Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987.
7
Fréttir
VerðsprengSng á eldis-
laxi á heimsmaikaðnum
- aðalorsökin er hitraveikin í norska eldislaxinum
Hitraveikin svoneíhda, sem nú
heijar á norskan eldislax og er meira
að segja komin í laxinn á vestur-
ströndinni, eftir að hafa áður verið
bara í N-Noregi, veldur þvi að um
verðsprengingu er nú að ræða á eld-
islaxi á heimsmarkaði. í Bandaríkj-
unum er verðið komið í á milli 400
og 500 krónur fyrir kílóið en var í
fyrra 250 krónur fyrir kílóið af 2ja
til 3ja kílóa fiski. A Evrópumarkaði
er verðið nú um 430 krónur fyrir
kílóið. Jóhann Geirsson hjá Pólar-
laxi sagði að nú væru bjartir tímar
framundan í laxeldinu. Svona væri
það, eins dauði væri annars brauð.
Jóhann sagði að þegar skoski lax-
inn kæmi á markaðinn og það sem
Norðmenn yrðu að drepa vegna
veikinnar myndi verðið eitthvað
lækka aftur síðsumars en hækka svo
aftur um eða upp úr næstu áramót-
um. Sagði hann að laxi, sem Pólarlax
er nú með í eldiskvíum og væri nú
rúm tvö kíló að meðalþyngd, yrði
ekki slátrað í sumar heldur alinn til
áramóta og þá gæti þyngdin verið
orðin yfir 4 kíló og verðið aftur í
hámarki.
Hitraveikin í Noregi er kennd við
eyjuna Hitra en þar var hún fyrst
greind. Sigurður Helgason fisksjúk-
dómafræðingur sagði að meðal
sérfræðinga í Noregi væri deilt um
það hvort veikin stafaði af vondum
umhverfisaðstæðum eða hvort um
bakteríu væri að ræða. Fleiri hallast
nú að því að um bakteríu sé að ræða.
Hann sagði að enda þótt þessarar
veiki hefði ekki orðið vart hér væri
ekki útilokað að bakterían væri til
staðar. Talið væri að til þess að bakt-
erían færi af stað þyrfti slæmar
umhverfisaðstæður i eldisstöðvun-
um. Veikinnar hefur orðið vart í
Skotlandi og í Færeyjum. Sigurður
sagði Norðmenn hafa þróað upp
bóluefni gegn veikinni og væru mikl-
ar vonir við það bundnar en of
snemmt væri að segja til um hvort
það nægði til að eyða veikinni.
Össur Skarphéðinsson fiskeldis-
fræðingur sagði enga hættu á að
bakterían bærist hingað til lands
með sjávarstraumum en Norðmenn
halda þvi fram að bakterían hafi
borist með sjávarstraumum frá N-
Noregi til vesturstrandarinnar.
Hann sagði sjúkdóminn leggjast ein-
göngu á fullorðinn fisk, hann yrði
slappur, hætti að borða og yrði allur
blóðrisa. Össur spáði því að veikin
í Noregi yrði til þess að verð á laxi
á heimsmarkaði færi upp úr öllu
valdi á næstunni.
-S.dór
Vestmannaeyjar:
lif og fjör á skóladegi
Ómar Garðarssan, DV, Vestmannaeyjum;
Nýlega var efnt til skóladaga í
Bamaskólanum og Hamarsskólan-
um í Vestmannaeyjum. Voru skól-
amir þá opnir almenningi megnið
af deginum.
Ýmislegt var á dagskránni til
skemmtunar fyrir böm og fullorðna.
Til dæmis var boðið upp á margs
konar leiki og öttu foreldrar og
kennarar kappi við nemendur í fót-
bolta. Nemendur sáu um sölu á
veitingum, svo sem kaffi, kakói og
meðlæti. Þá sýndu þeir námsvinnu
sína.
Þess má geta að elsti hluti Bama-
skólans hefur nú verið í notkun í
70 vetur en þar var kennsla fyrst
hafin haustið 1917.
Þaö var mikið lif og fjör á skóladegi Barnaskóla Vestmannaeyja, eins og myndin ber með sér.
DV-myndir Ómar
Bikarkeppni taflfélaga Evropu:
Taflfélag Reykjavíkur
gegn rúmensku félagi
- allir íslensku stórmeistararnir tefla í íslensku sveitinni
Taflfélag Reykjavíkur hefur ákveð-
ið að taka þátt í bikarkeppni evróp-
skra taflfélaga í ár en þessi keppni er
nú haldin í 6. sinn. Taflfélagssveitin
lendir í 1. umferð gegn taflfélagi frá
Rúmeníu sem heitir Politehnica-
Bucaresti og tefla sveitimar saman 28.
júní í Rúmeníu. Hvor sveit er skipuð
6 mönnum í senn og teflir hver kepp-
andi tvær skákir við andstæðing sinn.
Alls taka 26 sveitir þátt í keppninni
að þessu sinni.
í íslensku sveitinni verða allir stór-
meistaramir okkar, Helgi Ólafsson,
Jóhann Hjartarson, Jón L. Ámason,
Margeir Pétursson, Friðrik Ólafsson
og Guðmundur Sigurjónssön. Auk
þeirra verða í sveitinni, Karl Þor-
steins, Þröstur Þórhallsson, Sævar
Bjamason, Hannes Hlífar Stefánsson,
Elvar Guðmundsson og Davíð Ólafs-
son.
Meðalskákstig íslensku sveitarinnai’
em 2436 en þeirrar rúmensku 2329.
Keppnin er útsláttarkeppni sem þýðir
að það liðið sem tapar er þar með úr
keppninni. Ef íslenska sveitin vinnur
í fyrstu umferð verður teflt hér heima
í 2. umferð.
Taflfélagið heflir gert kostnaðará-
ætlun og ef miðað er við að íslenska
sveitin komist í undanúrslit má áætla
kostnaðinn á bilinu 500 til 900 þúsund
krónur. Keppt verður á 3ja mánaða
fresti og gert ráð fyrir að keppninni
ljúki í september 1988.
-S.dór
Margir útlendingar
hafa tilkynnt þátttöku sína
Opna skákmótið á Austurlandi, sem
hefst 1. júní, verður ekki eins sterkt
og búist var við vegna þess að svo
virðist sem íslensku stórmeistaramir
ætli ekki að taka þátt í því. Aftur á
móti hefur á annan tug erlendra skák-
manna tilkynnt um þátttöku en þeir
em flestir með skákstig á bilinu 2300
til 2400 stig.
Otto Jónsson menntaskólakennari,
sem séð hefúr um undirbúning móts-
ins, sagði að fyrirhugað hefði verið að
tefla í 3 flokkum eftir skákstigum en
þar sem stórmeistaramir yrðu ekki
með væri ákveðið að tefla í tveimur
styrkleikaflokkum.
Nokkrir af okkar sterkari skák-
mönnum verða meðal þátttakenda og
má þar nefria Sævar Bjamason, Hann-
es Hlífar Stefánsson og Dan Hansson.
Þessir hafa allir látið skrá sig.
Otto sagði að á milli 40 og 50 þátttak-
endur hefðu nú þegar látið skrá sig
til keppni á mótinu.
-S.dór
Sundsprettur
á Fossvogi
Aðfaranótt laugardagsins þurfti lög-
reglan í Reykjavik að sækja drukkinn
sundkappa út á Fossvog. Maðurinn
lagðist til sunds í Nauthólsvík en lög-
reglan fann hann illa kaldan skammt
undan Kársnesi. Farið var með mann-
inn á slysadeild til upphitunar. Honum
mun ekki hafa orðið meint af volkinu.
-sme
BÍLALEIGA ER
OKKAR FAG
Viö útvegum yöur
interRent bílaleigubíl
hvar sem er erlendis,
jafnvel ódýrara en nokkur
annar getur boöiö:
Dæmi: í íslenskum
krónum m/söluskatti.
Ótakmarkaöur akstur
Danmörk:
3 dagar = 4.281.-
7 dagar = 8.560.-
Aukadagur 1.220.-
Þýskaland:
3 dagar = 4.000,-
7 dagar = 7.041,-
Aukadagur 996,-
Luxemburg:
3 dagar = 3.975.-
7 dagar = 6.651,-
Aukadagur 930,-
Einnig bjóðum við úrval
húsbíla og campingbíla í
Þýskalandi.
interRent er stærsta
bílaleiga Evrópu.
Viö veitum fúslega allar
upplýsingar og pöntum
bílinn fyrir yöur.
interRent
interRent á Islandi/
Bílaleiga Akureyrar
Reykjavík - Skeifan 9 - Símar
91-686915, 91-31615
Akureyri - Tryggvabr. 14 -
Símar 96-21715, 96-23515.
Telex: 2337 IR ICE IS.