Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987. Dægradvöl „Bömin undir- strika sakleysis- legt útlit ‘1 „Ég hef einmitt veitt því athygli að smábörnin eru í töluvert miklum mæli höfð með á tískuljósmyndum í þekkt- ustu tískutímaritunum," sagði Anna Björk Eðvarðsdóttir hjá Fyrirsætunni. „Það sem ég held að verið sé að fiska eftir í þessum myndum er sakleysið. Þær kröfur sem gerðar eru til fyrir- sæta í dag er að þær hafi þetta sakleysislega útlit sem einkum felst í stórum augum, þykkum vörum og svo- lítið bamalegu útliti enda er það ekki óalgengt að fyrirsætumar séu allt nið- ur í fjórtán ára gamlar. Það vekur óneitanlega hriíhingu að sjá svona lítil sæt böm. þau undir- strika enn frekar þetta sakleysislega útlit sem kröfui-nar snúast um í dag,“ sagði Anna Björk. Hún er á leið til Parísar til að fylgja íslenskri stúlku sem sigraði í fyrirsætukeppni fyrir skömmu á vegum Fvrirsætunnar og sagði Anna Björk að án éfa mundu þær mæta harðri samkeppni en það væri örugglega þess virði að reyna. Anna Björk hjá Fyrirsætunni telur börnin undirstrika þad sakleysislega útlit sem í dag þykir eftirsóknarvert hjá tyrirsætum. DV-mynd KAE Þegar þekktustu tímaritum tískunnar er flett blasir sú sjón æ oftar við manni að smákrakkar skipi þar sinn sess á meðal hinna fullorðnu. Þeir vekja óneitanlega ávallt athygli og stela jafnvel senunni. Hvort vera þeirra á myndunum þjónaði eingöngu sveiflum og duttlungum tískunnar eöa hvort hún átti sér dýpri rætur, sem undirstrika tilveru þeirra í heimi hinna fullorðnu, veltu þau Anna Björk i Fyrirsætunni og Friðþjófur Helgason Ijósmyndari fyrir sér. „Það eru skemmtilegar andstæður sem birtast í myndunum. Ósjálfrátt byrjar maður á að horfa á börnin," sagði Friðþjófur Helgason um þá nýju sveiflu að hafa smábörn með á tískuljósmyndum. DV-mynd KAE „Ljósmyndimar lýsa skemmtilegum andstæðum“ Friðþjófúr Helgason er þrautreynd- ur ljósmyndari. Hann hefur lengi unnið við ljósmyndun og þar á meðal fengist við tískuljósmyndun fyrir ís- lensk tímarit en hefur nú snúið sér að kvikmyndatökum hjá Sjónvarpinu. Þegar hann var spurður álits á því fyrirbæri að smáböm skuli í vaxandi mæli vera höfð með á tískuljósmynd- um, sem svo mikið hefur borið á í helstu leiðandi tímaritum í heimi tísk- unnar, sagði hann að sér þættu myndirnar lýsa skemmtilegum and- stæðum. „Ég hef mjög gaman af þessum myndum, ósjálfrátt byrjar maður að horfa á börnin. Þau em sennilega notuð sem eins konar trix til þess að grípa þann sem flettir tískutímaritinu sem þær em í. Þetta hlýtur að vera bylgja sem gengur yfir, í tískuljósmyndun em ákveðnar línur í gangi á hverjum tima. I raun og vem er þetta öfugt við það sem áður var þegar kvenfólk var notað til að flikka upp á karlkyns fyrirsætur en nú em það karlmennimir sem eru notaðir til að skreyta kvenkyns fyrirsætur, oft á tíðum fáklæddir. Annars hefur reynslan kennt mér að það getur verið varasamt að gera börn á þessum aldri að stjömum, þau geta ofmetnast."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.