Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987. Neytendur Uppskriftaþeysa DV: Ufrarbuff brjóstabamið að fá of mikinn lauk. Sem ég er að verða búin að hakka saman lifúr, kartöflur og lauk hugsa ég enn til þess unga, vandfysna og hugsa sem svo að hægt sé að gera enn betur. Þess vegna tek ég „gumsið“ og skelli því í ca þremur áföngum í mixarann, sem er einn hluti af hrærivélinni minni, en finnst jukkið ívið þunnt svo ég helli út í 1 dl af heilhveiti (það er svo hollt). Síðan lét ég þetta bíða rúman hálf- tíma því sinna þurfti þeim minnsta. Að því loknu var hveitið búið að jafna sig vel og ég fór að leika mér í kryddskúffunni. Þá fór i slatti af salti og örlítið af pipar, papriku og kam'i, einnig smá- hvítlauksduft því það á greiðan aðgang að matargerð hjá mér. Búið var að hita pönnuna og látið á hana með matskeið og mnnu nú út og steiktust fagurlega lifrarlummurn- ar og voru steiktar báðum megin. Þetta varð feikinóg í tvær máltíðir og fiysti ég helminginn. Þetta var borið á borð með bræddu smjörlíki og soðnum kartöflum. Pabb- inn sagði: Namm - hvað er þetta? Sá ungi, vandfysni vildi tvisvar fá meira - án þess að sjálfsögðu að vera upp- lýstur um hið sanna innihald. Mat- reiðslumeistarinn úðaði í sig af bestu lyst og var virkilega ánægður með að hafa enn einu sinni galdrað fram lyst- ugan, hollan og ódýran mat. Uppskriftin I réttinn fer eftirfarandi: 450 g lifur, hreinsuð og í bitum ca 250-300 g soðnar kartöflur, brytjað- ar 1 lítill laukur Þetta er hakkað saman, síðan látið í blandara eða mixara. Með því að hakka þetta fyrst sitja vel eftir allar tægjur úr lifrinni. Kannski gera þær Ein af þeim sem sendu okkur upp- skrift í DV-þeysunni var Sólveig Eiríks, Strandgötu 23, Eskifirði. Ástæðan fyrir því að við völdum upp- skrift hennar til þess að birta fyrir landsmenn var bæði að uppskriftin er áhugaverð, ódýr og svo skemmtilega framsett hjá Sólveigu að sérstakt má telja. Fréttaritari DV á Eskifirði. Emil Thorarensen, tók mvndir af Sólveigu er hún útbjó réttinn sem er lifrarbuff. Bréfið frá Sólveigu birtum við hér óbreytt. Mæður með börn á brjósti gæti sín í mat Lýst hefur verið eftir á neytendasíðu DV auðveldum, ódýrum og jafnframt næringarríkum hvunndagsuppskrift- um. Af meðfæddri hugvitssemi datt ég niður á aldeilis mjög góða slíka á dög- unum og skal því nú Iýst. I upphafi skal taka fram að undirrit- uð er með bam á brjósti og þarf dulítið að passa að hafa eigi of sterkan mat. Þar kom að tími var til kominn að vera með lifur á matseðlinum en þegar ég fór að hugsa málið langaði mig alls ekki í heila lifur steikta. líka af því að strákurinn (6 ára) vill hana ekki og pabbinn er ekkert alltof hrifinn. Þetta er svona matur sem borðaður er af skyldurækni. Lifrarbuff ofsa gott Jæja, en mér sjálfri þvkir afskaplega gott lifrarbuff, gert úr íifur. kartöflum og lauk, hökkuðu saman. krydduðu ogsteiktu. Ég fer að setja saman hakkavél og tína fram ílát og áhöld, á nóg af kart- öflum svo þær verða nærri jafnþungar lifrinni en ekki alveg. ca 450 g lifur. 250 g kartöflur. Þá á ég bara einn lít- inn lauk til en ákveð samt að láta hann duga enda ekki hollt fyrir Hráefnið i réttinn góða fyrir utan kryddið. Þetta kostar innan við 100 kr. og telst heldur betur vel sloppið á þessum siðustu og verstu tímum. DV-myndir Emil Thorarensen Höfundur verðlaunauppskriftar dagsins, Sólveig Eiríks, með „þeim vandfýsna", Fjölni Guðmannssyni sem fæddur er árið 1981. það líka í mixaranum, ég hef ekki próf- að að láta þetta beint í hann. Jæja, eftir að þetta hefur verið mixað er hrært saman við 1 dl af heilhveiti og gjaman látið bíða smástund. Sjálfsagt er best að blanda kryddinu í heilhveitið áður en það er sett út í en kryddið getur t.d. verið eftirfarandi: 14 tsk. pipar (hvítur) 'A tsk. salt 14 tsk. paprikuduft 14 tsk. karrí 14 tsk. hvítlauksduft (má sleppa ef vill) Þessi réttur lendir tvimælalaust á vinsældalista hjá þeim sem hann smakka. Bestu kveðjur, Sólveig Eiríks. Við óskum Sólveigu til hamingju með uppskriftina sína sem er án efa sú allra ódýrasta sem við höfum hing- að til birt. Hráefnið kostar innan við 100 kr. og dugði vel í tvær máltíðir fyrir hjón með eitt bam. Geri aðrir betur. Sólveig fær senda verðlaunaupp- hæðina sem er 2.500 kr. -A.BJ. frá Eskifirði Hvað kosta díóður? Til okkar hringdi rafeindavirki og var óhress með mikinn verðmun á díóðum. Hann keypti díóður í Sam- eind á kr. 1,25 stykkið en sá þær síðan á margfalt hærra verði í Heim- ilistækjum. Við snerum okkur til Heimilis- tækja og spurðum Jóhannes Skarp- héðinsson deildarstjóra hvemig stæði á þessum mikla mun. Hann sagði að þeir hefðu fengið eina sendingu af þessari vöm á mun hærra verði en reiknað hefði verið með í upphafi. Við þetta hækkaði útsöluverðið úr fjórum krónum í átta. Nú er hins vegar ný sending á leiðinni frá öðrum framleiðanda og lækkar þá verðið til muna. Heild- söluverð verður þá tæpar tvær krónur stykkið. Einnig kom fram í máli Jóhannes- ar að alltaf væri sá möguleiki fyrir hendi að sendingar væm dýrari en reiknað hefði verið með. Þá væri ekki um annað að ræða en að selja vömna á hærra verði uns sendingin væri búin og kaupa þá næstu frá öðmm aðilum sem byðu lægra verð. -PLP HeiUaráð Hitið skrúfjámið Ef þú átt í erfiðleikum með að losa skrúfu er gott ráð að hita endann á skrúfjáminu með logandi eldspýtu. Þá losnar skrúfan alveg eins og skot. Bílahreinsun í skugganum Þetta ráð, reyndar eins og önnur ágæt húsráð, kemur frá sólríku landi, en það em ráðleggingar um að hreinsa bílinn aðeins í skuggan- um. Þetta á auðvitað eins við hér á landi þótt minna sé hér um sólskin en víða annars staðar. Þetta á einn- ig við þegar verið er að pússa gluggarúður. Það má alls ekki gera þegar sólin skín á rúðuna þá er ekki hægt að fá hana almennilega hreina. Glugga- hreinsir Tvær matskeiðar af þvottamýking- arefrii út í lítra af vatni er mjög gott gluggahreinsiefni. Rúðumar glansa mjög vel með þessu efiii. Munið að senda inn upplýsinga- seðilinn fyrir heimilisbókhald DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.