Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987.
23
Erlendir fréttaritarar
Kreuzberg kallað
Belfast V-Þýskalands
—í---------------------------——
Ketilbjöm Tryggvason, DV, V-Berlín;
I annað sinn á tæpum mánuði kom
til mikilla óeirða í borgarhlutanum
Kreuzberg í Vestur-Berlín á laugar-
daginn. Hátt í þúsund liðsmenn
óeirðalögreglu borgarinnar börðust
þar langt fram á morgun við nokkur
hundruð manna hóp yngri íbúa
þessa borgarhverfis sem að undanf-
ömu hefur verið kallað Belfast
Þýskalands.
Til átakanna kom eftir að ungling-
ar, sem komu út af tónleikum
vinsællar pönkhljómsveitar, hófu
grjótkast að lögreglu sem stóð þar
sterkan vörð rétt hjá. Fljótlega gripu
laganna verðir í taumana sem leiddi
til þess að á ótrúlega skömmum tíma
tífaldaðist fjöldi unglinganna og
upphófust blóðugt átök.
Eldar um allt hverfið
Um miðnætti brunnu eldar um allt
hverfið og Iögreglan náði einungis
að brjóta sér leið inn á yfirráða-
svæði óeirðaseggjanna með bryn-
vörðum bifreiðum, vatnssprautum
og táragassprengjum. Þegar frétta-
ritari DV komst loksins inn á
svæðið, eftir að hafa þjarkað við lög-
reglu sem hafði afgirt hverfið, lá
táragasþoka yfir götum. Brennandi
bifreiðir og verslanir, sem höfðu ve-
rið rændar, blöstu við út um allt,
alvopnaðir lögreglumenn með lang-
ar bardagakylfur sáust hlaupa í
hópum og við og við sást til ungl-
inga sem köstuðu grjóti og jafnvel
mólótofkokkteilum í lögregluna.
Þegar upp var staðið á sunnudegi
höfðu um eitt hundrað manns sias-
ast og hátt í tvö hundruð unglingar
höfðu verið handteknir. Tjónið, sem
hlaust af átökunum, er metið á millj-
ónir marka.
Síversnandi ástand
Þegar spurt er um ástæður þessara
óeirða í Kreuzberg verður að taka
það til athugunar að í þessu hrörleg-
asta hverfi Vestur-Berlínar eru
fjörutíu prósent vinnufæn-a manna
og kvenna atvinnulaus og annar
hver unglingur. í hverfinu eru með-
altekjur á hvem íbúa rétt sem svarar
ellefu þúsund íslenskra króna og
meðal hinna fjölmörgu útlendinga,
sem eru ein 20 prósent af íbúum
hverfisins, liggja tekjumar enn
lægra.
Astæðan fy™ því að þetta fólk
Þegar fréttaritari DV kom í hverfið Kreuzberg í Vestur-Berlín aðfaranótt
sunnudagsins blöstu við brennandi bifreiðir og verslanir sem höfðu verið
rændar. Blóðug átök höfðu brotist út milli unglinga og lögreglu í hverfinu.
Ein ástæða óeirðanna er væntanlegt manntal og hefur komið til átaka í
fleiri borgum Vestur-Þýskalands vegna þess. - Simamynd Reuter
hópast saman á þennan stað í borg-
inni er sú að þessi borgarhluti er að
mestu leyti samansettur úr gömlum,
niðumíddum byggingum sem kosta
lítið i leigu. Á tímum vaxandi at-
vinnuleysis hefur þannig íbúum
Kreuzberg farið sífjölgandi og fé-
lagslegt ástand þar fer því síversn-
andi.
Milljarðar í afmælishátíð
Það ergir því þetta fólk að einmitt
núna. þegar ástandið í hverfinu er
verra en löngum áður. skuli borgar-
vfirvöld evða milljörðum marka í
afmælishátíð borgarinnar sem í ár á
750 ára afmæli. Milljarðar sem þetta
fólk sér svotil ekkert af. því afmælis-
hátíðin fer að mestu leyti fram í
miðborginni þar sem efhaðra fólkið
verslar og þar sem ferðamennimir
eru.
Ofan á allt þetta bætist svo að í
þessum mánuði fer fram manntal hér
í Vestur-Þýskalandi. Það er fram-
kvæmd sem í fjölda ára hefur verið
gagnrýnd af pólítiskum öflum í
Kreuzberg sem enn ein aðferð yfir-
valda til að ná yfirráðum í hverfinu
þar sem óneitanlega frjálslegir lifn-
aðarhættir viðgangast.
Umhverfisverndarmenn
í Svíþjóð auka fylgi sitt
Hefðbundin skipting flokkanna að riðlast
Gunriaugur A. Jánsson, DV, Lundi:
Sænski umhverfisvemdarflokkurinn
heldur áfram að styrkja stöðu sína
í skoðanakönnunum. Samkvæmt
úrslitum nýjustu könnunarinnar,
sem birt var um helgina, fékk flokk-
urinn 7,5 prósent eða meira en
nokkru sinni áður.
Öllum könnunum upp á síðkastið
ber saman um að flokkurinn sé ör-
ugglega yfir því 4 prósent marki sem
flokkur þarf til að komast inn í
sænska þingið. Fylgi annarrra
flokka virðist mjög stöðugt og hafa
sósíalísku flokkarnir tveir47 prósent
og borgaralegu flokkamir samtals
44,5 prósent.
Getur ráðið úrslitum
Yrðu kosningaúrslitin á þennan
veg væri komin upp staða sem báðar
fylkingamar óttast, það er að Um-
hverfisvemdarflokkurinn gæti ráðið
úrslitum um hvorri fylkingunni tæk-
ist að mynda stjóm.
Ingvar Carlsson forsætisráðherra
hefur raunar lýst áhyggjum sínum
með þessa þróun. Segir hann það
ekki heppilegt fyrir þingræðisskipu-
lagið að smáflokkum íjölgi. Hefur
verið bent á Danmörku og ísrael sem
dæmi um lönd þar sem smáflokkar
hafi á stundum getað ráðið óeðlilega
miklu um stjórnina vegna þeirrar
lykilaðstöðu sem þeir hafa komist i
þar sem stóru fylkingamar hafa ekki
getað myndað meirihluta án aðstoð-
ar þeirra.
Hefðbundin skipting að riðlast
Annars hafa að undanfömu sést
nokkur merki þess að hin hefð-
bundna skipting sænskra stjóm-
málaflokka í annars vegar sósíalíska
og hins vegar borgaralega fylkingu
sé að riðlast. Það hefm- æ oftar kom-
ið í hlut Þjóðarflokksins. undir
forystu ■ Bengts Westerberg, að
hjálpa stjórn jafhaðarmanna með
frumvörp sín gegnum þingið.
Carl Bildt, formaður ílialdsflokks-
ins, lýsti á dögunum yfir áhyggjiun
sínum vegna þessa. Sagði hann að
borgaralegu flokkunimi væri nauð-
syn á að standa saman til að sýna
kjósendum að þeim væri treystandi
til að mynda stjórn að loknum kosn-
ingunum á næsta ári.
Kommúnistar gramir
Sömuleiðis hefur VPK-flokkminn
(kommúnistar) ekki getað leynt
gremju sinni yfir að Jafnaðarmanna-
flokkurinn hafi svo oft upp á síðkast-
ið sloppið við að biðla til þeirra.
En svo getur farið að nauðsynlegt
reynist fyrir rótgrónu flokkana að
rjúfa hinar hefðbundnu fylkingar
endanlega að loknum næstu kosn-
ingum þegar valið getur staðið á
milli þess og að mynda stjórn með
hinum grænu, það er Umhverfis-
verndarflokknum. <
Þad hefur æ oftar komid í hlut Þjóöarflokksins, undir forysfu Bengts Wester-
berg, að hjálpa stjórn jafnaðarmanna með frumvörp sín gegnum þingið.
Annars em umhverfisvemdarmál
orðin fjTÍrferðarmikil í stefnuskrám
allra flokkanna eftir stöðugm- fréttir
af umhverfiseyðingu i fjölmiðlum. A
dögunimi voru í fjölmiðlum fyrir-
ferðarmiklar fi-éttir um að ástand
skóga á Skáni sé mun verra en fram
að þessu hefur verið talið og mikill
skógm’dauði sé yfirvofandi. Sömu
sögur er að segja úr sænska skeija-
garðintmi. Þm' virðist allt líf að devja
út. Til dæmis er selastofninn aðeins
lítið brot af því sem hann hefur ve-
rið og þeir selir sem enn eru eftir
eru yfirleitt alvm-lega sjúkir.
Vatn á myllu umhverfisvernd-
armanna
Allar slíkar fréttir reynast vatn á
myllu Umhverfisverndarflokksins
því þó flestir hinna flokkanna segist
vera með betri stefnu í umhverfis-
verndarmálum og ekki síst á það við
urn Miðflokkinn þá er eins og nafhið
á Umhverfisverndarflokknum nægi
til að trvggja honum fy'lgisaukningu
á kostnað hinna flokkanna.
Athygli vekur að Miðflokkurinn,
sem hafði yfir 25 prósent atkvæða
þegar umræður um kjamorkumálin
stóðu sem hæst á síðasta áratug.
hefur nú aðeins 9 prósent samkvæmt
nýjustu könnunum og það þrátt fyr-
ir að flokknum sé nú stjórnað af
Olof Johansson, kunnum baráttu-
manni fyrir umhverfisverndarmál-
um.