cortes. Ýmislegt íslandsmyndir Mayers á ensku og frönsku Skömmu fyrir síðustu jól kom út hjá Erni og Örlygi bókin íslandsmyndir Mayers og hafði hún að geyma myndir þær sem Au- guste Mayer og fleiri gerðu í leiðangri Paul Gaimards um Island fyrir 150 árum. Afrakstur leiðangursins var margvíslegur, m.a. þær tæplega 200 myndir sem flestar eru prentaðar í fyrsta sinni í lit í framan- greindri útgáfu. íslandsmyndir Mayers, sem er hinn mesti kjörgripur, er í fagurri öskju. Þegar bókin kom út fyrir síðustu jól vannst ekki tími til þess að útbúa öskj- ur með enskum og frönskum texta en nú hefur verið úr þessu bætt og er bókin fáan- leg í öskjum á báðum málunum. Margrét E. dónsdóttir Skotta og vinir hennar Rétt fyrir páska kom út ný bamabók: Skotta og vinir hennar, eftir Margréti E. Jónsdóttur. Anna V. Gunnarsdóttir teikn- aði margar myndir í bókina. Mál og menning gefur út. Sagan segir frá dýralífi við sumarbústað í íslenskri sveit. Margrét E. Jónsdóttir er fréttamaður á Ríkisút- varpinu, þetta er fyrsta bókin hennar. Anna V. Gunnarsdóttir vinnur líka sína fyrstu bókarskreytingu í Skottu og vinum hennar. Bókin er 98 bls„ unnin í prent- smiðjunrti Odda hf. 4. tbl. Æskunnar er komið út. Aðalviðtalið er við Þorgils Óttar Mathiesen hand- knattleikskappa en á veggmynd eru þau Halla Margrét Árnadóttirog Valgeir Guð- jónsson. 1 starfskynningu er sagt frá hjúkrunarfræðinámi. „Að sjá og finna í >stað þess að heyra“ er heiti annarrar greinarinnar í flokki um fötluð börn. Heyrnleysingjaskólinn er heimsóttur og skólastjóri hans. Einnig er rætt við tvö heyrnarlaus börn með aðstoð túlka. Birtar eru tvær sögur aukaverðlaunahafa í sam- keppni Æskunnar og rásar 2. Fjallað er um dans og rætt við þrjú ungmenni sem góðum árangri hafa náð. í þessu blaði lýk- ur framhaldssögunni Spúka eftir Kristínu Steinsdóttur en sýstir Kristínar, Iðunn, segir frá Lóu litlu sem nú setur sig í spor öskubusku. Elías Kr. Þorsteinsson, 10 ára, greinir frá áhugamálum sínum. Þá eru hinir föstu þættir á sínum stað. Útgefandi Æskunnar er Stórstúka Islands, IOGT. Ritstjórar eru Eðvarð Ingólfsson og Karl Helgason. Ferðlög Ferðafélag íslands Þórsmörk- Eyjafjallajökull. Gist í Skag- íjörðsskála í Langadal. Gengið yfir Eyja- fjallajökul frá Þórsmörk og komið niður hjá Seljavallalaug. Dvöl í Þórsmörk fyrir þá sem vilja. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu FÍ, Oldugötu 3. Ath., greiðslu- kortaþjónusta. ÚTIVIST Útivistarferðir Helgarferðir 22.-24. maí 1. EyjafjalIajökull Seljavallalaug. Geng- ið frá Þórsmörk yfir að Seljavallalaug. Gist í Básum. Góð jöklaferð. 2. Þórsmörk-Goðaland. Gönguferðir við allra hæfi ásamt skoðunarferð að Eyja- fjöllum (Seljavallalaug). Gist í Útivistar- skálanum Básum. Munið sumardvöl í heila eða hálfa viku í Þórsmörk. Miðvikudagur 20. mai kl. 20. Óttarsstaðir-Lónakot. Létt ganga vestan Straumsvíkur. Verð 350 kr„ frítt f. börn með fullorðnum. Brottför. frá BSÍ, bensín- sölu. Sjáumst. Tapað - Fundið Lyklar fundust 7 lyklar fundust 18. maí sl. í Vonarstræti, vitjist á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Afmæli 90 ára er í dag, 20. maí, Sigríður Jónsdóttir, Kvíum, Þverárhlíð í Mýrasýslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.