Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987. 9 Utlönd Róstur á Fijieyjum Hópar Fijibúa hlupu um götur Suva í gær og réðust á menn af indverskum ættum og verslanir þeirra þrátt fyrir að hermenn reyndu að koma í veg fyrir það. Að sögn vitna slösuðust fimmtíu manns þegar til átaka kom er Indveij- ar höfðu safiiast saman til þess að lýsa stuðningi sínum við forsætisráðher- rann sem settur var í stofufangelsi eftir valdaránið í síðustu viku. Óeirðimar hófust þegar landstjórinn Ganilau hafði lýst því yfir að forsætis- ráðherrann Bavadra hefði verið leyst- ur frá störfum og að boðað yrði til nýrra kosninga. Bavadra og ráðherr- um hans var sleppt úr stofúfangelsi í gærkvöldi og fögnuðu stuðningsmenn hans honum ákaft. Hafði verið ráðgert að Bavadra myndi ávarpa hóp Ind- veija sem safhast höfðu saman en þeir urðu þá fyrir árás. Landstjórinn kvaðst í gær enn vera við völd og neitaði hann að láta Ra- buka, leiðtoga uppreisnarmanna, sveija embættiseið. Fregnir herma að Rabuka hafi verið sviptur her sínum Aöstoðarforsætisráðherra Fijieyja, Harry Sharma, var ákatt fagnað er honum var sleppt úr stofufangelsi í gær ásamt öðrum ráðherrum og stjórnmálamönnum. Og að hann sé í haldi. - Simamynd Reuler Þingið heldur fast í afvopnunarmálin Fulltrúadeild bandaríska þingsins afgreiddi í gær þrjár tillögur er tengj- ast afvopnunarmálum og gerði með afgreiðslu sinni ljóst að ekki stendur til að Reagan forseti fái fijálsar hend- ur í samningum sínum við Sovétríkin. Þingið greiddi í gær atkvæði um þrjú mál er tengjast framlögum til vamarmála en tillögur fulltrúadeild- arinnar í þeim efnum gera ráð fyrir 289 billjón dollara heildarframlagi sem er 23 billjónum minna en Reagan fór fram á. Fulltrúadeildarþingmenn sam- þykktu að stöðva framlög til spreng- ingar kjarnavopna sem stærri eru en eitt kílótonn, að minnsta kosti á með- an Sovétmenn gera ekki tilraunir með sín vopn og heimila eftirlitsbúnað í landi sínu. Þá samþykkti fulltrúadeildin einnig eins árs framlengingu á banni við til- raunum með vopn gegn gervihnöttum og samþykkti tillögu sem kemur í veg fyrir að Bandaríkjamenn geti flutt efnavopn sín frá Evrópu fyrr en að minnsta kosti eitt af ríkjum Atlants- hafsbandalagsins samþykkir að taka við vopnum sem koma í staðinn. Sam- þykkt þessi brýtur i bága við sam- komulag milli Bandaríkjanna og V-Þýskalands. Italskar konur krefjast jafnréttis Undanfarið hafa konur hér á Ítalíu sótt mikið á í jafnréttisbaráttunni. Þær hafa opnað skrifstofur í öllum stærstu borgum landsins þar sem þær hittast og ræða málefni kvenna og skipuleggja alls konar starf til að rétta hlut þeirra. Konur hér hafa alltof lengi verið taldar til heimilistækja og vilja þær nú breyta þessum gamla hugsunar- hætti. í bígerð er að stofna samtök sem eiga að reyna að ná til sem flestra kvenna í landinu svo að áhrif þeirra verði sterkari. Ekki hefur náðst til nógu margra kvenna til að hægt sé að fara út i stjórnmálabaráttu en fimmtíu og tvö prósent kjósenda hér á Ítalíu eru konur. Erfiðast mun vera að ná sambandi við konur sem koma frá heittrúuðum fjölskyldum vegna sterkra áhrifa ka- þólsku kirkjunnar og Vatíkansins í Róm. En þar eru nær eingöngu karlar sem stjóma og flestir þeirra háaldrað- ir með yfir fimmtíu ára gamla og neikvæða afstöðu til málefha kvenna. BaMur Róbenssan, DV, Gervúa; Oldungadeildin samþykkir Webster Öldungadeild bandaríska þings- ins samþykkti í gær William Webster, fyrrum vfirmann banda- rísku alríkislögreglunnar. FBI. sem eftirmann William Casey í embætti yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar. CLA. Öldungadeildarþingmenn sam- þykktu tilnefningu Websters með níutíu og fjórum atkvæðum gegn einu og mun hann því taka við stjórn leyniþjónustunnar um leið og hann hefur svarið embættiseiða. William Webster hefur verið yfirmaður alríkislögreglunnar um tíu ára skeið. Fyrsta verkefni hans verður að lagfæra ímv-nd CIA út á við en hún er nú mörkuð njósna- hneykslum, sem stofnunin hefur flækst í á klaufalegan máta, svo og hefur aðild hennar að fran- málinu gert erfitt fyrir undanfarið. Webster hefúr ekki enn gefið upp neitt um brevtingar þær sem hann hyggst gera en talið er að þær verði töluverðar. William Webster, nýr yfirmaður CIA. - Simamynd Reuter Undirbúið fyrir heimsmeistarakeppni Baldur Rabeitssan, DV, Genúa; Hér í Genúa á Ítalíu er hafinn undir- búningur fyrir heimsmeistarakeppn- ina í fótbolta sem haldin verður á Ítalíu 1990. Einum og hálfimi milljarði íslenskra króna verður varið til þess að endur- byggja Fen-arisleikvanginn. Mun verkið taka um tvö og hálft ár. Eftir endurbygginguna mun leik- vangurinn taka 46 þúsund manns í sæti og stæði verða gerð fyrir 5 þúsund manns. í dag tekur leikvangurinn alls 2o þúsund áhorfendur þannig að um rúmlega helmingsstækkun er að ræða. & Kveikji úrvali í og evróf jhlutir í japanska jska bíla. MnnniaEE Hjöruliðir í drifsköft og öxla í 4x4. ÚRVAL vara- og auka- hluta í bíla. Sendum um allt land. VARAHLUTAVERSLUNIN Hjólkoppar á 12" - 13" - 14" - 15". hvítir og gráir, krómhringir. 13"-14"-15". Hjólatjakkar, V/i-l tonn, verð frá kr. 5.500,- VARAHLUTIR I SJÁLFSKIPTINGAR • VATNSDÆLUR • HJÓLATJAKKAR • BÚKKAR • HJ0LK0PPAR • SÆTAAKLÆÐI • AUKAHLUTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.